Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristján Hreinsson með nýja færslu um transfólk: „Úffff, nú færðu að fjúka……..aftur“

Kristján Hreinsson með nýja færslu um transfólk: „Úffff, nú færðu að fjúka……..aftur“
Kristján Hreins­son.

„NÚ FELL ÉG Í TRANS

Það er satt, núna er ég meðal ann­ars að skrifa um trans. Ég er að velta því fyrir mér hvort það sé í raun og veru hægt að láta sér ekki líka við þann lík­ama sem maður er fæddur í? Mín skoðun er sú að í raun og veru sé jafnan bara ein leið, hún felst í því að sætta sig við orðin hlut, vegna þess að for­tíð­inni verður ekki breytt. Um leið og maður er sáttur við það sem maður hefur, þá fyrst er hægt að skoða næstu skref.“ Þetta ritar Kristján Hreins­son, Skerja­fjarða­skáldið, í nýrri færslu á Facebook.

Kristján gerði allt brjálað á dög­unum er hann skrif­aði færslu um kynsegin mál­efni sem hann segir að hafi mis­skilist hrapa­lega og að hann hafi meint akkurat öfugt við það sem margir héldu. Var hann gagn­rýndur harka­lega, meðal ann­ars af mekt­ar­mönnum á borð við Guðmund Andra Thorsson, Egil Helgason og Felix Bergsson. Þá var hann rek­inn sem kenn­ari í End­ur­menntun Háskóla Íslands en svo reyndar ráð­inn aftur nokkrum dögum síðar.

Í nýju færsl­unni veltir Kristján fyrir sér trans­fólki en hann seg­ist vilja „hlúa að öllu fólki“ en að „við séum á villi­götum með margt.“ Segist hann vilja gefa þeim sem líður illa, góð ráð. Segir hann fyrsta ráði vera alltaf: „Reyndu að sætt­ast við sjálfið.“ Í færsl­unni furðar hann sig einnig á að Samtökin´78 væru farin að sjá um kyn­fræðslu barna í grunn­skólum. Aukreitis segir hann í færsl­unni að Íslend­ingar séu svo „líbó, svo hipp og kúl“ að „það er eins og sam­fé­lagið sé að heimta ein­hvers konar skimun, að leitað verði að börnum sem hugs­an­lega geta haldið því fram að þau hefðu jafn­vel viljað fæð­ast í öðrum lík­ama en þeim sem þau fædd­ust í.“

Færsluna má lesa í heild sinni hér að neðan:

„Sá sem er sann­færður um að honum líði illa í eigin lík­ama skal fá ein­hvers konar leið­rétt­ingu. Ef ver­unni líður svo einnig illa í þeirri til­vist­ar­hulstri sem tekur við, þá eru góð ráð dýr. Ég vil hlúa að öllu fólki vill að allir ein­stak­lingar fái að blómstra. Engu að síður er ég sann­færður um að við séum á villi­götum með margt. Ef ein­hverjum líður illa þá vil ég gefa góð ráð. Fyrsta ráðið er alltaf: „Reyndu að sætt­ast við sjálfið.“Í dag bý ég í höf­uð­borg hinsegin fólks á Ítalíu, Mílanó. Ég þekki fólk sem nær yfir allan lita­skal­ann í kyn­vit­und­ar­fræðum, sé á hverjum degi dásam­legt safn af öllum hugs­an­legum kynjum. Talaði um dag­inn við karl­mann sem var fyrir nokkru nán­ast orð­inn kona. En hann hætti við í ein­hverju sem hann kall­aði horm­óna­með­ferð. Sá maður er í dag sáttur við sitt. Sjálfur er ég þannig að ég hef mínar skoð­anir og ég reyni að sína hug­sjónum fólks til­lit. Samt er það nú svo að ég furða mig á mörgu sem snertir umburð­ar­lyndi og held að það eitt og sér geti verið hvati til átaka. Oft er einsog til­slökun á einum stað skapi úlfúð, tog­streitu og illt umtal á þeim næsta. Ein birt­ing­ar­mynd umburð­ar­lynd­is­ins er okkur sýni­leg þegar við sam­þykkjum að fela Sam­tök­unum 78 að sjá um kyn­fræðslu í skólum. Hér er rétt að ég und­ir­striki að ég hef ekk­ert á móti fólki sem skil­greinir sig sem hinsegin fólk. Hinsegin fólk hefur búið til skil­grein­ingu sem skiptir sam­fé­lag­inu í tvo hópa. Þessir hópar eru ann­ars vegar hinsegin fólk og hins vegar svona fólk. En – og takið nú vel eftir – hvers vegna í ósköp­unum ráðum við hinsegin fólk til að fræða svona fólk um kyn­líf? Erum við kannski með hug­myndir um að flytja inn Dani til að kenna okkur íslensku?Enn og aftur vil ég taka það fram að ég hef ekk­ert á móti hinsegin fólki, trans fólki eða Dönum. Ég er ein­ungis að velta þessu fyrir mér. Ég sé einnig að það er eins og sam­fé­lagið sé að heimta ein­hvers konar skimun, að leitað verði að börnum sem hugs­an­lega geta haldið því fram að þau hefðu jafn­vel viljað fæð­ast í öðrum lík­ama en þeim sem þau fædd­ust í. Þessi skimun er fram­kvæmd vegna þess að Íslend­ingar eru svo líbó, svo hipp og kúl. Við erum svo langt á undan öðrum þjóðum í póli­tískum rétt­trún­aði.Ég er ekki í her­ferð gegn neinum. En hvert erum við eig­in­lega að fara?Börn fá ekki að kjósa, þau mega ekki kaupa áfengi, þeu mega ekki aka bif­reiðum, þau mega ekki vera úti alla nótt­ina, þau mega ekki gera margt af því sem full­orðnu fólki leyf­ist. Engu að síður er börnum hjálpað við að kom­ast að því hvort þau vilji hugs­an­lega til­heyra öðru kyni en því sem þau til­heyra. Ef þau kom­ast að nýrri nið­ur­stöðu þá ráða þau sjálf hvernig á málum er haldið. Við erum með skimun í gangi, við erum að leita að óham­ingju­sömum börnum, fólki sem er hugs­an­lega óánægt með til­vist sína í því hylki sem kall­ast lík­ami. Nýjasta nýtt í skyndi­lausna­brans­anum er kyn­vandi. Börnin þurfa að kom­ast að því hvort þeim líður ekki alveg örugg­lega illa. Þá er lausnin fólgin í að finna sér nýtt og betra kyn.Ég er svo gátt­aður að ég bók­staf­lega fell í trans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi