Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sara Pálsdóttir lögfræðingur: „Komst bara fram úr rúminu til að hitta landasalann“

Sara Pálsdóttir lögfræðingur: „Komst bara fram úr rúminu til að hitta landasalann“
Sara Páls­dóttir Mynd / Aðsend

Sara Páls­dóttir, lög­fræð­ingur og dáleið­ari, segir alla geta fengið frelsi frá kvíða, skömm og sjálfs­hatri. Sara, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar hefur tekið algjöra U-Beygju í líf­inu eftir að hún fékk sjálf bata frá kvíða, fíkn og sjálfs­hatri:

„Í gegnum mitt bata­ferða­lag fékk ég sýn um að mér væri ætlað að hjálpa öðrum sem væru að glíma við það sama og ég hafði glímt við. Síðan þá hef ég verið að elta þessa sýn. Ég hef séð það í gegnum störf mín und­an­farin ár að mikið af fólki er að glíma við mikla erf­ið­leika og er fast í skömm eins og ég var. Ég er núna laus við skömm­ina og get þess vegna sagt frá öllu því sem þjak­aði mig án þess að hugsa um það. Ég fæ aldrei jafn­mikil við­brögð eins og þegar ég segi opin­ber­lega frá mínum erf­ið­ustu tíma­bilum og því sem mér fannst vera mestu beina­grind­urnar í skápnum. Fyrst hélt ég að ég gæti verið að starfa á­fram sem lög­maður, enda var ég að reka mína eigin stofu og gekk vel. Ég gerði það í á­kveð­inn tíma, en núna eru dá­leiðslan, nám­skeiðin og fyrir­lestr­arnir orðin aðal­vinnan mín, enda finn ég að lög­mennskan á ekki lengur hjarta mitt og þá er ekki til­gangur með því að vera á­fram þar. Ef maður finnur til­gang­inn svona sterkt á maður að elta það, enda er eng­inn betri en þú í ná­kvæm­lega því sem þér er ætlað að gera.“

Sara þjáð­ist í áraraðir af alkohól­isma, átröskun og miklum verkjum um allan lík­ama. Hún segir allt hafa breyst þegar hún ákvað að velja að hætta að vera fórn­ar­lamb:

„Ég trúði því bara að ég væri sjúk­dóms­fórn­ar­lamb. Að ég væri alkó­hólisti, með átröskun og króníska verki og það væri ekk­ert sem ég gæti gert. Þegar maður fest­ist í fórn­ar­lambs­hlut­verk­inu missir maður allt „power“ og er eins og lauf­blað í vindi sem getur ekk­ert gert. Þegar ég hætti að trúa því að ég væri sjúk­dóms­fórn­ar­lamb og ég hefði eitt­hvað um það að segja hvernig mín heilsa væri byrj­aði allt að breyt­ast. En þá þurfti ég líka að byrja að taka ábyrgð og gera allt sem í mínu valdi stóð til að breyta hlut­unum. Það er eng­inn sem gerir þetta fyrir mann,“ segir Sara, sem segir að mjög margir eigi í veru­lega óheil­brigðu sam­bandi við lík­ama sinn og rót vanda­mála margra sé hálf­gerð hug­sýki:

„Það er stundum ekki auð­velt að full­yrða um hvað er hænan og hvað eggið þegar kemur að hugs­unum og lík­ams­starf­semi. En teng­ingin þarna á milli er mjög sterk. Við erum ekki bara lík­ami. Við erum sál í lík­ama og ef við eigum í gríð­ar­lega óheil­brigðu sam­bandi við lík­ama okkar er óhjá­kvæmi­legt að við finnum fyrir þyngslum, verkjum eða öðru lík­am­legum ein­kennum. Með þessu nei­kvæða sam­bandi við lík­amann sköpum við mikla van­líðan í lík­am­anum og það verður til streita og álag í kerf­inu bara út af þessu óheil­brigða sam­bandi.

Þó að fólk fari í rækt­ina og reyni að fá six pack og kúlu­rass getur vel verið að það sé enn algjör afteng­ing við lík­amann og lík­am­leg líðan lag­ast ekki neitt. Ég trúi því að með því að byrja að vinna á lík­ams­hatri og nei­kvæðu sam­bandi við lík­ama okkar getum við byrjað að laga ein­kennin. Þegar lík­am­legu ein­kennin byrja að lag­ast verður svo auð­veld­ara að þróa enn betra sam­band við lík­amann og bat­inn byrjar að koma hratt.“

Sara var komin algjör­lega á botn­inn í sjálfs­hatri; fíkn og kvíða þegar hún fann frelsið og spyrnti sér upp frá botn­inum:

„Ég var með góða menntun og út á við leit allt vel út. Við hengjum sjálfs­mynd­ina gjarnan á það sem við gerum og þannig var það svo sann­ar­lega hjá mér. Á meðan ég náði próf­unum, var með menntun og leit vel út á papp­ír­unum gat ég verið full alla daga í al­gjörri af­neitun. Ég gat lært þó að ég væri búin að drekka mikið, þannig að ég gat látið þetta virka mjög lengi áður en ég neydd­ist til að gef­ast upp. Skömmin og stoltið voru svo mikil að ég hefði nán­ast frekar látið lífið en að við­ur­kenna hvernig mér raun­veru­lega leið. Á end­anum var þetta orðið þannig að ég drakk bara uppi í rúmi þangað til að ég missti með­vit­und. Ég var orðin al­gjör­lega rúm­liggj­andi af alka­hól­isma þegar ég loks­ins gerði eitt­hvað í því. Ég komst ekki út úr húsi nema bara til þess að hitta landa­sal­ann!“

Sara, segir afeitr­un­ina ein­göngu hafa verið fyrsta skrefið að raun­veru­legum bata:

„Ég man að meira að segja þegar ég kom inn á Vog í með­ferð var ég enn upp­full af hugs­unum um álit ann­arra. Ég skildi tösk­una eftir úti í bíl þannig að ég gæti hlaupið til baka og ég var svaka­lega hrædd um að sjá ein­hvern sem ég þekkti. Þannig að þó að ég væri bein­línis að deyja úr alka­hól­isma var ég eig­in­lega meira upp­tekin af því að eng­inn mæti sjá mig eins og ég raun­veru­lega var. Þessi for­rit voru rosa­lega sterk hjá mér. Svo var ég líka orðin langt leidd af átröskun og var orðin mjög veik af henni. Það tók mig tals­vert langan tíma að verða edrú og svo eftir það þurfti ég að taka á átrösk­un­inni og fór í með­ferð á Hvíta Bandinu,“ segir Sara og heldur áfram:

„Þarna var líf mitt byrjað að snú­ast við, en samt var mesta vinnan eftir, sem sneri að því að laga það sem hafði í raun ollið því að ég var með fíkn í á­fengi og sjálfs­h­atrið sem olli átrösk­un­inni. Ég var enn með brotna sjálfs­mynd, gríð­ar­lega nei­kvætt sjálfs­tal og mik­inn kvíða.Ég hafði selt mér að það eina sem ég þyrfti að gera væri að hætta að drekka og þá yrði allt í lagi. En drykkjan var bara flótti frá sjálfs­h­atr­inu og því sem var þarna undir og það fór ekki neitt. Þannig að það að hætta að drekka var bara fyrsta skrefið.“

Í til­viki Söru kom raun­veru­legur bati þegar hún byrj­aði að hug­leiða og stunda dáleiðslur:

„Fyrst þurfti ég að pína mig til þess að hug­leiða, þó að það væri ekki nema í 5 mín­útur á dag og hug­ur­inn var alveg stjórn­laus. En smám saman hófst stór­kost­legt bata­ferða­lag og hægt og rólega fór raun­veru­legt frelsi að koma til mín. Öll nei­kvæða orkan sem hafði verið föst innra með mér fór að losna og ég fór alla leið í að kynna mér allt sem sneri að und­ir­með­vit­und­inni og fór svo í kjöl­farið í nám í dá­leiðslu og lærði heilun. Ég veit að margir fara í vörn þegar maður talar um orku, en vís­indin hafa verið að sýna fram á það að allt er orka. Líkaminn okkar er gerður úr orku­ein­ingum, hugs­anir eru orka og til­finn­ingar eru orka. Við verðum að fara að nálg­ast þessa hluti úr þeirri átt líka,“ segir Sara, sem segir það að nálg­ast fólk í gegnum und­ir­með­vit­und­ina geta lagað rætur að mörgu:

„Und­ir­með­vit­undin er eins og öfl­ug­asta tölva sem til er. Und­ir­með­vit­undin geymir allar minn­ingar, hluti sem hafa setið í lík­am­anum í gegnum áföll og fleira. Þess vegna er hægt að ná gríð­ar­legum árangri í að bæta and­lega og lík­am­lega líðan með því að vinna í gegnum und­ir­með­vit­und­ina.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Söru og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi