Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Suðurnesjabær ósáttur við komu hælisleitenda: „Engir innviðir til að taka á móti þessum fjölda“

Suðurnesjabær ósáttur við komu hælisleitenda: „Engir innviðir til að taka á móti þessum fjölda“
Suð­ur­nesja­bær Mynd: visitreykjanes.is

Bæjarráð Suð­ur­nesja­bæjar er ósátt við að Vinnu­mála­stofnun ætli sér að senda 120 hæl­is­leit­endur í bæinn og segja inn­við­ina ekki til staðar til að taka á móti þessum fjölda.

Á bæj­ar­ráðs­fundi þann 30. ágúst síð­ast­lið­inn, ítrek­aði bæj­ar­ráð Suð­ur­nesja­bæjar bókun sína frá því fyrr um sum­arið, þar sem lýst var miklum áhyggjum yfir „þessum ein­hliða áformum rík­is­ins og lýsir von­brigðum með að afstaða sveit­ar­fé­lags­ins virð­ist ekki hafa nein áhrif í því sam­bandi,“ og átti þá við þau áform Vinnu­mála­stofn­unar að senda 120 hæl­is­leit­endur í Suð­ur­nesjabæ. Í bók­un­inni kemur fram að inn­viðir bæj­ar­ins ráði illa við slíkan fjölda, sér­stak­lega í ljósi þess að bæj­ar­fé­lagið ann­ast það verk­efni að veita for­ráða­lausum börnum sem hingað koma um Kefla­vík­ur­flug­völl, skjól og þjón­ustu, „sem felur í sér mikla áskorun sér­stak­lega fyrir félags­þjón­ustu og barna­vernd.“

„Sveit­ar­fé­lagið hefur í raun ekk­ert vopn í hönd­unum eða ekk­ert um þetta að segja,“ sagði Anton Kristinn Ant­ons­son, for­maður bæj­ar­ráðs, í sam­tali við Mannlíf. „Vegna þess að þetta er ríkið að semja beint til einka­að­ila, sveit­ar­fé­lagið á ekki húsið.“ Húsið sem hýsa á hæl­is­leit­end­urna heitir Garð­vangur en þar er starf­rækt dagdvöl eldri borg­ara.

„Við höfum bent á að það eru engir inn­viðir til að taka á móti þessum fjölda,“ sagði Anton og hélt áfram: „Út af því að við erum með gríð­ar­lega stórt og umfangs­mikið verk­efni í hönd­unum sem snýr að vega­lausum börnum.“ Ástæðan segir Anton vera þá að vegna þess að Flugstöð Leifs Eiríks­sonar er á landi Suð­ur­nesja­bæjar, falli öll börn sem koma for­eldra­laus til lands­ins um flug­völl­inn, undir barna­vernd bæj­ar­ins. „Það er á þeim for­sendum sem við erum and­víg þessum áformum Vinnu­mála­stofn­unar um að koma með þessa umsækj­endur um alþjóð­lega vernd, út af því að við höfum ekki inni­viði.“

Anton bætti einnig við að í hús­næð­inu sem ætlað er að hýsa hæl­is­leit­end­urna, sé einnig dagdvöl aldr­aðra til húsa. „Dagdvöl aldr­aðra er í sama húsi en það er á vegum rík­is­ins og kostað af því.  En við lýstum auð­vitað yfir áhyggjum af því líka.“

Hér má sjá bókun bæj­ar­ráðs­ins:

Sam­skipti við Vinnu­mála­stofnun varð­andi áform um búsetu umsækj­enda um alþjóð­lega vernd í Suð­ur­nesjabæ. Guðrún B Sig­urð­ar­dóttir sviðs­stjóri fjöl­skyldu­sviðs sat fund­inn undir þessum dag­skrár­lið.

Í ljósi þess að Vinnu­mála­stofnun hefur til­kynnt að unnið sé að því að koma upp búsetu fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd í Suð­ur­nesjabæ, ítrekar bæj­ar­ráð bókun bæj­ar­ráðs frá 12. júlí 2023 sem komið var á fram­færi við ráð­herra og fleiri aðila í stjórn­kerf­inu. Þar koma m.a. fram áhyggjur bæj­ar­ráðs af því að með þessu muni verða miklar áskor­anir gagn­vart innviðum sveit­ar­fé­lags­ins og að sú þjón­usta sem sveit­ar­fé­lagið heldur úti fyrir íbú­ana muni ekki standa undir því að fá fjölda umsækj­enda um alþjóð­lega vernd til búsetu í sveit­ar­fé­lag­inu. Þá benti bæj­ar­ráð á að Suð­ur­nesja­bær ann­ast það verk­efni að veita fylgd­ar­lausum börnum skjól og þjón­ustu, sem felur í sér mikla áskorun sér­stak­lega fyrir félags­þjón­ustu og barna­vernd. Bæjarráð ítrekar áhyggjur af þessum ein­hliða áformum rík­is­ins og lýsir von­brigðum með að afstaða sveit­ar­fé­lags­ins virð­ist ekki hafa nein áhrif í því sam­bandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi