Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þrír nemendur björguðu grátandi dreng í strætó: „Þetta endurvekur trú á mannkynið“

Þrír nemendur björguðu grátandi dreng í strætó: „Þetta endurvekur trú á mannkynið“
Tom og Harry Mynd: Trausti Hafsteinsson

Móðir drengs fékk aftur trú á mann­kynið þegar þrír skóla­strákar hjálp­uðu 11 ára drengi þegar hann hafði tekið rangan strætó eftir fyrsta skóla­dag­inn sinn.

Hinn ell­efu ára drengur, hafði tekið rangan strætó og færð­ist sífellt lengra og lengra frá heim­ili sínu, en þá steig hjarta­gott tríó fram. Dreng­ur­inn, sem hafði hvorki síma né pen­ing með­ferðis, hafði enga leið til að kom­ast heim til sín í Netherton, Liverpool. Hinn 15 ára nemi, Tom O´Brien tók þá eftir drengnum skælandi og gaf honum 10 pund fyrir leigu­bíl, á meðan jafn­aldrar drengs­ins, þeir Harry Campell og Dylan Robson, pössuðu upp á að hann kæm­ist heim, heilu á höldnu.

Þessu góð­verki var deilt meðal fólks á Facebook af móður drengs­ins en færslan sló í gegn en þús­undir skrif­uðu við færsl­una og hrósuðu drengj­unum. Collette, móðir Harry, sagði að allt varð­andi málið hefði „end­ur­heimt trú hennar á mann­kynið.“

Sagði hún: „Það var eig­in­maður minn sem sá Harry, stand­andi fyrir utan húsið okkar, talandi við þennan dreng sem við höfum aldrei séð áður. Harry sagði Dylan að hringja á leigu­bíl til að sækja hann frá okkar húsi, til að tryggja að hann kæm­ist heim á öruggan hátt. Svo gekk hann með honum til okkar og beið fyrir utan með honum eftir leigu­bílnum.“

Hún hélt áfram: „Guð blessi hann, þessi litli stráksi var í upp­námi og hafði tekið rangan strætó og þar sem þetta var fyrsti dag­ur­inn hans, þá hefur hann ekki þekkt marga. Ég spurðu Harry hvort hann hefði hitt dreng­inn og hvernig hann væri og hann sagði mér að hann væri fínn og hefði þakkað honum. Mér finnst þetta bara ynd­is­legt. Ég er mjög stolt af honum. Þetta end­ur­vekur trú á mann­kynið og þessi litli skráksi veit nú að það er gott fólk þarna úti sem mun hjálpa honum.“

Tom sagði kenn­urum að hann væri bara ánægður að dreng­ur­inn hafi kom­ist heim og það gladdi hann að ung­lingar fái þarna jákvæða umfjöllun. Faðir hans, Kenny, sagð­ist vera afar stoltur af honum fyrir að vera svo „hug­ul­samur og hlýr“ sonur.

Hinn 55 ára faðir sagði: „Ég er mjög stoltur af honum. Hann er mjög hug­ul­samur piltur og frá­bær per­sónu­leiki. Hann sagði mér ekki hvað hefði gerst fyrr en seinna um kvöldið þegar hann átt­aði sig á að fólk væri að tala um það á Facebook. Hann sagð­ist hafa verið í strætónum og spurt dreng­ina á sjö­unda ári (11. ára bekk) hvernig hefði gengið á fyrsta degi skóla­árs­ins þegar hann tók eftir dreng sem sat einn og virt­ist stress­aður og í upp­námi og spurði hann hvort eitt­hvað væri að. Dreng­ur­inn sagð­ist hafa farið í vit­lausan strætó og væri að fara sífellt lengra frá heim­ili sínu. Þannig að Tom fékk hug­mynd og sagði honum að fara úr strætónum og gaf honum 10 pund fyrir leigu­bíl.“

Móðir Dylan, Toni, sagð­ist hafa heyrt af þessu þegar sonur hennar kom heim úr skól­anum. Hún sagði: „Hann kom heim og sagði að það hefði verið strákur sem fór í rangan strætó og hefði verið í upp­námi. Hann sagði mér að Tom hefði gefið honum pen­ing og hvernig hann og Harry hefðu hringt á leigu­bíl. Ég spurði hann hvernig þeir hefðu þekkt númer til að hringja í og hann sagð­ist hafa gúgglað það. Ég er mjög stolt af honum. Ég vona að ef sonur minn yrði í sömu sporum, að ein­hver myndi hjálpa honum.“

Dylan

Drengirnir hringdu í Delta leigu­bíla­stöð­ina en sam­kvæmt Liverpool Echo rukk­aði bíl­stjór­inn ekk­ert fyrir ferð unga pilts­ins. Yfir­kenn­ari Holy Family Catholic High School skól­ans, Matthew Symes sagði: „Þetta er bara ynd­is­legt og þessi byrjun á skóla­ár­inu setur tón­inn fyrir allt annað. Tom er ótrú­lega hug­ul­samur og á alla lund frá­bær gaur.“

Matthew hélt áfram: „Ég kíkti á hann eftir að hafa fengið fjöldi hring­inga frá for­eldum sem spurðu hvað hefði gerst. Og hann sagð­ist ánægður með athygl­ina því margir 15 ára ung­lingar fá slæmar umfjall­anir í fjöl­miðlum. En hann var mjög ánægður að dreng­ur­inn hafi kom­ist heim til sín. En hann hefur með þessu sýnt frá­bært for­dæmi fyrir framan heila rútu af sjö­unda bekk­ingum, sem eru allir stress­aðir og kvíðnir í kringum stóru krakk­ana. Þetta er frá­bært dæmi um eldri nem­anda sem passar upp á þá yngri.“

Fréttin er unnin upp úr frétt The Mirror.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta