Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anna snarhætti að reykja eftir heimsókn frænku sinnar: „Þetta varð sem áfall fyrir mig“

Anna snarhætti að reykja eftir heimsókn frænku sinnar: „Þetta varð sem áfall fyrir mig“
Anna Krist­jáns­dóttir

Anna Krist­jáns­dóttir minn­ist tveggja tíma­móta í lífi hennar í nýj­ustu dag­bók­ar­færslu sinni frá Paradís. Þar segir hún frá því er hún missti af fæð­ingu frum­burðar síns ann­ars vegar og hins vegar þegar hún ákvað að hætta að reykja.

Vél­stjór­inn fyndni, Anna Krist­jáns­dóttir skrif­aði dag­bók­ar­færslu á Facebook í morgun þar sem hún rifjar upp minn­ingar um tvö merki­leg tíma­mót í hennar lífi. Segir hún frá því er dóttir hennar fædd­ist fyrir 48 árum síðan á meðan Anna var á sjó en vegna ein­skærrar óheppni missti hún af fæð­ingu frum­burð­ar­ins. Þá segir hún einnig frá því hvað varð þess vald­andi að hún ákvað að hætta að reykja fyrir 23 árum síðan. Færsluna má lesa í heild sinni hér að neðan.

„Dagur 1454 – Minn­ingar.

Á þessum degi fyrir 48 árum var ég úti á sjó þegar ég fékk skeyti frá útgerð­inni þess efnis að dóttir mín væri fædd. Þetta gekk ekki þrauta­laust. Ég hafði sótt um frí fyrri­hluta ágúst­mán­aðar og fengið. Þegar við komum í land til að taka þátt í þjóð­há­tíð hélt ég til Reykja­víkur, en það voru fullar vélar til Eyja, en tómar til Reykja­víkur. Í þess­ari vél voru samt tveir far­þegar, ég sem ætl­aði að vera við­stödd fæð­ingu dóttur minnar og Kristján Torfason þáver­andi bæj­ar­fó­geti í Vest­manna­eyjum, en hann hafði látið loka Ríkinu í Vest­manna­eyjum á þriðju­degi fyrir þjóð­há­tíð og við slíkar aðstæður var eins gott að koma sér í burtu til að vera ekki lam­inn af reiðum þjóð­há­tíð­ar­gestum.Maðurinn sem átti að leysa mig af kom til Vest­manna­eyja, vanur maður sem hafði verið á skip­inu er það var gert út frá Hafn­ar­firði, alveg prýð­is­maður en nú lát­inn fyrir löngu síðan. Hann kom um borð og ætl­aði að kíkja við niðri í véla­rúmi er hann kom um borð, en hras­aði í stig­anum niður í vél og fót­brotn­aði. Þar með lauk ætlun hans til að leysa mig af og ég þurfti að fara aftur um borð.Eins og allir vita sem þekkja mig hlýddi ég slíkum fyr­ir­skip­unum og fyrir bragðið var ég víðs fjarri er frum­burð­ur­inn minn fædd­ist þann 6. ágúst árið 1975.Tveimur og hálfum mán­uði síðar, var dóttir mín hugs­an­lega yngsti þátt­tak­and­inn í kvenna­göng­unni og úti­fundi á Lækj­ar­torgi þann 24. októ­ber 1975, en að sjálf­sögðu tók ég þátt með dóttur mína í barna­vagni.—–Nærri 25 árum síðar kom ætluð frænka mín til Íslands. Hún hafði aldrei komið til lands­ins áður þó af íslensku for­eldri, en vegna sjúk­dóms hennar var ekki talið óhætt að leyfa henni að fara í flug. Þarna fékk hún samt heim­ild til slíks, en þegar ég hitti hana eftir að hún kom til Íslands, átt­aði ég mig betur á sjúk­dómnum, lungna­þemba vegna reyk­inga. Hún var í mik­illi yfir­vigt, komin í hjóla­stól, not­að­ist við súrkút og keðjureykti. Ég reykti líka á þessum tíma, en þetta varð sem áfall fyrir mig og ég ákvað að hætta að reykja, hvað sem það kost­aði.Ég hafði lesið það ein­hvers­staðar að besta leiðin til að hætta að reykja væri sú að ákveða dag og stund með góðum fyr­ir­vara og þarna í lok júní árið 2000 ákvað ég að hætta að reykja á hádegi á 25 ára afmæl­is­degi dóttur minnar. Þegar kom að hádegi umræddan dag átti ég enn til hálfan pakka af sígar­ettum svo að ég frestaði því að hætta að reykja uns pakk­inn væri búinn. Það tókst á endum að klukkan 15.00 drap ég í síð­ustu sígar­ett­unni og hefi aldrei reykt eina ein­ustu sígar­ettu eftir það.Af Lindu er það að segja að hún lést árið 2006 úr lungna­þembu þó hún hafi þá verið löngu hætt að reykja og búin að létt­ast um helm­ing fyrstu árin eftir alda­mót. Síðan eru liðin 23 ár.—–Ætlunin var sú að minnka skrifin á sunnu­dögum, en vegna afmælis dóttur minnar og reyk­inga­af­mælis míns, varð ég að tjá mig, en svo verða mik­il­væg skrif á mánu­dag, frí­dag versl­un­ar­manna. Ég verð samt að til­kynna sigur hetj­anna okkar hjá Fót­bolta­sam­vinnu­fé­lagi Hali­fax­hrepps á Bromley 2:0 og sitja hetj­urnar núna í þriðja sæti í fimmtu­deild.En ég lofa ykkur því að ég verð þögul næsta sunnu­dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi