Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Poula ætlar að kæra þann sem hjólaði á hana: „Sjálfsmyndin mín er í fokki eftir þetta kvöld“

Poula ætlar að kæra þann sem hjólaði á hana: „Sjálfsmyndin mín er í fokki eftir þetta kvöld“
Poula Rós, sama kvöld og slysið varð. Mynd: Aðsend

Poula Rós Mittel­stein ætlar sér að kæra ein­stak­ling­inn sem hjólaði á hana um helg­ina á raf­magns­hlaupa­hjóli. Framtönn datt úr henni og tvær tennur losn­uðu. Höggið var svo slæmt að hún man ekk­ert eftir atvik­inu.

Poula Rós eftir árekst­ur­inn

Mannlíf sagði frá því að Poula Rós, þrí­tug, þriggja bara móðir sem býr á Reyð­ar­firði, hefði leitað á náðir Facebook við að finna vitni að því sem hún taldi í fyrstu hafa verið lík­ams­árás á hana. Hún hafði farið út að skemmta sér í miðbæ Reykja­víkur um síð­ustu helgi en vaknað á sjúkra­húsi með brotna fram­tönn, lausar tennur og bólgið and­lit. Þegar á leið á sunnu­dag­inn fékk Poula þær upp­lýs­ingar að ekki hefði verið ráð­ist á hana, heldur hafi ein­stak­lingur hjólað á hana á raf­magns­hlaupa­hjóli. Var Poulu sagt af lög­reglu­konu að mað­ur­inn hefði hjólað í burtu eftir slysið en sam­kvæmt upp­lýs­ingum Mannlífs er það rangt, lög­reglan ræddi við mann­inn á vett­vangi.

Mikil aukning slysa

Guð­mundur Pétur Guð­munds­son lög­reglu­full­trúi sagði í sam­tali við Mannlíf að tekin hafi verið prufa af mann­inum til að sjá hvort hann hefði verið undir áhrifum. „Það á svo bara eftir að koma í ljós. Eins og í öllum umferða­slysum er tekið sýni og það kemur bara í ljós.“
Aðspurður hvort fjölgun hafi orðið í raf­hlaupa­hjólaslysum segir Guð­mundur svo vera. „Þetta er búið að stór­aukast. Það er svo mik­ill hraði á þessum hjólum. Þó að þau séu ekki öll breytt, þá eru þau á alveg 20, 25 kíló­metra hraða og þú beygir kannski snögg­lega af gang­stétt­inni og yfir gang­braut. Og umferðin, þó hún sé ekk­ert hrað­ari en vana­lega þá er fólk ekki orðið nógu vant þessu. Það liggur við að öll svona hjól ættu ekki að kom­ast hraðar en á 10 niðri í bæ og við stórar umferð­ar­æðar, á ákveðnum tímum.“

Ætlar að kæra

Poula sagði í sam­tali við Mannlíf í dag að hún hafi hringt í lög­regl­una í dag og sagt henni að hún hyggð­ist kæra öku­mann raf­hlaupa­hjóls­ins og bíður nú sím­tals frá lög­regl­unni þar sem hún verður boðuð í við­tal. Poula fór til tann­læknis á mánu­dag­inn. „Ég borg­aði 200.000 fyrir að láta rétta allan góm­inn, þarf tvö inn­plant sem er ekki hægt að setja strax í því beinið er brotið. Hann saum­aði líka var­irnar að innan og skurð­inn þar sem fram­tönnin brotn­aði úr. Er mjög illa farin í munn­inum.“

Að sögn Poulu er sjálf­myndin í molum eftir slysið. „Ég er bara rosa­lega lítil í mér og sjálfs­myndin mín í fokki eftir þetta kvöld.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi