Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndband: Pabbi Ásmundar stefnir bróður sínum í háska með gröfu

Myndband: Pabbi Ásmundar stefnir bróður sínum í háska með gröfu
Ásmundur Einar og Ása Skúla­dóttir – myndin er sam­sett

Eins og Mannlíf greindi fyrst frá þá hafa ríkt harðar fjöl­skyldu­deilur í Dala­byggð vegna umsvifa og gjörða Daða Ein­ars­sonar og sonar hans, Ásmundar Einars Daða­sonar ráð­herra. Deilt er um jörð­ina Lamb­eyrar sem var í eigu átta systk­ina, afkom­enda Einars Valdi­mars Ólafs­sonar.

Skúli Ein­ars­son, bróðir Daða, er eitt syskin­anna sem leystu til sín jörð­ina. Eftir að deilur hafa staðið árum saman ákváðu dætur hans að grípa til þess örþrifa­ráðs að stofna hlað­varp til þess að lýsa sinni hlið á mál­inu. Nafn hlað­varps­ins er Lömbin þagna ekki. Syst­urnar þrjár rekja þar atburða­rás sem er vægt sagt mögnuð og hlaðin ógn­ar­við­burðum og áhuga­leysi yfir­valda. Lýst er inn­broti Ásmundar Einars í íbúð­ar­hús á jörð­inni. Þá segir frá því að hlassi af skít var sturtað við húsið og reynt að grafa vatns­lagnir í sundur.

Nú hafa þær systur birt mynd­band sem þær segja að sýni Daða Ein­ars­son, föður Ásmundar Einars, og Valdimar Ein­ars­son grafa vatn­leiðslur í sundur. Í mynd­band­inu, sem Skúli faðir þeirra systra tekur upp, er talað á niðr­andi máta til Skúla og hægt að færa rök fyrir því að hann sé í hættu meðan mynd­bandið er tekið upp.

Hægt er að sjá mynd­bandið hér fyrir neðan:

Í til­kynn­ingu til fjöl­miðla segja systur eft­ir­far­andi:

„Þeir Daði og Valdimar koma með stóra gröfu sem við vitum ekki hvort þeir hafi rétt­indi á. Númerið á gröf­unni var flett upp og þá kom í ljós að hún var í eigu Arion banka og skráð á Þverholt ehf., sem er eitt af mörgum félögum Daða sem hefur farið á haus­inn. Þá byrja þeir að grafa upp túnin og mark­miðið var að slíta upp vatns­veitu. Stoppa vatnið þannig að það færi ekk­ert vatn á Nýju Lambeyra, þetta var fyrsta helgin sem leigj­endur voru í hús­inu það sumar. Það er fátt sem þeir þola verr en þegar húsið er í leigu. Þeir finna ekki hvar leiðslan er og byrja að grafa á fullu. Faðir systr­anna heyrir af þessu, kemur og fer ofan í skurð­inn. Faðirinn er djúpum skurð­inum. Daði er á gröf­unni og Valdimar til hliðar. Þeir töl­uðu mikið niður til pabba. Fólk sem sá video-ið varð reitt.

Þeir grófu ekki á meðan pabbi fórn­aði sjálfum sér til að reyna að stoppa þá. Enginn hafði beðið þá um að gera þetta. Pabbi okkar var dauð­þreyttur, þetta ástand stóð yfir í margar klukku­stundir því þeir fundu ekki vatns­leiðsl­una. Bóndi úr dalnum kom og reyndi að tala um fyrir þeim, en þeir héldu bara áfram. Það var hringt á lög­regl­una í byrjun og þeir sögðu, „Við komum ekki nema það verða lík­ams­meið­ingar“. Það eru lög fyrir vatns­veitur – þær er mjög ólög­legt að skemma. Pabbi hringdi í lög­reglu­stjór­ann í Borga­nesi og þá sagði hann „Við ætlum bara að kæra þig fyrir að vera trufla störf lög­regl­unnar með öllum þessum til­kynn­ingum“. Kannski tengj­ast þessi orð eitt­hvað þeim ítökum sem að Ásmundur hefur í Borga­nesi. Pabbi okkar tók vel í það að hann yrði kærður því þá yrði fram­ganga lög­regl­unnar rann­sökuð, en þá bakk­aði lög­reglan með það og sagði “nei nei, við förum ekk­ert að gera það”.

Daði og Valdi ljúga að frænda sínum (Daði Guð­björns­son list­mál­ari) sem var í húsi á svæð­inu (Dönu­stöðum) að þeir væru að laga dælu. Það er engin dæla á þessum stað og því auð­velt að sanna að þeir voru að ljúga. Föð­ur­systir okkar reyndi að útskýra það en Daði Guð­björns­son neit­aði að hlusta á hana. Í lok var svo þetta gert við á kostnað Lamb­eyra­systra. Það var fólk í hús­inu og systur hans pabba og þau fóru með vatn í fötu til þeirra en þau fóru fyrr og fengu end­ur­greitt.

Lamb­eyra­systur lög­uðu vatns­veit­una en Dönu­staða­fólkið heldur að við séum bara að ljúga og þeir hafi verið að gera við dælu þegar það er engin dæla. Þetta atvik var kært.

Lög­fræð­ing­arnir okkar undra sig á af hverju öll mál taka svona langan tíma.

Dóms­kerfið er samt eitt­hvað að standa í lapp­irnar. Flest mál sem ná að fara fram falla okkur í vil. En lög­reglan gerir ekki neitt og streit­ist við að taka við kærum. Á meðan kærur eru í ferli, halda þeir áfram að skemma, svo að kærur laga ekki ástandið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi