Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einar Vilberg: Varð næstum því söngvari Stone Temple Pilots og ný plata með Dead Eyed Creek

Einar Vilberg: Varð næstum því söngvari Stone Temple Pilots og ný plata með Dead Eyed Creek
Mynd / Einar Vilberg

Einar Vilberg hyggur á útgáfu nýrrar plötu á næst­unni með hljóm­sveit sinni Dead
Eyed Creek.

Platan mun heita Out of Phase og skartar alls 11 lögum. Ásamt Einari er
hljóm­sveitin skipuð Job Bos (Satyricon), Norman Lonhard (Triptycon) og Max Blok
en úr verður hljóm­fögur rokktón­list með þungum und­ir­tóni.

Mynd / Dead Eyed Creek

Sveitin var stofnuð á meg­in­land­inu haustið 2019 þegar Job setti sig í sam­band við
Lonhard með það fyrir aug­unum að stofna hljóm­sveit þar sem tak­markið væri að
semja tón­list eins og hann hafði alist upp við, sem er nokkur kúvend­ing frá
þung­arokks­bönd­unum sem þeir höfðu verið í áður. Skömmu áður en fyrstu upp­tökur hófust fengu þeir bassa­leik­ar­ann Max Blok til liðs við sig en eftir að hafa prófað nokkra söngv­ara duttu þeir niður á Einar í gegnum umboðs­mann Einars og Sólstafa, Erin Lynch.

Einar féll vel í kramið hjá hljóm­sveit­inni þar sem hann býr yfir miklu raddsviði auk þess að vera hæfi­leik­a­ríkur gít­ar­leik­ari sem sann­að­ist heldur betur þegar minnstu mun­aði að hann yrði ráð­inn söngv­ari Stone Temple Pilots árin 2016-17.

Einar sam­þykkti að byrja á að semja eitt lag með Dead Eyed Creek sem gekk það
vel að hann gekk til liðs við sveit­ina. Umrætt fyrsta lag heitir Set Me Free og er
aðgengi­legt á YouTube en tón­list­ar­mynd­bandið var unnið af Matt Mahurin sem
meðal ann­ars hefur gert mynd­bönd fyrir sveitir eins og U2, Metallica, Alice in
Chains, R.E.M. og Tom Waits. Banda­ríska leik­konan Ruby Modine (Shamel­ess) fer
með aðal­hlut­verk í mynd­band­inu.

Hljóm­sveitin hyggst fara á tón­leika­ferða­lag í kjöl­far útgáf­unnar og þar sem með­limir
sveit­ar­innar eru spenntir að heim­sækja Ísland er lík­legt að við getum séð
hljóm­sveit­ina á sviði hér áður en langt um líður.

Stone Temple Pilots

Það er kannski ekki á allra vit­orði en minnstu mun­aði að Einar yrði söngv­ari Stone
Temple Pilots.

Eftir frá­fall Scott Weiland söngv­ara STP árið 2015 fór sveitin að leita sér að
söngv­ara til að bera kyndil sveit­ar­innar áfram. Árið 2016 benti Stefán, bróðir Einars,
honum á að hljóm­sveitin væri að leita sér að söngv­ara og hann ætti að gefa kost á
sér sem hann svo gerði.

Mynd / Einar Vilberg

Af tug­þús­undum sem sótt­ust eftir stöð­unni stóð Einar að lokum uppi sem einn þriggja sem valið stóð á milli. Ekkert heyrð­ist frá sveit­inni í um hálft ár en einn dag þegar Einar stóð við grillið barst honum tölvu­póstur.

„Ég varð bara grár í framan þegar ég fæ allt í einu tölvu­póst frá umboðs­manni STP þess efnis að bandið kunni að meta það sem það hafi heyrt og vilji heyra meira. Þeir biðja mig um að syngja eitt eða tvö lög í við­bót og vilja fá sendar myndir.“

Einar söng inn á þrjú lög til við­bótar og sendi ásamt myndum til Los Angeles. „Eftir
það gerð­ist allt frekar hratt og dag­inn eftir að ég hafði sent þeim mínar útgáfur fékk
ég boð um að koma til L.A, hitta hljóm­sveit­ina og fara í áheyrnaprufur.“

„Stuttu síðar hringdi Dean DeLeo í mig og sagði mér að þeir væru mjög spenntir
fyrir þessu því þeim þætti èg vera með eina bestu rödd sem þeir hefðu heyrt.“
Áheyrnapruf­urnar fóru fram í stúdíó 606, sem er í eigu Dave Grohl (Foo Fighters /
Nirvana). Þegar komið var í stúd­íóið blöstu við gull- og plat­ínu­plötur fyrir þær
fjöl­mörgu plötur sem Nirvana og Foo Fighters hafa gefið út.

Mynd / Einar Vilberg

„Gamla Neve upp­töku­borðið úr Sound City, sem Neverm­ind var tekin upp á, var inni í control her­berg­inu og ég fékk aðeins að fikta í því,“ segir Einar, sem er mennt­aður hljóð­maður og hafði sjálfur á þessum tíma starf­rækt hljóð­ver í fjölda ára.
„Það var súr­r­eal­ískt þegar við byrj­uðum að spila og fyrir mig að heyra gít­ar­inn í fyrsta lag­inu „Big Empty“ fylla her­bergið. Þegar ég var far­inn að gefa í og öskra aðeins í fyrsta lag­inu sá ég Deleo bræð­urna slamm­andi og bros­andi við hlið­ina á mér í góðum fíl­ing.“

Eftir vel heppn­aðar áheyrnaprufur gekk Einar sáttur út úr Stúdíói 606 og seg­ist fyrst
og fremst vera þakk­látur fyrir þessa lífs­reynslu sem hann hafi fengið að upp­lifa. „Að
hafa verið í þriggja manna hópi sem þeir völdu per­sónu­lega úr 40.000 umsóknum
er lík­lega mesta hrós sem ég hef fengið sem söngv­ari og tón­list­ar­maður.“

Einar Vilberg ætti að vera íslenskum rokkunn­endum kunn­ugur en hann, ásamt
bróður sínum, stofn­uðu hljóm­sveit­ina Noise árið 2001 og fóru að gára vatn
rokksen­unnar hérna heima, þá aðeins 15 ára gamlir. Auk þess að spila með Noise
og að gefa út tón­list undir eigin nafni hefur Einar verið áber­andi und­an­farin ár í
ýmsum tri­bute verk­efnum ásamt Franz Gunn­ars­syni úr Ensími / Dr. Spock og
hefur einnig rekið hljóð­verið Hljóð­verk. Hægt er að sjá Einar og Franz á fyrsta
mið­viku­degi hvers mán­aðar á sér­stökum Grunge kvöldum á rokk­staðnum Lemmy
við Aust­ur­stræti.

Eftir að hafa samið og gefið út 6 plötur með hljóm­sveit sinni NOISE, tvær sóló­plötur,
fjöldan allan af smá­skífum, ásamt því að hafa pródúserað fleiri tugi platna fyrir
annað tón­list­ar­fólk og farið í fjöl­mörg tón­leika­ferða­lög erlendis er Einar þessa
dag­ana að gera tón­list undir eigin nafni og með nýju hljóm­sveit sinni Dead Eyed
Creek ásamt öðrum sam­starfs­verk­efnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi