Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rífur ráðherrana í sig: „Katrín og Guðrún eru ljósmyndir af angistinni“

Rífur ráðherrana í sig: „Katrín og Guðrún eru ljósmyndir af angistinni“
Kolleg­arnir Katrín og Guðrún.

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir fer mik­inn í nýlegri færslu á Facebook en þar sem hún hjólar í kolleg­ana Katrínu Jak­obs­dóttur og Guðrúnu Haf­steins­dóttur vegna nýju útlend­inga­lag­anna.

Í byrjun hinnar harð­orðu færslu segir leik­konan að ástin sigri allt og að „kær­leik­ur­inn fellur aldrei úr gildi“. Því næst talar hún um það sem Katrín Jak­obs­dóttir kallar „brott­far­ar­búðir“ en flestir aðrir kalla fanga­búðir, fyrir þá hæl­is­leit­endur sem hafa misst allan styrk frá yfir­völdum hér á landi en hafa ekki efni á að kom­ast frá land­inu. „Brott­far­ar­búðir. Öllum nöfnum má nú kalla hlut­ina, en við skulum staldra við orða­val for­sæt­is­ráð­herra. Brottaf­ar­ar­búðir. Og hugsa. Hverjum dettur svona þvælu­salad í hug? For­sæt­is­ráð­herra sjálfri? PR teymi ráðu­neyt­iss­ins. Eru allir gengnir af göfl­unum?“ skrif­aði Steinunn Ólína og heldur áfram: „Dóms­mála­ráð­herra Guðrún Haf­steins­dóttir bætir um betur og nefnir það búsetu­úr­ræði með tak­mörk­unum og þá erum við ekki að tala um, glugga­leysi eða skerta sal­ern­is­að­stoðu, heldur útskýrir Dóms­mála­ráð­herra að tak­mark­an­irnar snú­ist um aðgang. Aðgangs­skert búsetu­úr­ræði þar sem fólk er ekki frjálst ferða sinna, sam­kvæmt orð­anna hljóðan, en Dóms­mála­ráð­herra þver­tekur samt fyrir að slík úrræði séu flótta­manna­búðir. Heyriði falskt fiðlus­ur­gið?“

Segir Steinunn að heið­ar­legra hefði það verið af þeim stöllum ef þær hefður svarað frétta­manni RÚV á eft­ir­far­andi máta: „Við erum hjarta­lausir róbótar sem erum að keyra hand­ó­nýtt for­rit enda erum við ekki lengur mann­eskjur og skiljum ekki afleið­ingar gjörða okkar.“ Heldur hún áfram og biður fólk að staldra við orða­val dóms­mála­ráð­herr­ans, sem kall­aði vænt­an­legar flótta­manna­búðir „búsetu­úr­ræði með tak­mörk­unum“: „Íveru­staður þar sem fólk er ekki frjálst ferða sinna þýðir ein­fald­lega, að fólk er frels­is­svipt og fang­elsað. Og flótta­fólki sem komið er fyrir í slíkum úrræðum ER frels­is­svipt og fang­elsað. Þetta ERU fanga­búðir. Þar eru verðir sem gæta ferða þinna.“

Þá segir Steinunn að fólk sé aldrei ólög­legt. „Aldrei. Hvergi. Að vera til og búa ein­hver­staðar er réttur hvers manns.“ Biður leik­konan svo les­endur að leggja and­lit Guðrúnar og Katrínar á minnið sem og fram­komu þeirra og talsmáta, „sem víti til varn­aðar.“ Og hún spyr: „Hvar er maður staddur í ver­öld­inni þegar maður kemur svona fram við aðra? Þegar maður þvaðrar tóma vit­leysu með hræði­legum afleið­ingum fyrir bræður sínar og systur?“

Steinunn er hvergi nærri hætt en hún segir að flest okkar kann­ist við að hafa ein­hvern tíma talið sig yfir aðra hafin en að fæst okkar hafi völd svo „ban­eitrað ruglið eitrar bara fyrir okkur sjálfum og smækkar og étur okkur að innan.“ Í kjöl­farið segir hún: „Katrín og Guðrún eru ljós­myndir af ang­ist­inni. Sárs­auk­anum hið innra. Því ef maður kemur svona illa fram við aðra er maður vesælli en allt sem vesælt er. Við skulum vor­kenna þeim en ekki hata þær. Þær eiga bágt. Mjög bágt. Við skulum biðja trú­aða að biðja fyrir þeim. Hugsa fal­lega til þeirra. Þetta eru valda­konur og eru ekki bara að nöldra við kaffi­vél­ina í fáfræði og hroka. Þessar konur víla ekki fyrir sér að níð­ast á öðrum, fang­elsa fólk og frels­is­svipta, fyrir það eitt að vilja ekki fara héðan.“

Færsluna má sjá hér að neðan en hún hefur vakið gríð­ar­leg við­brögð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi