Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fyrrverandi barnastjarna rak Sigurð er hann bað um launaseðla: „Hann rífur almennt kjaft“

Fyrrverandi barnastjarna rak Sigurð er hann bað um launaseðla: „Hann rífur almennt kjaft“

Barna­stjarnan Einar átta­villti var árið 2004 sak­aður um að brjóta á starfs­manni sínum í Púst­þjón­ust­unni við Smiðju­veg í Kópavogi. Neitaði hann sök og sagði mann­inn hafa verið rek­inn af góðri ástæðu.

Sigurður Ólafsson bif­véla­virki sagði í DV á sínum tíma farir sínar ósléttar í sam­skiptum sínum við fyrr­ver­andi yfir­mann sinn, Einar Ólafsson, eða Einar átta­villta eins og hann var gjarnan kall­aður en hann sló í gegn sem krakki með lag­inu Þú vilt ganga þinn veg.

Vildi Sigurður meina að Einar hefði ekki látið hann fá launa­seðil allan tím­ann sem hann vann hjá honum eða í 16 mán­uði. Sagðist hann hafa marg­beðið hann um að borga í stétt­ar­fé­lag og líf­eyr­is­sjóð eins og lög gera ráð fyrir en að hann hafi ekki viljað gera það. Einar hafi síðan rekið hann þegar Sigurður bað um að hann borg­aði sér lög­bundið orlof.

Einar átta­villti þvertók fyrir að hafa brotið lög á starfs­mönnum sínum og sagð­ist hafa látið Sigurð fá launa­seðil. Seð­ill­inn hafi reyndar verið fyrir allt árið. Sagðist Einar hafa rekið Sigurð fyrir brot í starfi, meðal ann­ars fyrir að melda sig veikan án gildra ástæðna. Þá bætti hann við: „Hann rífur almennt kjaft.“

Fram kemur í frétt DV að orð Sigurðar standi oft gegn orði Einars í mál­inu en þó hafi Efling stétt­ar­fé­lag stað­fest að Sigurður hafi ekki greitt í stétt­ar­fé­lags- og líf­eyr­is­gjöld alla 16 mán­uð­ina sem hann vann hjá Einari. En gall­inn sé þó sá að hann hafi beðið í allan þennan tíma með að leita til Eflingar og því lítið hægt að gera.

Sigurður fékk fljót­lega nýja vinnu og sagð­ist ánægður að vera laus frá Púst­þjón­ust­unni.

Hér má lesa frétt­ana gömlu:

Barna­stjarna á púst­verk­stæði – Rak mann fyrir að biðja um launa­seðil

„Ég vann í 16 mán­uði hjá Einari átta­villta en hef aldrei fengið launa­seðil. Ég hef margoft beðið hann um að borga í stétt­ar­fé­lagið og líf­eyr­is­sjóð eins og lög gera ráð fyrir en það vill hann ekki gera. Svo þegar ég bað um að hann borg­aði mér lög­bundið orlof og að hann sendi mér launa­seðla á föstu­dags­kvöldið rak hann mig bara,“ segir Sigurður Ólafsson bif­véla­virki sem rek­inn var frá Púst­þjón­ust­unni hjá Einari við Smiðju­veg­inn í Kópavogi.

Barna­stjarnan fyrr­ver­andi, Einar Ólafsson, þekktur sem Einar átta­villti vegna lags­ins sem gerði hann frægan, er eig­andi póst­þjón­ust­unnar. Hann vísar því til föð­ur­hús­anna að hann bryti ein­hver lög á starfs­mönnum. „Sigurður fékk launa­seðl­ana sína og hér eru öll launa­tengd gjöld greidd. Hann fær bara ekki viku­lega eða mán­að­ar­lega launa­seðla, heldur fékk hann árlegan launa­seðil fyrir síð­asta ár,“ segir Einar og kveðst hafa rekið Sigurð vegna brota í starfi, svo sem að melda sig veikan á fölskum for­sendum. Einar ætlar ekki að borga Sigurði orlof frá ára­mótum, vegna þess að fyr­ir­tæk­inu hefur borist rukkun vegna van­greiddra opin­berra gjalda af launum Sigurðar.

Einar „átta­villti“ Ólafsson

Orð Sigurðar standa gegn orðum Einars um margt. Hins vegar getur stétt­ar­fé­lagið Efling skorið úr um hvort Einar hafi borgað stétt­ar­fé­lags­gjöld og líf­eyr­is­sjóðs­gjöld. Að sögn starfs­manns Eflingar hafði Einar ekki greitt stétt­ar­fé­lags- og líf­eyr­is­sjóðs­gjöld í byrjun mán­að­ar­ins, fyrir alla 16 mán­uð­ina sem Sigurður starf­aði hjá Einari. „Það er alveg ljóst að fyr­ir­tækið fór ekki að lögum,“ segir Tryggvi Mart­eins­son hjá Eflingu. „Vanda­málið í þessu er að starfs­mað­ur­inn er að vinna í 16 mán­uði án þess að gera athuga­semdir við að hann fékk enga launa­seðla. Fólk á ekki að bíða í meira en tvo eða þrjá daga með að kvarta til okkar undan því. Við höfðum ekk­ert í hönd­unum til að vinna í þessu máli, ekki launa­greiðslur og í raun­inni ekk­ert annað en þennan mann sem kom hingað og sagð­ist hafa unnið þarna,“ segir Tryggvi.

Sigurður hefur þegar fengið nýtt starf og kveðst feg­inn að losna úr púst­þjón­ust­unni en vill hins vegar vara aðra við. Einar leitar nú að öðrum starfs­manni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi