„Það er einn maður sem hlýtur að vera heima hjá sér núna að berja enninu í borðið. Það er Gylfi Sigurðsson,“ sagði Hjörvar Hafliðason í nýjum hlaðvarpsþætti sínum Dr. Football. Í þættinum heldur Hjörvar því fram að Gylfa Sigurðssyni hafi borist tilboð frá Sádí-Arabiu haustið 2020 en fjöldi fótboltastjarna úr Evrópuboltanum mun halda til Sádí-Arabíu á næstu misserum.
„Hann var með monster-tilboð og ég veit þetta upp á tíu. Hann var með geðveikt tilboð frá Sádí haustið 2020 en af einhverjum fótboltaprinsipp ástæðum, þar sem hann var bara 31 árs, vildi hann ekki fara.“
„Hann missti af þessari peningalest,“ bætti Hjörvar við. Gylfi hélt áfram að spila með Everton í ensku úrvalsdeildinni en er hann í dag félagslaus. Gylfi hefur ekki tjáð sig opinberlega um sín næstu skref í boltanum og er því óljóst hvort hann muni spila aftur.































Athugasemdir