Björn Birgisson er afar óánægður með hegðun sumra heimamanna í leik Grindavíkur og Þróttar í Lengjubikar karla í knattspyrnu.
Knattspyrnuleikur fór fram á Stakkarvíkurvelli í Grindavík í gærkvöld og var sýnt frá honum á YouTube. Svo fór að Þróttur sigraði heimaliðið 1-2. Einn af þeim sem horfði á leikinn á YouTube var Björn Birgisson, samfélagsrýnir með meiru og Grindvíkingur. Í færslu á Facebook lýsti hann dónalegri hegðun ákveðinna áhorfenda sem spiluðu sírenuvæl í hvert skipti sem leikmaður Þróttar meiddist og þurfti aðhlynningu. Er Björn allt annað en ánægður með slíka hegðun og kallar þetta „taktlausan dónaskap“. Færsluna má lesa í heild hér fyrir neðan:
„Sírenuvæl.
Horfði á leik Grindvíkinga og Þróttar á YouTube í kvöld.Veitti því athygli að í hvert sinn sem leikmaður úr gestaliðinu lá á vellinum og þurfti einhverja aðhlynningu þá barst sírenuvæl úr stúkunni, rétt eins og sjúkrabíll væri að nálgast í forgangsakstri.Svona lágkúra er eingöngu sýnd í niðurlægingar- og niðrunarskyni gagnvart hinum meidda leikmanni sem liggur á vellinum.Þetta er taktlaus dónaskapur og eingöngu niðurlægjandi fyrir þá fylgjendur heimaliðsins sem hegða sér svona.Ærlegt fólk vill ekki sitja í stúku með svona fólki.“






























Athugasemdir