Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu?

Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu?
Mynd/Envato Elements

Vin­sælasta spurn­ingin þegar hinir svoköll­uðu sum­ar­frís­mán­uðir nálg­ast er án efa hvað eigi að gera í sum­ar­frí­inu. Henni fylgir ákveðin pressa og felur í sér aðrar und­ir­liggj­andi spurn­ingar: Hvað ætlar þú að gera sem er skemmti­legt, upp­á­tækja­samt, öðru­vísi og spenn­andi? Í henni felst einnig full­yrð­ingin um að áunnið orlofið verði leyst út á sum­ar­mán­uð­unum. Jafn­framt er óskrifuð regla að bannað sé að svara ein­hverju leið­in­legu.

Ég er ekki sum­ar­frí­stýpan og þar af leið­andi þreytir spurn­ingin mig. Iðulega svara ég „leið­in­lega“ og veld við­mæl­anda ákveðnum von­brigðum. Sko nei, ég ætla ekki að gera neitt … sem þykir frá­sagn­ar­vert né heldur er ég þess vís á að leysa út orlofið mitt í þær vikur sem kall­ast sumar á Íslandi.

Hugs­an­lega hefur mér mislukk­að­ist að læra að taka sum­ar­frí. Yfir skóla­árin voru sumrin alla jafna ver­tíð. Tíminn var nýttur til að safna í forða og frek­ari fjár­ráða fyrir vet­ur­inn. Eftir skól­ann mistókst mér vilj­andi eða óvilj­andi að eign­ast börn, svo ég er og hef aldrei verið háð skóla­fr­íum barna eða leik­skóla­lok­unum. Þar af leið­andi hef ég ætíð mátt sæta rest með frí í júlí, og annað hvort þurft að leysa fríið mitt út fyrr eða seinna. Þrátt fyrir allt er sum­arið upp­á­halds­tím­inn minn.

Margt er líkt með lifn­að­ar­háttum Íslend­inga og bjarna; á sumrin vökum við – á vet­urna liggjum við í híði. Búsetan á norð­ur­hveli er æði strembin; dimmir vetr­ar­mán­uð­irnir og kuld­inn gera það að verkum að úti­vera er síður eft­ir­sókn­ar­verð og allt verður tor­veld­ara. Dagurinn er svo stuttur að varla tekur því að fara á fætur. Mér dytti því seint í hug að ferð­ast til útlanda á besta tíma árs­ins. Satt best að segja finnst mér hug­myndin glapræði, þrátt fyrir rign­ing­una og rokið á suð­vest­ur­horn­inu. Að fara til útlanda „bara af því bara“ finnst mér ruglað bruðl. Sér­stak­lega í ljósi þess að landið okkar er á heims­mæli­kvarða og nátt­úruperlurnar margar. Ef sól­ar­þyrstir eru við að skrælna má alltaf sækja sól­ina á Norður- eða Aust­ur­landið og hit­ann sömu­leiðis.

Á meðan sam­fé­lags­miðla­færslur frá vinum sýna mér strand­lengjur og fjar­læg höf þá er öfund mín lítil sem engin. Mér finnst fátt betra en að setj­ast út í garð og horfa á sum­ar­blómin og ógróð­ur­inn vaxa. Ég kýs að nota árs­tím­ann til að hanga lengur úti með hund­inum á kvöldin, njóta bjartra nátta og mið­næt­ur­sól­ar­innar. Hafið þið ein­hvern tíma tekið eftir því að alltaf í kringum mið­nætti kemur blanka­logn – eins og vind­ur­inn sé lagstur til hvílu eftir langan dag?

Á meðan sund­lauga­garð­ur­inn á Tenerife lokar um klukkan átta eru flestar laugar lands­ins opnar til klukkan tíu. Ég elska að eiga auð­veld­ara með að vakna til vinnu og þurfa ekki að skafa eða hanga í umferða­teppu. Ég elska að stökkva niður í bæ og hitta kæran vin upp úr þurru eða rífa fram grillið og sötra á svöl­unum. Ég dýrka að þurfa ekki að klæð­ast sokkum og á sama tíma finna fyrir fresku og köldu loft­inu. Þess vegna vel ég að vinna í „sum­ar­frí­inu“ og tek mér svo almenni­legt frí frá amstr­inu á vet­urna.

Sumarið fyrir mér er frí frá rest af ári.
Og til að svara spurn­ing­unni þá ætla ég að blómstra; af því að lífið er loks­ins, eftir langan vetur, orðið bæri­legt.

Þennan pistil og fleiri má lesa í nýjasta tölu­blaði Mannlífs:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi