Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jakub hefur áður lent í hremmingum: „Mjög fínn gaur en hefur ekki fengið mörg break í lífinu“

Jakub hefur áður lent í hremmingum: „Mjög fínn gaur en hefur ekki fengið mörg break í lífinu“
Jakub Polkowski fyrir framan ein­býl­is­hús hans. Mynd: Rúv – Arnór Fannar Rúnarsson

Mál Jakubs Polkowski hefur vakið mikla athygli und­an­farið en sýslu­mað­ur­inn á Suð­ur­nesjum sam­þykkti nauð­ung­ar­boð í ein­býl­is­hús hans á þrjár millj­ónir króna vegna tveggja og hálfs millj­óna króna skuldar Jakubs. En hver er Jakub?

Erfiðar heimilisaðstæður

Jakub er 23 ára pólskur inn­flytj­andi sem var virkur 13 ára ung­lingur sem hafði meðal ann­ars gaman af því að spila fót­bolta, þegar alvar­leg lækna­mis­tök urðu til þess að hann varð öryrki, bund­inn við hjóla­stól með þroska­skerð­ingu. Fyrir bæt­urnar sem hann fékk vegna mis­tak­anna stað­greiddi hann ein­býl­is­hús í Keflavík, á 44 millj­ónir króna en þar býr hann ásamt fjöl­skyldu sinni.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hafa heim­il­is­að­stæður Jakubs verið erf­iðar en for­eldrar hans hafa tak­mark­aðan skiln­ing á ensku og íslensku. Jakub missti ein­býl­is­hús sitt á dög­unum vegna fast­eigna­skulda og ann­arra greiðslna sem hann hafði ekki sinnt en svo fór að sýslu­mað­ur­inn á Suð­ur­nesjum sam­þykkti þriggja millj­óna króna boð í húsið á nauð­ung­ar­upp­boði en það voru feðgarnir Kristinn Guð­munds­son og Jónas Sigurður Krist­ins­son, útgerða­menn í Sand­gerði sem keyptu húsið. Bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar fór þess á leit við feðgana að þeir seldu Jakub húsið aftur, sem þeir hafa neitað.

Keflavíkurnætur

DV sagði frá því árið 2018 að Jakub hafi farið í sam­starf með Óla Geir Jónssyni, fyrrum herra Ísland og einka­þjálf­ara, er þeir héldu saman tón­list­ar­há­t­ið­ina Kefla­vík­ur­nætur það sumar. Samkvæmt frétt DV bauð Óli Geir honum að kaupa 50 pró­sent hlut í hátíð­inni á þrjár millj­ónir króna. Í frétt­inni kom fram að svo virt­ist sem Jakub hafi verið 17 ára þegar skrifað var undir samn­ing­inn og því ólög­ráða en lög­maður Óla Geirs sagði á sínum tíma að dag­setn­ingin á samn­ingnum væri röng og að Jakub hafi verið orð­inn 18 ára. Mikið tap varð á hátíð­inni og urðu ósætti á milli þeirra Óla Geirs og Jakubs en sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs náð­ust að lokum fullar sættir í mál­inu.

Óli Geir og Jakub

Flosnaði upp úr námi

Jakub stund­aði nám á starfs­braut í Keflavík en flosn­aði upp úr námi um 18 ára ald­ur­inn eftir að hann byrj­aði að hanga með vafasömum félags­skap, hóf að mis­nota eit­ur­lyf og selja. Svo fór að í fyrra var hann dæmdur í  skil­orðs­bundið 12 mán­aða fang­elsi til tveggja ára fyrir fíkni­efna­sölu, pen­inga­þvætti og brot á vopna­lögum. Bróðir Jakubs, Maciek skrif­aði færslu á Facebook þar sem hann tók upp hansk­ann fyrir bróður sinn vegna óvæg­innar umræðu um mál hans. Vísir sagði frá því í frétt en þar er vitnað í Maciek: „Hann byrjar að hanga með fólki sem kemur honum meira og meira inn í eit­ur­lyfja­heim­inn en þegar hann lendir í öllu ves­eni verður hann einn eftir og allir svo­kall­aðir „vinir“ hans hverfa.“

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er íslensku­skiln­ingur Jakubs ekki 100 pró­sent og bak­land hans nán­ast ekk­ert og því skilj­an­legt að hann hafi ekk­ert skilið í fast­eigna­gjöldum og öðrum reikn­ingum sem honum bar að greiða af hús­inu og því hafi farið svo að hann missti ein­býl­is­húsið sem hann hafði stað­greitt á sínum tíma. Heim­ild­ar­maður Mannlífs sem ekki vill koma fram undir nafni hafði þetta að segja um Jakub: „Þetta er mjög fínn gaur en hefur ekki fengið mörg break í líf­inu“.

Þegar þetta er ritað er ekki orðið ljóst hvernig mál Jakub og fjöl­skyldu endar en búið er að fresta útburði á þeim fram til ágúst en finna á félags­í­búð handa þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi