Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sakar dómara um að falsa skýrslu: „Málið hefur þegar farið sína leið“

Sakar dómara um að falsa skýrslu: „Málið hefur þegar farið sína leið“
Klara Bjartmarz, fram­kvæmd­ar­stjór KSÍ, hættir hjá sam­band­inu

Halldór Árnason, aðstoð­ar­þjálf­ari Breið­bliks í Bestu deild karla, ásakar dóm­ara um að falsa dóm­ara­skýrslu.

Þann 13. ágúst átt­ust við KA og Breið­blik og leiknum lauk með 1-1 jafn­tefli. En sögu leiks­ins lauk þó ekki þar. Eftir leik­inn fékk Halldór Árnason, aðstoð­ar­þjálf­ari Breið­bliks, rautt spjald og kærðu Blikar rauða spjaldið til aga- og úrskurð­ar­nefndar KSÍ. Halldór fékk rautt spjaldið klukku­tíma eftir leik og kærðu Blikar málið á þeim grund­velli að ekki sé hægt að gefa spjald svo seint eftir að leik lýkur og töp­uðu þeir því máli.

Þó virð­ist vera að málið sé stærra en svo. Halldór veitti Vísi við­tal um málið á föstu­dag­inn og sagði. „Ég átti stutt, og að ég hélt ágætt, spjall við einn af dóm­urum leiks­ins um vafa­saman víta­spyrnu­dóm í fyrri hálf­leik. Spjallið var mjög stutt enda sagði sá dóm­ari að hann hefði ekki séð atvikið aftur. Síðan ber­ast þær upp­lýs­ingar um að ég hafi fengið rautt spjald efir leik – sem er alls ekki rétt – en dóm­ar­inn hefur skrifað það í leik­skýrsl­una. Daginn eftir kemur svo skýrsla úr leiknum þar sem tekið er fram hver ástæðan fyrir rauða spjald­inu er,“ en Halldór sagði einnig að þrír úr þjálf­arateymi Breið­bliks hafi verið vitni af atvik­inu og allir séu sam­mála um upp­lifun Halldórs. Í skýrsl­unni stendur að Halldór hafi kallað dóm­ara „hel­vítis hálf­vita,“ en Valdimar Valdi­mars­son, mark­manns­þjálf­ari Blika, segir það ekki rétt.

Samkvæmt var Halldóri var Elías Ingi, dóm­ari leiks­ins, ekki á svæð­inu en hafi skrifað skýrsl­una eins og hann hafi verið á staðnum. „Það væri gaman að sjá dóm­ara leiks­ins stíga fram og með góðri sam­visku segja opin­ber­lega að hann og-eða aðrir dóm­arar en aðstoð­ar­dóm­ari 1 hafi verið á staðnum og verið vitni að sam­tali í gangi KA heim­il­is­ins eins og hann lýsir í skýrslu sinni. Og að lýs­ing aðstæðna og atburða hafi verið með þeim hætti sem þar segir,“ sagði Halldór að lokum. 

Erfitt er að lesa orð Halldórs á annan hátt en að hann sé að saka Elías Inga um að falsa dóm­ara­skýrsl­una. Slík ásökun kemur ekki fram á hverjum degi og veit Klara Bjartmarz, fram­kvæmd­ar­stjóri KSÍ, ekki um dæmi um slíkt á Íslandi þegar Mannlíf leit­aði hennar við­bragða við þessum ummælum.

„Ég á ekki von á að gera það nei. Málið hefur þegar farið sína leið í gegnum bæði aga- og úrskurð­ar­nefnd og áfrýj­un­ar­dóm­stól,“ sagði Klara þegar hún var spurð hvort að hún myndi vísa ummælum Halldórs til aga- og úrskurð­ar­nefndar. Óljóst er þó hvað Klara eigi við þar sem ummæli Halldórs komu fram eftir aga- og úrskurð­ar­nefnd og áfrýj­un­ar­dóm­stóll úrskurð­uðu í mál­inu. Þá vildi Klara ekki tjá sig um hennar við­brögð við orðum Halldórs. 

Rúna Kristín Stef­áns­dóttir, aðstoð­ar­dóm­ari 1 í leiknum, vildi ekki tjá sig um málið en rétt er að taka fram að sjald­gæft er að starf­andi dóm­arar tjái sig um ein­stök til­felli í fjöl­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi