Mannlíf óskar landsmönnum öllum innilega gleðilegan þjóðhátíðardag. Deginum verður fagnað með hátíðardagskrá í fjölmörgum bæjarfélögum. Veðrið á að halda þurru og góðu. Sólin lætur helst til sjá sig á Norður- og Austurlandi.
Í Reykjavík verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Skrúðganga verður frá Hallgrímskirkju, tónleikar, götuleikhús, dansveisla, sirkus, leiktæki, matarvagnar og fornbílasýningar í Hljómskálagarði og á Klambratúni svo fátt eitt sé nefnt.
Hér má kynna sér hátíðardagskrá Reykjavíkur.
Í Kópavogi verður hátíðardagsskrá á Rútstúni og við Salalaug frá klukkan 12. Þar verður hoppukastali, leiktæki og andlitsmálun. Skrúðganga verður frá Menntaskólanum í Kópavogi með Skólahljómsveit Kópavogs og Skátafélaginu Kópum.
Hér má kynna sér hátíðardagskrá Kópavogs.
Dagskrá Garðabæjar má sjá hér.
Dagskrá Hafnarfjarðar finnur þú hér.
Dagskrá Mosfellsbæjar finnur þú hér.
Á heimasíðu sveitarfélagsins þín ættir þú að finna allar helstu upplýsingar um hátíðarhöldin í þínu nærumhverfi.































Athugasemdir