Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Greinargerðin umdeilda: „Reikningar upp á tíu milljarða sem engar skýringar fengust fyrir“

Greinargerðin umdeilda: „Reikningar upp á tíu milljarða sem engar skýringar fengust fyrir“
Þór­hildur Sunna og Birgir Ármanns­son

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, birti í gær­kvöldi grein­ar­gerð Sigurðar Þórð­ar­sonar, fyrrum setts rík­is­end­ur­skoð­anda, um Lind­ar­hvol sem stjórn­ar­and­staðan hefur sagt hafa verið stungið ofan í skúffu og reynt að halda leyndri.

Í tals­verðan tíma hefur Sigurður Þórð­ar­son, fyrr­ver­andi settur rík­is­end­ur­skoð­andi í mál­efnum Lind­ar­hvols, reynt að fá grein­ar­gerð sína birta og hafa þing­menn í minni­hluta Alþings kallað eftir því að hún verði birt. Þrátt fyrir mik­inn þrýt­ing frá almenn­ingi og þing­mönnum hefur Birgir Ármanns­son, for­seti Alþingis, hingað til neitað öllum slíkum beiðnum og borið fyrir sig að um vinnu­skjal sé að ræða en ekki fullunna grein­ar­gerð.

Birgir þarf ekki að þola þann þrýt­ing lengur þar sem Þór­hildur Sunna, þing­maður Pírata, fékk hana senda í per­sónu­legt póst­hólf sitt og birti hana í fram­hald­inu á heima­síðu Pírata. Mannlíf hafði sam­band við Þórhildi til að ræða málið.

„Mér fannst það liggja í augum uppi að það þyrfti að birta þessa grein­ar­gerð. Það liggja fyrir þrjú lög­fræði­á­lit sem segja til um að það eigi að birta þessa grein­ar­gerð og tvær ákvarð­anir for­sætis­nefndar um að það eigi að birta þessa grein­ar­gerð. Ásamt ein­lægum og skýrum vilja Sigurðar Þórð­ar­sonar, manns­ins sem skrif­aði hana. Þetta liggur allt fyrir og í raun­inni það eina sem stóð í veg­inum á þetta yrði birt var afstaða Birgis Ármanns­sonar,“ sagði Þór­hildur Sunna um mik­il­vægi þess að grein­ar­gerðin yrði birt. „Þarna eru reikn­ingar upp á tíu millj­arða sem engar skýr­ingar feng­ust fyrir. Það er mjög athygl­is­vert. Síðan auð­vitað þetta með söl­una á Klakka þar sem hann kemst að þeirri nið­ur­stöðu að Klakki hafi verið seldur fyrir um helm­ing af and­virði sínu,“ sagði hún um þau atriði sem standa upp úr eftir lest­ur­inn.

Þór­hildur Sunna reiknar með fyr­ir­sjá­an­legum við­brögðum rík­i­s­tjórn­ar­innar. „Þau eiga eftir að gera hvernig þessi grein­ar­gerð var birt að höf­uð­atriði og reyna hunsa eins og þau geta inni­hald grein­ar­gerð­ar­innar, eins og þau gera með allt. Þetta er mjög algeng taktík hjá þeim. Það er erfitt að kalla þau til ábyrgðar á þessu þegar þing er ekki að störfum, nú vonar maður að fjöl­miðlar sjái um þetta.“

„Ég get ekki tjáð mig um það ennþá, ég er ekki búin að skoða þetta nógu ítar­lega. Ég væri til að taka fund um þetta með sér­fræð­ingum og fólki mér fróð­ara í svona gjörn­ingum, “ sagði þing­mað­ur­inn um hvort að lög hafi verið brotin.

„Ég fylgist spennt með hvað kemur út úr vinnslu þess­arar til­vís­unar rík­is­sak­sókn­ara og ég væri auð­vitað til í að rík­i­s­tjórnin myndi heita því að fara í rann­sókn á því í hvað þessir tíu millj­arðar fóru. Það er ekki ásætt­an­legt að við vitum ekki til hvers tíu millj­arðar af almannafé voru not­aðir,“ sagði Þór­hildur Sunna varð­andi hver næstu skref ættu að vera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi