Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dularfulli stöðumælirinn efst á Hlöðufelli: Ráðgáta í 13 ár

Dularfulli stöðumælirinn efst á Hlöðufelli: Ráðgáta í 13 ár
Höfundur grein­ar­innar við stöðu­mæl­inn 24 ágúst 2023. Mynd: GG

Eitt af kenni­leitum fjalls­ins Hlöðu­fells er stöðu­mælir sem er kyrfi­lega festur niður á toppi fjalls­ins sem er 1188 metra hátt. Hlöðu­fell erá hálend­inu ofan við Laug­ar­vatn. Fjallið er ekki auð­velt upp­göngu um snar­brattar skriður og kletta. Aðeins er ein leið talin fær þangað upp án bún­aðar til klif­urs. Þegar komið er efst á fjallið blasir við þetta fræga en jafn­framt dul­ar­fulla kenni­leiti, tvö­faldur stöðu­mælir sem ætl­aður er fyrir mynt. Mannlíf átti leið um Hlöðu­fell á fimmtu­dag í lið­inni viku og komst þá í návígi við stöðu­mæl­inn, sem hefur staðið af sér frost og storma á einu af hæstu fjöllum lands­ins í 13 ár. Hann hagg­að­ist ekki þegar tekið var á honum og frá­gang­ur­inn greini­lega til fyr­ir­myndar.

Hlöðu­fell er 1188 metra hátt og ófært nema á fæti eða í þyrlu.

Sigurður Harð­ar­son raf­einda­virki er sá sem vakti fyrst athygli á stöðu­mæl­inum. Hann segir í sam­tali við Mannlíf að mælir­inn hafi ekki verið á fjall­inu árið 2008 þegar hann átti leið um vegna fjar­skipta­sendis sem hann og félagar hans settu upp þar fyrir björg­un­ar­sveit­irnar og jeppa­klúbb­inn 4×4.

Það er lík­legt að þyrla hafi verið notuð

„Hann var kom­inn þangað upp þann 4. ágúst 2010 þegar ég kom á Hlöðu­fell. Mér virð­ist sem borað hafi verið fyrir honum. Það var hvergi að sjá neitt jarð­vegs­rask í kringum hann og það er mjög fast undir á þessum stað, við reyndum það þegar við komum end­ur­varp­anum fyrir. Ég get varla ímyndað mér að menn hafi borið hann þangað upp á bak­inu ásamt bún­aði til að koma honum fyrir. Það er lík­legt að þyrla hafi verið notuð,“ segir Sigurður sem féllst þó á að mögu­legt hefði verið að rog­ast upp með flykkið.

Hér má sjá mynd frá árinu 2010 sem Sigurður Harð­ar­son tók. Ekkert jarð­rask og mælir­inn rót­fastur.

Umræddur stöðu­mælir er tví­höfða. Þannig mæla var að sjá í Reykja­vík á árum áður. Til dæmis við Lækj­ar­götu. Þeir voru aflagðir áður en mæl­inum var komið fyrir á Hlöðu­felli og því víst að menn hafi tekið hann sér til handa­gagns án þess að valda tjóni.

Sigurður seg­ist ekki hafa hug­mynd um það hverjir voru þarna að verki en ljóst sé að þar voru gár­ungar á ferð. „Ég veit ekk­ert um það en það er for­vitni­legt að vita hvernig þetta gerð­ist,“ segir Sigurður sem reglu­lega fer með þyrlu á Hlöðu­fell til að fylgj­ast með end­ur­varp­anum.

Hvergi er að finna skráðar heim­ildir um það hver kom stöðu­mæl­inum fyrir á fjall­inu og í hvaða til­gangi menn lögðu á sig vinnu við að festa hann niður. Mannlíf spurð­ist fyrir um málið og fékk þær upp­lýs­ingar hjá einum göngugarpi að lík­lega hefðu þarna hefpu verið á ferð náms­menn frá Laug­ar­vatni. Annar taldið að gár­ungar frá Selfossi hefðu staðið fyrir þessum gjörn­ingi.

Þeir sem þekkja svarið við ráð­gát­unni mega gjarnan senda upp­lýs­ingar á [email protected].

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi