Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skandallinn sem skók KSÍ: „Ég hef engan áhuga á því að röfla við femínistana“

Skandallinn sem skók KSÍ: „Ég hef engan áhuga á því að röfla við femínistana“

Árið 2005 var Pálmi Jónsson sagður hafa farið á stripp­stað­inn Rauðu Mylluna í Sviss og borgað þar fyrir kampa­vín sem kost­aði 3,2 millj­ónir króna á þáver­andi gengi og notað til þess greiðslu­kort KSÍ. Málið rataði þó ekki í fjöl­miðla fyrr en árið 2009.

„Ég er algjör­lega sak­laus, það er alveg á hreinu. Af minni hálfu fóru þessi við­skipti ekki fram heldur var kortið mis­notað. Ég hef ekki verið að stunda svona staði, þekki ekk­ert hvað þar fer fram og drekk ekki einu sinni kampa­vín,“ sagði Pálmi Jónsson, þáver­andi fjár­mála­stjóri Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands, í sam­tali við DV árið 2009 um málið.

Geir Þor­steins­son, þáver­andi for­maður KSÍ, sagði að málið hefði verið afgreitt innan KSÍ og studdi sinn mann. Jafn­framt hefði Pálmi greitt til baka þá fjár­hæð sem fór út af kort­inu í Sviss. Ýmsir vildu þó að Pálma yrði sagt upp störfum.

„Háttsemi þessa manns er ótæk og fyrir neðan allar hellur að við­kom­andi hafi yfir höfuð farið inn á svona stað. Í okkar huga skiptir það engu máli hvaða greiðslu­kort voru notuð eða hvernig, að maður í þess­ari stöðu, á vegum íþrótta­hreyf­ingar, hafi farið inn á svona stað sem tengdur er glæp­a­starf­semi er óboð­legt. Stjórn­end­urnir verða að axla ábyrgð og segja af sér,“ sagði Guðný Gúst­afs­dóttir, þáver­andi tals­kona Fem­inista­fé­lags Íslands, um málið í DV.

Pálmi gaf sjálfur lítið fyrir umræð­una sem mynd­að­ist í kjöl­farið og sagð­ist vera fjöl­skyldu­maður. „Þessi umræða er bara asna­leg. Mér finnst umræðan í minn garð hafa verið ósann­gjörn og hörð en ég er ekk­ert að væla yfir því. Vitandi það að ég er sak­laus er ég mjög rólegur yfir þessu. Ég reyni að láta þetta ekki trufla mig en auð­vitað gerir það það samt. Það er alltaf slæmt að verða fyrir svona slæmu umtali. Auðvitað hefur þetta líka tekið á kon­una mína og börnin, þau eru að sjálf­sögðu leið að fá svona árásir á pabba sinn.“ 

Sviss­neskir fjöl­miðlar fjöll­uðu um málið á sínum tíma að sögn DV og voru frá­sagnir þeirra á þá leið að Pálmi hefði vissu­lega verið sá ein­stak­lingur sem not­aði kortið, keypt kampa­vín og þá hafði hann sést í fylgd þriggja rúss­neskra kvenna. DV hafði einnig eftir ónefndum stjórn­ar­manni KSÍ að ferðir á stripp­staði væru algengar innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar í kringum ráð­stefnur.

„Hvort sem um er að ræða að mað­ur­inn hafi notað kortið til að kaupa kampa­vín fyrir lægri upp­hæð, og það síðan straujað aftur, eða að hann hafi vilj­andi eða í vín­æði eytt hærri upp­hæðum en hann kannski vildi gang­ast við. Hvort sem hann not­aði kortið vinnu­veit­anda síns með­vitað eða óvart. Mín per­sónu­lega skoðun er að fólk ætti að láta það ógert að kaupa mann­eskjur yfir höfuð, sama í hvaða til­gangi það er. Og ekki halda því fram að þetta sé bara vinnu­samn­ingur,“ sagði Silja Bára Ómars­dóttir, kenn­ari við Háskóla Íslands, á heima­síðu sinni árið 2009. Þarna er Silja að vísa í það að í mörgum til­fellum þegar fólk kaupir kampa­vín á stripp­stöðum að það sé í raun að kaupa vændi.

„Ég hef engan áhuga á því að röfla við femínistana, þær starfa bara svona og nýta greini­lega hvert tæki­færi til að koma sínum skoð­unum á fram­færi,“ sagði Pálmi um þá kröfu að hann ætti að segja af sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni