Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hringiður í mannhafi dauðans: Níu krömdust til bana á Hróarskeldu árið 2000

Hringiður í mannhafi dauðans: Níu krömdust til bana á Hróarskeldu árið 2000

Fyrir 23 árum síðan, þann 30. júní árið 2000, gerð­ust þeir vof­legu atburðir að níu manns krömd­ust til bana og 26 manns slös­uð­ust til við­bótar á Hró­arskeldu­há­tíð­inni þegar Banda­ríska gruggsveitin Pearl Jam kom fram á app­el­sínugula svið­inu. Allir hinir látnu voru karl­menn á aldr­inum 17 til 26 ára en auk þeirra slös­uð­ust tveir mjög alvar­lega.

Grein­ar­höf­undur, ásamt fjöl­mörgum Íslend­ingum, var á staðnum þegar atburð­irnir gerð­ust, þá tví­tugur að aldri.

Árið 2003 hafði Contactmusic það eftir söngv­ara Pearl Jam, Eddie Vedder, að 40 þús­und áhorf­endur hafi verið mættir á tón­leik­ana en um 100 þús­und miðar voru seldir á hátíð­ina það árið og því er erfitt að meta nákvæm­lega hversu margir voru saman komnir. Nokkuð hafði rignt að deg­inum og aðstæður eftir því; jörðin var ein­hvers­staðar á milli þess að vera mold og drulla.

Þegar tón­leik­arnir hófust um klukkan hálf ell­efu að kvöldi til hafði grein­ar­höf­undur komið sér kyrfi­lega fyrir við eitt af þeim lágu, boga­dregnu járn­riðum sem komið hafði verið fyrir til að hafa stjórn á mann­fjöld­anum nálægt svið­inu. Fátt annað var til að halda sér í og það var strax útséð að það yrði troðn­ingur.

Þegar tón­leik­arnir svo hófust var ógern­ingur að halda sér í nokkuð því mann­hafið minnti helst á ein­hvers­konar nátt­úru­ham­farir. Á köflum var troðn­ing­ur­inn þannig að fæturnir snertu varla jörð­ina og fólk hélst á lofti vegna þrýst­ings frá efri búkum fólks­ins í kring.

Það virt­ist ógern­ingur að reyna að koma sér aftar í gegnum linnu­lausan þrýst­ing­inn frá mann­haf­inu sem tók stefn­una á sviðið þannig að fyrr en varir fann grein­ar­höf­undur sig fremst við sviðið. Það varð fljótt greini­legt að fólkið sem gæslu­fólkið var að toga upp úr mann­haf­inu var ýmist örmagna, meitt eða við litla með­vit­und. Und­ar­legar ójöfnur mátti finna undir fót­unum en ógern­ingur var að líta niður til greina hvað þetta gæti verið en seinna kom á dag­inn að fólk hafði troð­ist undir.

Fljótt varð ljóst að það var nauð­syn­legt að kom­ast úr þvög­unni en það var ger­legt með því að mjaka sér til hliðar þar sem þrýst­ing­ur­inn var minni.

Á minnst tveimur stöðum í mann­haf­inu urðu til eins­konar hring­iður en svo virð­ist sem að ein­hver hafi dottið með þeim afleið­ingum að þrýst­ing­ur­inn bjó til keðju­verkun þar sem fólkið í kring féll svo ofan á þann sem datt. Úr varð eins­konar hola, á að giska 2-3 metrar í þver­mál, þar sem fólk við brún hennar féll ofan í hana en þeir sem voru þegar í hol­unni börð­ust við að skríða undan öðru fólki í átt að brún­inni.

Söngvarinn grét á sviðinu

Sumir tón­leika­gesta höfðu tekið upp á því að príla upp og dýfa sér ofan á mann­hafið og láta það bera sig en ein­hverjir þeirra end­uðu í hring­iðunum.

Grein­ar­höf­undur tog­að­ist í átt að einn slíkri holu á leið sinni út úr mann­haf­inu og féll í hana. Átökin sem þurfti til að kom­ast upp úr henni voru gríð­ar­leg en við brún­ina end­ur­tók sagan sig og átökin tóku við aftur.

Tón­leik­arnir voru svo stöðv­aðir. Söngvari hljóm­sveit­ar­innar grét á svið­inu og bað fólk að færa sig til baka um nokkur skref og við það varð mann­hafið við­ráð­an­legra en skað­inn var skeður. Fólk hafði látið lífið.

Eftir hátíð­ina var ráð­ist í úrbætur af hálfu aðstand­enda hátíð­ar­innar til að tryggja öryggi gesta en minnstu mun­aði að Pearl Jam hefði lagt upp laupana í kjöl­far þessa hörmu­legu atburðar.

Hró­arskeldu­há­tíðin er enn haldin árlega og ekk­ert við­líka atvik hefur orðið síðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi