Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dauðarefsing fyrir samkynhneigð: „Stjórnvöldum í Úganda er afstaða Íslands vel kunn“

Dauðarefsing fyrir samkynhneigð: „Stjórnvöldum í Úganda er afstaða Íslands vel kunn“
Réttindi sam­kyn­hneigra er fótum troðin í Úganda. Mynd: Rebecca Vassie

Afstaða Íslands til nýrrar lög­gjafar í Úganda er snýr að rétt­indum sam­kyn­hneigra, er yfir­völdum í Afr­íku­rík­inu fullkunn. Engar upp­lýs­ingar til um íslensk trú­fé­lög í Úganda.

Fjár­sterkir trú­ar­legir þrýsti­hópar í Banda­ríkj­unum hafa um ára­bil dælt millj­ónum doll­ara til að við­halda for­dómum gegn hinsegin sam­fé­lag­inu í fjöl­mörgum ríkjum Afríku, sér í lagi í Úganda en í sumar var dauða­refs­ingu komið á fyrir þann „glæp“ að vera sam­kyn­hneigður „af ásetn­ingi.“ Mannlíf datt í hug að senda fyr­ir­spurn á sendi­ráð Íslands í Kampala, Úganda og spyrja meðal ann­ars hvort íslensk trú­fé­lög hafi ein­hverja teng­ingu inn í stjórn­mál lands­ins.

Samkvæmt svar­inu sem Áslaug Karen Jóhanns­dóttir, sér­fræð­ingur hjá Utan­rík­is­ráðu­neyt­inu sendi hefur sendi­ráðið í Kampala engar upp­lýs­ingar um hvaða trú­fé­lög eða trú­ar­hópar sem skráð eru á Íslandi starfi í Úganda. Sendi­ráðið hefur einn­ing engar upp­lýs­ingar um hvort nokkur þeirra kunni að hafa styrkt rík­is­stjórn lands­ins. Taka skal fram að ekk­ert bendir sér­stak­lega til þess að slíkt hafi átt sér stað.

Í svari Áslaugar kemur eft­ir­far­andi einnig fram: „Rétt er að árétta í þessu sam­hengi að í stuðn­ingi utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við félaga­sam­tök í þró­un­ar­sam­vinnu er áskilið að styrki megi hvorki nota til að stunda trú­boð né áróður í þágu stjórn­mála­flokka. Þá er við mat á umsóknum byggt á því að aðstoðin sé óhlut­dræg og mis­muni ekki þörfum fólks meðal ann­ars á grund­velli trú­ar­bragða eða kyn­hneigðar.“

Mannlíf spurði Áslaugu einnig hvort mót­mælum frá ráðu­neyt­inu, vegna hinna nýju laga hafi verið komið til yfir­valda í Úganda. Ekki stóð á svari:

„Ísland tekur virkan þátt í banda­lagi ríkja sem vinna saman að því að tryggja að hinsegin fólk hvar­vetna fái notið allra mann­rétt­inda (Equal Rights Coalition, ERC). Ísland tók undir sam­eig­in­legt bréf banda­lags­ins til for­seta Úganda sem sent var í byrjun apríl þar sem lýst var yfir áhyggjum vegna laga­setn­ing­ar­innar, sem grafi undan mann­rétt­indum og grund­vall­ar­frelsi allra íbúa Úganda. Ísland hefur einnig komið afstöðu Íslands hvað varðar mann­rétt­indi og rétt­indi hinsegin fólks á fram­færi við sendi­herra Úganda gagn­vart Íslandi. Þá hefur Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra gagn­rýnt lög­gjöf­ina harð­lega, meðal ann­ars í færslu á X (þá Twitter) 30. maí sl. „I am deeply shocked and sadd­ened by the enactment of the Anti-Homos­exu­ality Act of Uganda. It is a tra­vesty that constitutes a gross violation of human rights. It is unacceptable that people are forced to live in fear because of who they love or how they express their love“.“

Þá sagði Áslaug að dag­inn eftir hafi sendi­herra Noregs í Kampala flutt ræðu fyrir hönd nor­rænu sendi­ráð­anna þar sem laga­setn­ing­unni var mót­mælt.

„Daginn eftir, 31. maí, flutti svo sendi­herra Noregs, fyrir hönd nor­rænu sendi­ráð­anna í Kampala, ræðu í sam­eig­in­legri þjóð­há­tíð­ar­mót­töku Norð­ur­landa þar sem laga­setn­ing­unni var mót­mælt. „The Nordics are ranked high on the list of prosperous countries. Inclusion of women in all aspects of the economy is a main rea­son for this. Inclusion of all citizens in the health system is another. Inclusion of all citizens – not exclusion and persecution of groups based on what they think and who they are, make sense in all aspects of build­ing strong, just and economically viable nations – as the Nordics. This is just one of many rea­sons why we do not supp­ort exclusion, persecution and undue pun­is­h­ment of the LGBT-community, as prescribed in the Anti-Homos­exu­ality Act just signed into law by HE the Pres­ident of Uganda“.“

Þá bætti Áslaug því við í lokin að í fyrra Ísland hafi beint til­mælum til stjórn­valda í Úganda um afglæpa­væða sam­kynja sam­bönd.

„Í fyrra beindi svo Ísland þeim til­mælum til stjórn­valda í Úganda þegar þau geng­ust undir alls­herj­ar­út­tekt mann­réttinda­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna, að afglæpa­væða sam­kynja sam­bönd eða sam­þykk sam­kynja sam­ræði á milli ein­stak­linga (e. decriminalize sexual relations between consenting adults of the same sex). Stjórn­völdum í Úganda er því afstaða Íslands til umræddrar lög­gjafar vel kunn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi