Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Strönduðu og stýrishúsið fór á kaf: Datt á punginn við að bjarga lífi sínu

Strönduðu og stýrishúsið fór á kaf: Datt á punginn við að bjarga lífi sínu

Minnstu mun­aði að illa færi þegar skip­stjór­inn og útgerð­ar­mað­ur­inn Friðgeir Hösk­ulds­son frá Drangs­nesi og áhöfn hans sem voru við rækju­veiðar í Stein­gríms­firði höfn­uðu á skeri með þeim afleið­ingum að stýr­is­húsið fór á kaf með Friðgeir inni.

„Ég næ að slá af og þá small bát­ur­inn upp á skerið.  Maður hrökk óneit­an­lega við. Strák­arnir voru með öll ljós uppi og þeir voru úti á dekki að ganga frá og þrífa. Við vorum þrír á; Halldór bróðir minn sem er búinn að vera með mér á sjó eig­in­lega alveg síðan hann var smá gutti og Heimir Gíslason var vél­stjóri.“

Í fyrstu virt­ist þetta bara vera óhapp og eng­inn í lífs­hættu en annað átti eftir að koma á dag­inn.

„Þetta var ekki gott mál sko, nema það að við sáum það strax að hann var á floti að framan en sat vel að aftan og alveg kloss-fastur svo­leiðis að ég hringi, en maður kall­aði nú ekk­ert á Gæsluna eða svo­leiðis enda hafði það ekk­ert upp á sig.“

Bátarnir sem komu að reyndu að losa þá af sker­inu en við það fóru þeir úr ösk­unni í eld­inn.

„Ég hringi eftir aðstoð í Donnu, þá Kleif­ar­bræður, og þarna kom líka Gunnvör að aðstoða okkur. Ég var svo vit­laus, ég var nú búinn að vera að þvæl­ast þarna á kajak í gamla­daga þegar ég var stráklingur hring­inn í kringum þetta sker og ég var búinn að gleyma því að það er svona glufa í Boða þannig að þar sem fram­end­inn var þar var aðeins dýpra og svo, aðeins lengra, þar grynnti aftur og svo bara veggur niður; 8 metra dýpi þar alveg við sko. Maður nátt­úru­lega mundi þetta ekki þarna í þetta skiptið, svo­leiðis.

það var hel­víti vont maður því það lenti beint á pung­inn!

Svo komu þeir og við festum í hann að framan og það nátt­úru­lega lítið pláss fyrir þá fyrir ofan skerið. Þeir kipptu í hann og hann fór af stað og upp á næsta hrygg og sat þar kloss-fastur. Hann var bara eins og sig­inn fiskur, hann datt fram af sker­inu og sat í hæl­inn. Þar með lagð­ist hann á hlið­ina og fór alveg á kaf nema hlut­inn bak­borðs­meg­inn að aftan en hann stóð upp úr.“

Þegar þarna var komið fór stýr­is­húsið að fyll­ast af sjó með Friðgeir inni. Hurðin var komin á kaf og rækju­trollið fyrir þannig að nú voru góð ráð dýr.

„Strák­arnir voru fyrir aftan stýr­is­húsið, stóðu þar og fóru svo upp á hlunn­ing­una bara. Ég var inni í stýr­is­hús­inu. Ég hélt nú alveg ró minni. Það var nú skrýtið því að ég fatt­aði það nátt­úru­lega að ég færi aldrei út um hurð­ina því að rækju­trollið það fór fram með og úti­lok­aði að ég kæm­ist þar út.“

Bróðir Frið­geirs fór þá í ham til bjarga bróður sínum. Tækin í stýr­is­hús­inu voru spring­andi í kringum hann með miklum hávaða þegar sjór­inn komst í þau og þar var bara loft­rými fyrir hann að anda í í einu horn­inu.

„Dóri bróðir, ég veit ekki hvað kom yfir hann. Hann skip­aði mér að opna glugg­ann á stýr­is­hús­inu bak­borðs­megin og ég fór svo út um hann. Hann var á kafi en það var svona loft­rými í horn­inu á stýr­is­hús­inu og ég náði að ná mér í loft þar en það var hel­víti óhuggu­legt að tækin voru að springa og allt það saman. Hávaðinn í þessu þegar sjór­inn kom í þetta.

Svo var svona rör í stýr­is­hús­inu sem tækin voru fest við og borðið. Ég náði að stíga á það og svo small ég út af því í fyrstu lotu þegar ég var að reyna að kom­ast upp og það var hel­víti vont maður því það lenti beint á pung­inn! En það jafn­aði sig allt saman.

Ég var sall­ar­ó­legur. Dóri bróðir fór eftir hlunn­ing­unni og náði að grípa í hönd­ina á mér til að aðstoða en það skilur eng­inn hvernig ég fór út því ég er nú ekk­ert lít­ill um mig. Það hefði eig­in­lega ekki átt að geta skeð að ég kæm­ist út en ég tækl­aði það eftir að ég kom öxl­unum út.“

Sem betur fer komust þeir allir heilir frá þessu ef ótalið er eitt högg á pung. Báturinn var svo dreg­inn til fjöru tveimur dögum síðar og þeir voru komnir aftur á sjó­inn tveimur mán­uðum síðar.

Friðgeir segir frá þessu í síð­asta þætti Sjóarans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi