Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Katrín: „Íslensk stjórnvöld hafa ekki beitt sér í málaferlum erlendis gagnvart Julian Assange“

Katrín: „Íslensk stjórnvöld hafa ekki beitt sér í málaferlum erlendis gagnvart Julian Assange“
Julian Assange hefur mátt dúsa í Belmarsh-fang­els­inu í London síðan árið 2019. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Katrín Jak­obs­dóttir segir íslenska stjórn­völd ekki hafa beitt sér erlendis í máli blaða­manns­ins Julian Assange, sem hefur dúsað í fang­elsi í Bret­landi síð­ustu árin en von bráðar verður hann að öllum lík­indum fram­seldur til Banda­ríkj­anna. Þar gæti hann fengið allt að 175 ára fang­els­is­dóm.

Kristinn Hrafns­son, núver­andi rit­stjói Wikileaks hefur að und­an­förnu ítrekað beiðni sína um að evr­ópskir leið­togar, þar á meðal íslenskir, rjúfi þá þögn sem Kristinn segir að verði vand­ræða­legri með hverjum degi, í ljósi þess að fjöldi leið­toga utan álf­unnar tjá andúð sína á stöð­unni. Páfinn hafi til að mynda sent ótví­ræð skila­boð fyrir stuttu er hann tók á móti eig­in­konu Assange, Stellu.

Banda­ríkja­menn hafa kraf­ist þess að Assange verði fram­seldur vegna ákæra fyrir sam­særi um tölvu­inn­brot og njósnir í land­inu. Ákær­urnar komu til vegna birt­ingar Wikileaks, sem Assange stjórn­aði, á hund­ruð þús­unda skjala Banda­ríkja­hers og utan­rík­is­þjón­ust­unnar árið 2010 en skjöl­unum var lekið til Wikileaks af Chelsea Manning. Í lek­anum komu meðal ann­ars fram sann­anir á stríðs­glæpum banda­ríkja­hers í Íraks­stríð­inu. Verði Assange fund­inn sekur í Banda­ríkj­unum gæti hann fengið allt að 175 ára fang­els­is­dóm en hann hefur dvalið í örygg­is­fang­elsi í London síðan 2019 en and­leg heilsa hans er afar slæm.

Í júní hvatti Illugi Jök­uls­son á Facebook, til þess að íslensk stjórn­völd beittu sér fyrir því að Julian Assange fengi hæli hér á landi. Sagði hann meðal ann­ars í færsl­unni: „Er nú ekki kom­inn tími til að íslensk stjórn­völd taki á sig rögg og veiti þessum manni lið­sinni til að koma í veg fyrir að hann hverfi inn í örygg­is­fang­elsi í Banda­ríkj­unum fyrir að hafa átt þátt í að upp­lýsa um glæp­sam­legt athæfi Banda­ríkja­hers í Írak?“

Áður hafa yfir­völd á Íslandi veitt Bobby Fisher skák­snill­ingi og með­limum rúss­nesku pönk­bands­ins Pussy Riot hæli hér á landi.

Mannlíf sendi fyr­ir­spurn á Katríni Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og spurði hana eft­ir­far­andi spurn­inga:

1. Hver er þín afstaða til máls Julian Assange?
2. Hefur rík­is­stjórnin beitt sér eitt­hvað í mál­inu, t.d. með því að þrýsta á eða lýsa yfir and­stöðu sinni vegna mála­ferl­anna gegn honum?
3. Telur þú að íslensk stjórn­völd ættu að veita honum rík­is­borg­ara­rétt? Ef ekki, hvers vegna ekki?

Katrín svar­aði seint og aðeins að hluta til. Ekki lét hún í ljós per­sónu­lega afstöðu sína í máli Julian Assange, né hvort hún teldi að íslensk stjórn­völd ættu að veita honum rík­is­borg­ara­rétt.

Svar Katrínar má lesa hér að neðan:

„Um veit­ingu íslensks rík­is­borg­ara­réttar gilda ákvæði laga nr. 100/1952. Þar sem Julian Assange hefur ekki verið búsettur hér á landi væri það í höndum Alþingis að fjalla um umsókn um veit­ingu íslensks rík­is­borg­ara­réttar með lögum að feng­inni umsögn Útlend­inga­stofn­unar og lög­reglu­stjóra, bær­ist slík umsókn.

Íslensk stjórn­völd hafa ekki beitt sér í mála­ferlum erlendis gagn­vart Julian Assange.“

Ekki náð­ist í Kristinn Hrafns­son við gerð frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi