Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lögreglan sögð hafa veist að dökkum unglingi á Ljósanótt: „Er þetta bara enn í gangi árið 2023?“

Lögreglan sögð hafa veist að dökkum unglingi á Ljósanótt: „Er þetta bara enn í gangi árið 2023?“
Ljósmynd sem náð­ist af atvik­inu.

Lög­reglan á Suð­ur­nesjum er sökuð um mis­munun vegna kyn­þáttar er hún stöðv­aði för 17 ára pilts á Ljósa­nótt og spurðu hann hvort hann væri með vopn eða efni á sér.

Móðir 17 ára pilts skrif­aði færslu á Facebook í gær þar sem hún segir frá því er sonur hennar, sem er hvítur á hör­und, fór ásamt vini sínum og jafn­aldra, sem er dökkur á hör­und, á Ljósa­nótt í Reykja­nesbæ um helg­ina. Voru þeir fullir til­hlökk­unar þegar þeir stigu út úr bíl sem þeir fengu lán­aða hjá for­eldrum ann­ars þeirra. En spenn­ing­ur­inn hvarf fljótt er, að sögn móð­ur­innar, „nokkrir lög­reglu­menn æða að þeim með látum og spurja þennan sem er dökkur á hörun hvort hann sé með efni á sér eða vopn!“ Segir móð­irin að drengirnir hafi orðið furðu losnir enda hafi þeir bara verið á göngu líkt og aðrir gestir hátíð­ar­innar.

„Þessi sem er dökkur neitar því að hann sé með eitt­hvað og ætlar að sýna lög­regl­unni hvað hann sé með í vös­unum. Lög­reglan öskrar á hann að taka hend­urnar upp úr vös­unum og ýta honum svo upp að vegg og byrja að leita á honum, 4-6 lög­reglu­menn og einn hundur,“ skrifar móð­irin í færsl­unni og segir son sinn hafa tekið upp sím­ann til að taka aðför lög­regl­unnar. „Lög­reglan verður brjáluð, segir honum að setja sím­ann niður og hótar að fara með þá upp á stöð því úti­vistar tími þeirra sé búin!“

Móðirin segir að eftir þetta atvik hafi kvöldið verið ónýtt fyrir þeim og þeir hafi því farið heim. „Er þetta bara en í gangi árið 2023…fólk stoppað ein­ungis vegna þess að það er dökkt á hör­und?“ spyr móð­irin í færsl­unni og veltir fyrir sér hvort lög­reglan hefði ekki getað farið öðru­vísi að: „Hefði ekki bara verið betra ef lög­legan hefði stoppað strák­ana, verið kurt­eisir, spurt um aldur og séð þá að engin þarna væri undir ein­hverjum áhrifum og að allir hefðu getað haldið áfram að eiga gott kvöld?“

Færsluna má lesa hér í heild sinni:

„Árið er 2023!

Tveir 17 ára drengir (annar hvítur en hinn dökkur á hör­und) fá bíl lán­aðan hjá for­eldrum sínum til þess að kíkja í bíltúr á Ljósa­nótt í Keflavík. Þeir mæta spenntir á svæðið um 22:30 og ætla að rölta aðeins um og skoða mann­lífið. Þeir eru rétt svo komnir úr bílnum þegar nokkrir lög­reglu menn æða að þeim með látum og spurja þennan sem er dökkur á hör­und hvort hann sé með efni á sér eða vopn!Strák­arnir verða furðu losnir enda bara rölt­andi um í róleg­heit­unum eins og annað fólk þarna.Þessi sem er dökkur neitar því að hann sé með eitt­hvað og ætlar að sýna lög­regl­unni hvað hann sé með í vös­unum. Lög­reglan öskrar á hann að taka hend­urnar upp úr vös­unum og ýta honum svo upp að vegg og byrja að leita á honum, 4-6 lög­reglu­menn og einn hundur.Vinur drengs­ins tekur upp sím­ann sinn og ætlar að taka þetta upp því honum finnst þetta full gróft þar sem þeir voru bara rölt­andi um í róleg­heit­unum ný mættir.Lög­reglan verður brjáluð, segir honum að setja sím­ann niður og hótar að fara með þá upp á stöð því úti­vistar tími þeirra sé búin!Drengirnir fara strax heim eftir þetta því þarna var búið að skemma fyrir þeim kvöldið og áreita dreng­ina sem voru ekk­ert að gera.Er þetta bara en í gangi árið 2023…fólk stoppað ein­ungis vegna þess að það er dökkt á hör­und?Hefði ekki bara verið betra ef lög­legan hefði stoppað strák­ana, verið kurt­eisir, spurt um aldur og séð þá að engin þarna væri undir ein­hverjum áhrifum og að allir hefðu getað haldið áfram að eiga gott kvöld?

Fólk má endi­lega deila!!“

Ekki náð­ist í lög­regl­una á Suð­ur­nesjum þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi