Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Móðir ósátt við endalausa bið eftir greiningu: “Ég er pirruð, vonsvikin og finn fyrir vonleysi”

Móðir ósátt við endalausa bið eftir greiningu: “Ég er pirruð, vonsvikin og finn fyrir vonleysi”
Hvamms­tangi

Sólveig Hulda Benja­míns­dóttir skrif­aði færslu á Facebook þar sem hún talar um þá erf­ið­leika sem hefur mætt henni og eig­in­manni hennar við að fá grein­ingu handa ungum syni þeirra. Gagn­rýnir hún opin­bera kerfið harð­lega.

Sólveig sagð­ist vilja létta á hjart­anu í byrjun færsl­unnar. „Ég er pirruð, von­svikin og ég finn fyrir von­leysi.“ Segir hún son sinn hafa frá upp­hafi sýnt frá­vik í þroska en þegar hann hóf leik­skóla­göngu sína eins ár gam­all fóru kenn­arar og leið­bein­endur hans einnig að taka eftir frá­vikum hjá honum. Þá hafi grunur vaknað um að hann væri á ein­hverfu­róf­inu þó að eng­inn hafi þorað að full­yrða neitt um það. „Þegar hann var um það bil tveggja ára, eða um það leiti sem hann byrj­aði að reyna að ganga, byrj­aði fyrsta holl grein­ing­ar­ferl­is­ins. Það byrj­aði á bið eftir sál­fræð­ingi… langri bið. Leik­skól­inn ýtti og ýtti á sál­fræð­ing­inn sem þá var með samn­ing við sveit­ar­fé­lagið um að taka sál­fræði­mat á barn­inu.“

Sólveig segir að erf­ið­lega hafi gengið að fá að hitta sál­fræð­ing­inn því hann hafi verið „eig­in­lega hættur og fáir aðrir sál­fræð­ingar áttu hjá sér grein­ing­ar­tæki fyrir svona lítil börn.“ Sagði hún að í hverri viku hefðu þau hjónin og leik­skól­inn ýtt á eftir þessu en að lítið sem ekk­ert hefði gerst. „Það var lýj­andi að reka á eftir þessu alltaf… ann­að­hvort að hringja á sveit­ar­fé­lagið eða mæta þangað og spyrj­ast fyrir um þetta.“ Sagði hún að sonur hennar hafi verið orð­inn þriggja ára þegar sál­fræð­ing­ur­inn komst loks í að gera matið en að þá hafi tekið við bið eftir skila­fundi með sál­fræð­ingnum. „Aftur byrj­aði sami pakk­inn – sím­hring­ingar, tölvu­póstur og fleiri sím­hring­ingar. Eftir hell­ings bið fengum við sál­fræði­matið… minnir að það hafi verið í jan­úar á þessu ári.“ Segir hún að málið hafi verið sent um leið á Ráðgjafa- og grein­ing­ar­stöð­ina en að þá hafi þau byrjað annað ferli. „Að spyrj­ast fyrir um hvenær barnið kæm­ist að hjá þeim.“ Eftir að hafa beðið í nokkra mán­uði eftir svörum hjá Ráðgjafa- og grein­ing­ar­stöð­inni fengu þau hjónin loks svar á dög­unum:

„Það er í dag um 15-16 mán­aða bið­tími fyrir þann for­gangs­hóp sem þessi drengur er í. Honum var vísað í jan­úar á þessu ári þannig að það er ennþá langur tími fram á grein­ingu, verður von­andi vorið 24.“

Sólveig er síður en sátt við svörin:

„Ég bara trúi því varla að þetta séu svörin. Að við þurfum að bíða í heilt ár í við­bót eftir grein­ing­unni hans er ótrú­legt miðað við það sem á undan hefur gengið. Við vorum kannski bara ein­stak­lega óheppin… ég veit það ekki samt. Ég veit bara að þetta hefur verið alveg ólýs­an­lega mikið álag. Eins og það sé ekki nógu mikið álag að eiga ein­hverft barn þá bætt­ust þarna fullt af áhyggjum yfir bið­inni hjá “kerf­inu.” Að vera hrædd um að hann sé að gleym­ast. Að vera með stans­lausan kvíða yfir þessu er ekki gaman, ég myndi ekki óska mínum versta óvini að hafa þennan kvíða­hnút í mag­anum. Í hrein­skilni sagt þá held ég að þessi kvíði fari aldrei því ég treysti því ekki að opin­bera kerfið sjái vel um Kela.“ Segir hún að það sé einnig sárt að hafa aldrei verið sagt frá þeirri aðstoð sem sonur þeirra átti rétt á, þau hafi frétt af aðstoð­inni frá öðru fólki.

Segir Sólveig að lokum að hún hafi viljað skrifa færsl­una í von um að hún geti hjálpað fólki í sömu stöðu. Hægt er að lesa færsl­una í heild sinni hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi