Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Læknirinn Guðmundur Karl um Covid-faraldurinn: ,,Blekkingarleikurinn er ekki búinn”

Læknirinn Guðmundur Karl um Covid-faraldurinn: ,,Blekkingarleikurinn er ekki búinn”

Guð­mundur Karl Snæ­björns­son, sér­fræð­ingur í hem­il­is­lækn­ingum segir hættu­legt að afsala ákvarð­ana­töku í lýð­heilsu til mið­stýrðra afla úti í heimi.

Guð­mundur Karl, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar segir að við verðum að gera upp Covid-far­ald­ur­inn heild­stætt til þess að ákveðnir hlutir end­ur­taki sig ekki:

„Covid er ekki búið að því marki að blekk­ing­ar­leik­ur­inn er ekki búinn. Við getum bara farið beint niður á Alþingi og skoðað frum­vörp þar sem er í raun verið að afsala lög­gjöf í þessum málum til mið­stýrðra afla úti í heimi. Af því að fólk er orðið þreytt á umræðu um þennan far­aldur, þá fer lítið fyrir umræðu um það sem er í gangi núna, þar sem við erum í raun að afsala full­veldi okkar. Stjórn­ar­frum­varp þar sem ókjörnir full­trúar úti í heimi eiga að fá að ákveða ákveðna grund­vall­ar­hluti þegar kemur að lækn­ingum, heilsu og mik­il­vægri ákvarð­ana­töku. Svo eru nýju sótt­varn­ar­lögin annar hlutur sem nán­ast engin umræða hefur farið fram um í sam­fé­lag­inu. Ef við ákveðum að láta stofn­anir út í heimi taka yfir ákvarð­ana­vald okkar hér á Íslandi verður að fara fram alvöru umræða um það. Ef fólk fær bara að setja atkvæði ofan í pott einu sinni á fjög­urra ára fresti og svo er bara fólk úti í heimi að taka risa­stórar ákvarð­anir sem aldrei var kosið af almenn­ingi verðum við að spyrja spurn­inga. Þetta far­ald­urs­tíma­bil sýndi okkur hluti sem eru ekki eðli­legir og við verðum að gera þetta allt saman upp.”

Guð­mundur Karl segir það enga lausn að stinga bara hlut­unum ofan í skúffu og hætta að ræða þá. Það að fólki sé stýrt með ótta og eng­inn megi setja spurn­ingar við lín­una sem er lögð sé hættu­leg þróun:

„Við megum ekki rækta fokk­ing hræðsl­una áfram og bara stinga hlutum enda­laust ofan í skúffu. Það verður hægt að stýra okkur að vild ef við látum ótt­ann ráða för. Við höfum þús­undir ára af dæmum um það hvernig vald­hafar hafa notað ótta til að stýra fólki. Í gegnum árhund­ruðin hafa trú­ar­brögð verið notuð til að ala á ótta og mér finnst þetta far­ald­urs­tíma­bil hafa verið sam­bæri­legt. Þeir sem vog­uðu sér að setja ein­hver spurn­inga­merki voru umsvifa­laust orðnir villu­trú­ar­fólk. Við eigum ekki að hlýða léns­herr­unum bara í blindni. Stjórn­mála­menn vita ekki allt best og þeir eru oft bara að hugsa um að halda vinn­unni og rugga engum bátum. Ég full­yrði að ég hef legið meira yfir gögnum varð­andi Covid heldur en allir stjórn­mála­menn á Íslandi, land­læknir og sótt­varn­ar­læknir. Þetta er eflaust allt hið vænsta fólk, en þau eru ekki hafin yfir gagn­rýni og það má setja spurn­inga­merki við ákvarð­ana­tök­una.”

Guðmundi er mikið niðri fyrir og hann beygir af þegar hann er spurður hvað hafi fengið hann til að leggja í þennan slag opin­ber­lega:

„Ég lagð­ist yfir gögnin mjög fljót­lega í far­aldr­inum og fór fljótt að sjá að það væri eitt­hvað mikið rangt við margt í þessu. Þegar ég sem læknir sé hluti þar sem allt bendir til þess að það sé verið að skaða fólk verð ég að vera heið­ar­legur og tjá mig opin­ber­lega. Það sem end­an­lega fékk mig til þess að fara í það að tjá mig opin­ber­lega um þetta var þegar ég sá fyrstu gögn varð­andi barns­haf­andi konur og bólu­setn­ingar. Fór hræði­lega í mig að sjá það svart á hvítu og að eng­inn skyldi ræða um hætt­urnar sem voru aug­ljósar. Samviska mín leyfði mér ekki að þegja eftir þetta. Mér hefur á ákveð­inn hátt verið útskúfað fyrir að þora að tjá mig, en það verður að hafa það. Ég get ekki mokað því sem ég hef séð bara undir teppið og þagað,” segir Guð­mundur og heldur áfram:

„Umræða um bólefnin er auð­vitað við­kvæm, ekki síst af því að mik­ill meiri­hluti fólks lét bólu­setja sig. En þegar það átti að fara að bólu­setja börn án þess að nein gögn bentu til þess að það væri rétt held ég að margir hafi byrjað að hugsa sig tvisvar um. Lyfja­fyr­ir­tækin hafa rakað inn millj­örðum ofan í millj­arða í hagnað og saga þeirra er ekki alltaf fal­leg. Við verðum að vera gagn­rýnin í hugsun og hlusta á inn­sæi okkar, en ekki bara hlýða í blindni.”

Guðmundi var hótað fang­els­is­vist fyrir að skrifa upp á Ivermectin-lyfið í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Með því vill hann meina að honum hafi verið bannað að lækna fólk á sama tíma og margir kollegar hans hafi fengið millj­ónir frá lyfja­fyr­ir­tækjum.

„Ég er alls ekki að segja að kollegar mínir séu ekki vel mein­andi, en þegar menn þiggja millj­ónir í styrki frá lyfja­fyr­ir­tækjum eru þeir ein­fald­lega ekki óháðir.  Fólk sem hefur fengið millj­ónir í rann­sókn­ar­styrki frá lyfja­fyr­ir­tækjum er eðli máls­ins sam­kvæmt ekki frjálst og óháð. Ég veit að fólk er upp til hópa orðið þreytt á umræðum um Covid, en við verðum ein­fald­lega að gera þetta tíma­bil upp, af því að þessi far­aldur sýndi okkur ákveðna hluti sem mega ekki end­ur­taka sig. Það er ekki í lagi að banna bara upp­lýs­ingar og setja eina línu sem eng­inn má véfengja. Þegar þraut­reyndum læknum er bannað að fara eftir sann­fær­ingu sinni erum við komin á mjög hálan ís. Í raun er verið að þvinga þá til að brjóta læknaeið­inn. Ég er sér­fræð­ingur í heim­il­is­lækn­ingum til ára­tuga og lá yfir gögnum og rann­sóknum frá upp­hafi far­ald­urs­ins, en ég mátti ekki nota þær með­ferður sem allt benti til að væru bestar,” segir Guð­mundur og nefnir þar meðal ann­ars lyfið Ivermectin, sem var að hans sögn gert að sam­nefni fyrir sam­sær­is­kenn­inga­fólk og ruglu­dalla:

„Ivermectin er þraut­reynt lyf sem er nán­ast algjör­lega án auka­verk­ana og hefur verið notað í ára­tugi á millj­ónir manna. Rann­sókn­irnar bentu strax til þess að þetta til­tekna lyf væri að gefa frá­bæra raun sem ein af með­ferð­unum við Covid. En ein­hverra hluta vegna var Ivermectin gert að ein­hvers konar bann­orði. Lyf sem er með færri auka­verk­anir en pan­odil og hefur verið gefið í 4 millj­örðum skammta til mann­fólks í gegnum tíð­ina. Við hljótum að geta verið sam­mála að það sé eitt­hvað skrýtið við þessi ofsa­fengnu við­brögð gagn­vart þeim læknum sem vildu nota þetta lyf. Ég var kærður af lyfja­stofnun og mér var hótað fang­els­is­vist.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Guðmund og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi