Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kjartan var hætt kominn þegar árabáti hans hvolfdi: „Þannig að þá var þetta bara búið spil“

Kjartan Hauksson var gestur Sjóarans á dög­unum en hann hefur allt frá ung­lings­aldri starfað sem kaf­ari. Í fyrstu fékkst hann aðal­lega við að losa net úr skrúfum fiski­skipa og fékk hann gjarnan greitt í vod­kaflöskum en það gagn­að­ist honum lítið þar sem hann var ekki byrj­aður að drekka á þeim tíma.

Árið 2003 lenti Kjartan í sjáv­ar­háska er hann hugð­ist róa fyrstu manna ein­sam­all á ára­báti í kringum Ísland. Var hann þá staddur við Rekavík á Horn­ströndum.

„Ég lendi í stífum norð­an­vind sem hrekur mig upp í Rekavík. Og ég set út anker þar svona til að hvíla mig svo ég geti nú haldið áfram að reyna að remb­ast upp í þetta veður,“ segir Kjartan er hann lýsir þeim háska sem hann lenti í fyrir tveimur ára­tugum síðan.

Þegar þarna var komið við sögu hafði Kjartan verið búinn að reyna að kom­ast frá Rekavík en stífur vind­ur­inn haldið honum þar sem fast­ast og hann orð­inn þreyttur. En svo slitn­aði ankerið. „Og ég fer undir árar og brýt strax aðra árina og tím­inn sem fer í það að gera aðra klára er of mik­ill. Þannig að ég er kom­inn upp í brimið áður en ég vissi af. Þannig að þá var þetta bara búið spil.“

Árabátur Kjartans veltur og brotnar. „Já, já, það fer úr honum botn­inn og ég lendi undir honum og velk­ist inn í brimið, alveg upp í fjöru.“

Kjartans segir að það hafi brotnað ofan af bátnum, fjar­skipa­bún­aður, loft­net og fleira. Brimið hafi verið það mikið að botn­inn hafi farið ansi fljótt úr honum.

Reynir Trausta­son spurði Kjartan hvort það hafi ekki verið basl að kom­ast undan bátnum eftir að hann lenti undir honum. „Nei, þetta ger­ist til­tölu­lega fljótt og bát­ur­inn lít­ill en ég hefði auð­vitað alveg getað orðið fyrir höf­uð­höggi eða ein­hverju álíka en ég marð­ist og rispað­ist og svo­leiðis en ég slakk ótrú­lega vel frá þessu í raun­inni.“

Þarna var Kjartan sem sagt sam­bands­laus á Horn­ströndum með ónýtan bát, í fjör­unni eftir að hafa velkst um í brim­inu. Hvað var til ráða? „Ég var að hugsa um að reyna að koma bátnum upp til að reyna að bjarga sem mestu af honum, ef það væri hægt að gera við hann. Ég náði honum ekk­ert upp í fjöru, hann var alltof þungur. Þannig að ég var far­inn að hugsa til þess að labba yfir í Aðalvík og kom­ast í fjar­skipta­búnað þar í skýli.“

En Kjartan þurfti þess ekki því svo virð­ist sem mágur hans hafi fengið hug­boð um að hann þyrfti hjálp. „Ég held að ég sé búinn að vera í tvo tíma að berj­ast í brim­inu þegar mágur minn Bergur Karlsson frá Bol­ung­ar­vík kemur siglandi. Hann hefur fengið eitt­hvað hug­boð um að það væri kannski ekki allt í lagi með mig og að hann þyrfti að athuga með mig. Og hann fór á hrað­bát og fann mig þarna í brim­inu.“

Reynir spurði Kjartan hvort það hafi ekki verið léttir að sjá Berg, að hann þyrfti þá ekki að fara að klöngr­ast yfir fjalla­skörð eftir hjálp. „Já, það var það. Það var gott að kom­ast í skjól en við gátum ekk­ert átt við bát­inn, hann varð bara að vera þarna í fjör­unni og við ætl­uðum að kíkja á það seinna. En bát­ur­inn týnd­ist síðan, hann hvarf bara þar til Sig­ur­steinn Másson hringdi í mig, fjöl­miðla­maður. Þá hafði Greenpeace fundið hann undan Norð­ur­land­inu. Hann hafði þá losnað og farið út. Þannig að Græn­frið­ung­arnir björg­uðu bátnum mínu,“ sagði Kjartan og brosti. Ekki var hægt að laga bát­inn en Kjartan á flakið ennþá.

Nokkrum mán­uðum síðar lenti Kjartan í öðrum sjáv­ar­háska …

Viðtalið í heild sinni má finna á tv.mann­lif.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi