Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Frosti sakar Eddu um að hafa sett söfnunarfé í vasann: „Siðblindir narsissistar fá ekki kvíðaköst“

Frosti sakar Eddu um að hafa sett söfnunarfé í vasann: „Siðblindir narsissistar fá ekki kvíðaköst“

Frosti Logason full­yrðir að áfrýj­un­ar­réttur Eddu Falak sé útrunn­inn án áfrýj­unar hennar. Edda safn­aði fyrir rétt­ar­höldum í gegnum Karolina Fund-söfn­un­ar­síð­una.

Frosti Logason birti rétt í þessu bút úr hlað­varps­þætti sínum, Harma­geddon þar sem hann ber Eddu Falak, fyrrum blaða­konu og hlað­varps­stjórn­anda, hörðum sökum. Segir Frosti að áfrýj­un­ar­réttur hennar í meið­yrða­máli gegn henni sé lið­inn en hún hafði safnað fyrir honum með styrkjum frá fólki inni á Karolina Fund-söfn­un­ar­síð­unni.

Edda Falak tap­aði meið­yrða­máli en móðir við­mæl­anda hennar í hlað­varps­þætt­inum Eigin Konur, kærði hana fyrir að spila upp­töku í þætt­inum, af meintu and­legu ofbeldi móð­ur­innar gagn­vart dóttur sínni, sem var í við­tali hjá Eddu en dóttirin hafði tekið þetta upp þó nokkrum árum áður. Var Eddu gert að greiða 400.000 krónur í miska­bætur auk máls­kostn­aðar. Ákvað hún þá að áfrýja mál­inu til Lands­réttar og hóf söfnun fyrir lög­fræði­kostn­að­inum í kjöl­farið. Upp­runa­lega setti hún markið á 1,5 milljón króna en þegar því mark­miði var náð ákvað Edda að hækka markið upp í 2,5 millj­ónir króna, til að standa straum að lög­fræði­kostn­að­inum sem fylgdi áfrýj­un­inni.

Í nýju broti úr hlað­varps­þætti Frosta, Harma­geddon, fer hann yfir mál Eddu og söfnun hennar á Karolina Fund. Þegar hann hefur gert það, kemur alvar­leg full­yrð­ing frá Frosta:
„Stað­reyndir er sú að áfrýj­un­ar­frest­ur­inn er lið­inn og mál­inu hefur ekki verið áfrýjað en ég reyndar veit það að Edda sá sóma sinn í að greiða miska­bæt­urnar, 400.000 þús­und krón­urnar til móð­ur­innar og lög­mann­inum. Hún hefur sem sagt efnt dóm hér­aðs­dóms og hefur þannig afsalað sér rétt til áfrýj­unar til Lands­réttar. Sem að þýðir að tveggja og hálfs milljón króna söfn­unin hefur gjör­sam­lega verið svikin. Hún vissu­lega sá sóma sinn í greiða það sem hún var dæmd í hér­aðs­dómi en það hefði hún nátt­úru­lega átt að greiða úr eigin vasa, þetta er hennar lög­brot og hún var ekki að biðja fólk að safna fyrir því sem hún var búin að skíta upp á bak með. Hún var að biðja fólk að safna pen­ing því að stelpan vildi áfrýja til Lands­réttar.“

Frosti biður svo fólk að gefa Eddu gott klapp fyrir að hafa greitt miska­bæt­urnar og bætir við: „Enda veit hún að það eru aðrar og fleiri kröfur sem hanga yfir hausnum á henni og kannski ekki gott að kom­ast út úr svona kröfum sem hér­aðs­dómur er búinn að dæma þig til að greiða.“ Segir hann að tvær og hálf milljón sem hún hafi safnað í gegnum Karolina Fund sé tölu­vert meira en það sem hún þurfti að borga í miska­bætur og til lög­manns­ins en hann seg­ist ekki vita hvað Edda hafi gert við rest­ina: „Hvað ætli hún hafi gert við rest­ina af pen­ingnum? Ja, við vitum það auð­vitað ekki en hún er alla­vega búin að vera mikið í útlanda­ferðum,“ segir Frosti og birtir skjá­skot af Instagram-síðu Eddu þar sem hún hefur birt myndir úr ferða­lögum sínum und­an­farið. Frosti les svo upp texta sem Edda skrif­aði við eina ferða­mynd­ina en þar stóð „Hef ekki fengið kvíða­kast síðan ég lenti“. Frosti: „En málið er að sið­blindir nars­issistar fá ekki kvíða­köst, sið­blindir nars­issistar eru sam­visku­lausir en ef ég væri venju­leg mann­eskja myndi ég örugg­lega vera í kvíða­kasti yfir því að ég væri búin að láta safna fyrir mig 2,5 millj­ónum og svíkja það. Að ljúga, svíkja og stela veldur kvíða.“

Í lok klipp­unnar seg­ist Frosti vita að enn finn­ist fólk sem telji Eddu vera mikla bar­áttu­konu: „Ég veit að það ennþá fólk þarna úti sem heldur og vill trúa því að Edda Falak hafi hrein­lega bara verið í rétt­læt­is­bar­áttu og er mjög rétt­sýn mann­eskja en það hefur kannski ekki heyrt allar sög­urnar og stað­reyndir máls­ins um það hvernig mann­eskjan vann og hvernig hún var að not­færa stöðu sína til að græða pen­inga og lifa í sviðs­ljós frægðar og frama.“

Ekki náð­ist í Eddu Falak við gerð frétt­ar­innar, þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir.

Brotið má sjá hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi