Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ingólfur missti son sinn: „Hann fékk pening frá hinu opinbera vikulega til að kaupa sér eiturlyf“

Ingólfur missti son sinn: „Hann fékk pening frá hinu opinbera vikulega til að kaupa sér eiturlyf“

Ingólfur Davíð Sig­urðs­son þurfti að fara í gegnum þá lífs­reynslu að jarða son sinn eftir of stóran skammt af lyfjum. Ingólfur, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar  lýsir því í þætt­inum hvernig var að fá frétt­irnar af því að strák­ur­inn hans væri far­inn:

„Ég hafði verið alla nótt­ina að bíða eftir ref sem ég var að ljós­mynda og það gekk vel. En þegar ég gekk út af vinnu­stof­unni minni mætti ég lög­reglu og presti. Ég vissi strax hvað hefði gerst. Á þessu augna­bliki hvarf spenna sem hafði verið í mér í 4-5 ár, af því að ég vissi ein­hvern vegin að þetta gæti gerst. Þarna var komin nið­ur­staða. En svo kemur sorgin, reiðin, sjálfs­á­sak­an­irnar og allt hitt og þegar ég horfi til baka er það guðs mildi að maður hafi ekki misst vitið. Það er erfitt að lýsa því hvernig það er að vera allt í einu í þeirri stöðu að hafa misst barnið sitt á þennan hátt. Svo bæt­ast ofan á þetta spurn­ingar um vinnu­brögð spít­al­ans. Þegar hann deyr var búið að fara með hann upp á spít­ala og dæla upp úr honum, en hann vildi ekki  vera áfram á spít­al­anum og honum var leyft að fara. Svo bara dó hann. Ég skil ekki hvernig þú getur „over­dósað“ og svo ertu bara sendur heim. En ég hef með­vitað ákveðið að fest­ast ekki í því að skoða verk­ferla spít­al­ans, ein­fald­lega af því að ég þarf að gera mitt besta til að halda geð­heilsu. Það var í raun bara ísköld ákvörðun að ákveða að fest­ast ekki í slag við kerfið,“ segir Ingólfur, sem seg­ist brenna fyrir að opna umræðu um unga karl­menn sem enda annað hvort látnir eða fest­ast í fang­elsum eftir að hafa verið hafnað af skóla­kerf­inu:

„Ég er sjálfur þessi strákur og hefði svo auð­veld­lega getað endað í fang­elsi eða dauður. Með ADHD og ofvirkni og pass­aði ekki í skóla­kerfið. Svo kem ég úr aðstæðum þar sem var mikið af áföllum. En þegar ég var að alast upp var ekk­ert talað um þessa hluti. Maður var bara stimpl­aður heimskur og óþekkur. Maður átti í raun ekki séns að passa inn í kerfið eins og það var sett upp og það var ekk­ert gert til að koma til móts við mann. Ég var stór og sterkur miðað við aldur og end­aði oft í fanga­klefum og var stöðugt í vand­ræðum. En innst inni lang­aði mig aldrei að vera þessi gaur og fór snemma að leita að leiðum til að finna ein­hverja lausn,“ segir Ingólfur, sem hefur verið edrú í 19 ár og segir sam­bland af áhuga­málum, 12 spora vinnu, bæn, hug­leiðslu og fleiri hlutum hafa hjálpað sér að ná jafn­vægi.

„Eftir að ég fór að ná meira jafn­vægi fór ég að geta spáð í því hvers vegna ég var alltaf svona sem barn, ung­lingur og ungur maður. Ég hef alltaf glímt við mik­inn athygl­is­brest og ég er alltaf að glíma við þetta sam­tal innra með mér hvort að ég sé heimsk­ingi. Svo er ég líka les­blindur og skrif­blindur og þegar skóla­kerfið hefur sagt við þig í áraraðir að þú sért vit­leys­ingur ferðu smám saman að trúa því sjálfur. Svo tekur maður þetta með sér inn í full­orð­ins­árin og reynir ein­hvern vegin að bíta bara á jaxl­inn og halda áfram.“

Ingólfur seg­ist snemma hafa séð stefna í vanda­mál hjá syni sínum, en hann hafi allt fram undir það síð­asta trúað því að á end­anum myndi hann finna sig:

„Hann var rosa­lega ofvirkur og með mik­inn athygl­is­brest og hömlu­laus. Ég sá sjálfan mig mjög mikið í honum og kall­aði hann Úlfar minn oft klónið mitt. Hann gekkst upp í að vera þessi gaur sem væri með stæla, væri að lemja frá sér og vera með stelpum. Þar var hans sjálfs­virð­ing. En ég trúði því samt alltaf að þetta yrði allt í lagi. Ekki síst af því að hann ólst upp á heim­ili þar sem var ekki alkohól­ismi og mið­aði við minn upp­vöxt. En hann fór mjög snemma að leit­ast við að kom­ast í breytt ástand og pass­aði alls ekki inn í skóla­kerfið. Þrátt fyrir að ég trúi því að allir séu að reyna sitt besta, þá erum við ekki að ná utan um þessa ein­stak­linga. Við vitum að Litla Hraun er upp­fullt af karl­mönnum sem hafa ekki passað inn í skóla­kerfið og eru með ofvirkni og athygl­is­brest. Ég dans­aði sjálfur á þessarri línu og ef ég hefði ekki verið góður í íþróttum hefði ég verið með þeim í fang­elsi. Þetta er svo þunn lína og við verðum að skoða hvort við getum ekki gert betur.“

Ingólfur segir að það vanti úrræði í kerfið fyrir yngri ein­stak­linga sem eru búnir að mála sig út í horn:

„Ég veit að það eru allir að gera sitt besta og ég vil ekki fest­ast í því að ráð­ast á kerfið, en við getum samt gert betur. Þegar strák­ur­inn minn var búinn að mála sig út í horn alls staðar fór hann í rán­dýrt úrræði þar sem hann fékk útborgað frá félags­mála­stofnun á hverjum föstu­degi. Hann fór alltaf beint með pen­ing­ana frá hinu opin­bera og keypti sér eit­ur­lyf. Ég vildi ekki að hann væri að fá þennan pen­ing, en gat ekk­ert gert. Hann átti rétt á að fá þessa pen­inga og ég gat ekki gert neitt til að breyta því. Strák­ur­inn minn hefði átt að vera í ung­linga­fang­elsi, en það er ekki í boði á Íslandi. Þannig að í stað­inn var hann í úrræði þar sem hið opin­bera lét hann hafa pen­ing fyrir eit­ur­lyfjum á hverjum föstu­degi.“

Ingólfur segir að eftir því sem árin hafi liðið hafi hann byrjað að átta sig á því að annað hvort myndi strák­ur­inn hans finna botn­inn algjör­lega og ná að spyrna sér upp, eða hann myndi láta lífið. Það væri eng­inn milli­vegur:

„Það hljómar kannski brú­tal, en ég var að von­ast til að kerfið myndi hætta að hjálpa honum að halda lífs­stílnum gang­andi. Ef hann hefði þurft að fara á göt­una veit ég að hann hefði ekki höndlað það í tvo daga og þá hefði hann þurft að finna botn­inn. Í sumum til­fellum erum við að taka á alvar­legum málum eins og þau séu ein­hver búð­inga­mál,“ segir Ingólfur og heldur áfram:

„Strák­ur­inn minn kemur aldrei til baka og sárið innra með mér grær lík­lega aldrei. En verk­efnið mitt er að læra af þessu og nota þessa reynslu til gagns fyrir aðra. Hluti af því að lifa svona lagað af er að finna til­gang­inn í reynsl­unni. Þegar maður sam­þykkir raun­veru­leik­ann eins og hann er byrja hlut­irnir hægt og rólega að skána. Nú eru liðin tvö og hálft ár og ég á alltaf betri og betri daga. Það koma dagar þar sem maður missir sig í ráða­leysi, en leiðin til baka er alltaf að finna þakk­lætið, tala við guð og finna til­gang­inn.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Ingólf og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi