Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sveinn Rúnar: „Helför í beinni útsendingu framundan undir lófataki alþjóðasamfélagsins“

Sveinn Rúnar: „Helför í beinni útsendingu framundan undir lófataki alþjóðasamfélagsins“
Sveinn Rúnar Hauksson Mynd: Facebook-skjáskot

Sveinn Rúnar Hauksson segir Palest­ínu­menn hafa fullan rétt á að verja sig, rétt eins og aðrar þjóðir. Segir hann hel­för gegn íbúum Gasa-strand­ar­innar framundan.

Sveinn Rúnar Hauksson, heim­il­is­læknir og fyrr­ver­andi for­maður Félags­ins Ísland-Palest­ína, er senni­lega sá Íslend­ingur sem hvað oft­ast hefur komið til Palest­ínu en Mannlíf heyrði í honum og ræddi við hann um það stríð sem nú geysar á milli Palest­ínu og Ísrael. „Þetta blasir við mér sem algjör hryll­ingur,“ sagði Sveinn Rúnar um ástandið og hélt áfram. „Og talsmát­inn í Ísra­els­stjórn sem talar um Pal­er­stínu­menn og íbúa Gasa sem skepnur og villi­dýr, þetta séu mein­dýr sem eigi að eyða. Ég er satt að segja hissa á Rík­is­út­varp­inu að vera að hafa svona ummæli eftir. Þetta er svo gróft að það á ekki að maður á ekki að þurfa að hlusta á þetta í útvarpi. Það er því­líkt mann­hatur og fyr­ir­litn­ing í þessu. Það er ras­ismi allt um líkj­andi sem öllu ræður í Ísrael, þótt við eigum mikið af góðum vinum þar sem eru góðar mann­eskjur, þá hefur þessi öfga­stefna algjör­lega orðið ofan á. Þessi mann­hat­urs­stefna.“ Sveinn Rúnar segir að fyrir einum til tveimur ára­tugum hefði ekki komið til greina að menn á borð við öfga­stefnu­menn­ina, þá Bezalel Smotrich og Itamar Ben-Gvir, ættu erindi á ísra­elska þingið en nú séu þeir ráð­herrar. „Það hafa orðið svo miklar breyt­ingar á til­tölu­lega fáum árum. Þeir til­heyra sam­tökum sem voru bönnuð, bæði í Banda­ríkj­unum og í Ísrael, fyrir kyn­þátta­hatur. Þetta eru menn í raun og veru heimta að Palest­ínu­mönnum verði útrýmt.“

Helför framundan

Og Sveinn Rúnar kvíðir fyrir næstu dögum. „Það er kvíð­væn­legt að næstu daga eigum við að horfa upp á hel­för gegn íbúum Gasa-strand­ar­innar. Helför sem verður í beinni útsend­ingu og við lófatak hins svo­kall­aða alþjóða­sam­fé­lags­ins! Þetta er svo óhugn­an­legt og ég hef aldrei upp­lifað daga eins og þessa.“

Aðspurður hvort honum finn­ist ekki skrítið að hvorki leyni­þjón­usta Ísraels né Banda­ríkj­anna hafi vitað af kom­andi árás frá Gasa-strönd­inni, seg­ist Sveini Rúnari finn­ast það en vilji ekki trúa sam­sær­is­kenn­ingum „Það er ótrú­lega ein­kenni­legt að á ensku var sagt að aðvör­un­ar­kerfið hefði verið „jammed“, að það hefði verið bilað. En ég meina, er þá ekki hlaupið til að gert við bil­anir? Þetta er mjög ein­kenni­legt mál allt saman en það er ekk­ert óeðli­legt að það kom­ist á kreik sögu­sagnir og grun­semdir um það að þetta hafi bein­línis verið fram­kallað en ég vil ekki leggja trúnað á það. Ég trúi ekki á því­líkt ógeð í mann­eskj­unni.“

Ekki Hamas sem réðist yfir landamærin

Þá segir Sveinn Rúnar að það hafi ekki verið Hamas sem hafi ráð­ist inn í Ísrael, heldur Al-Quassam-her­fylk­ingin. „Þetta eru hryggi­legir atburðir sem maður varð vitni að í þess­ari árás, það er alltaf talað um Hamas sam­tökin en þetta eru ekki þau, heldur Al-Quassam, sem er undir stjórn Muhammed Deif og hann heyrir ekk­ert undir Ismail Haniyeh [póli­tískur leið­togi Hamas. inn­skot blaða­manns.].“ Segist Sveinn Rúnar hafa séð her­sýn­ingu hjá þeim á Gasa en að hún hafi verið hálf bros­leg. „Þetta voru nú ekki merki­leg vopnin sem þeir voru að sýna á þess­ari her­sýn­ingu en þetta var mik­ill fjöldi af mönnum, alveg gríð­ar­legur fjöldi af mönnum sem héldu á hand­vopnum og mar­ser­uðu eftir göt­unum og fylltu langar götur á Gasa-strönd­inni.“ Þá segir Sveinn Rúnar að Hamas-sam­tökin hafi á sér ýmsar hliðar, hún sé trú­ar­leg hreyf­ing og að hún sé líka með félags­legs­þjón­ustu sem sé með hálf­gerða félags­mála­þjón­ustu eins og við þekkjum hér á landi, þar sem fátækum og illa stöddum er hjálpað. „Það var það sem gerði þá svo vin­sæla sem varð til þess að þeir unnu óvænta sigra í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum árið 2005, áður en þing­kosn­ing­arnar urðu. En svo unnu þeir eins og frægt er, þing­kosn­ing­arnar 2006, sem eru síð­ustu kosn­ing­arnar. Þarna er starf­andi stjórn með for­sæt­is­ráð­herra, heil­brigð­is­ráð­herra og öðrum ráð­herrum sem eru að reyna að takast á við þessa inni­lokun, takast á við þetta ástand sem her­námið veldur og er búið að gera það að verkum að þetta er engu lagi líkt. Lífið sem fólk­inu er boðið upp á, þar sem vatni hefur verið skammtað, raf­magnið hefur verið skammtað og nú er lokað fyrir þetta allt saman. Það er búið að eyði­leggja allt við­skipta­líf þarna, þeir geta ekk­ert flutt af sínum góðu ávöxtum. Þetta er eitt besta sítrusá­vaxta­svæði heims, þeir voru frægir fyrir sítrusá­vexti sína, öfugt við það sem fólk heldur, að Gasa-ströndin sé bara eyði­mörk þar sem ekk­ert vaxi, Það vex allt á Gasa! Öll bibl­íu­tréin eru þarna, fíkju­trén og döðl­urnar og fleira. Þetta er í raun alveg dásam­legt land. En þetta er pínu­lítið land og þétt­býlt.“

Skelkaðir Palestínumenn flytja sig á milli húsa

Sveinn Rúnar segir það hafa verið tákn­rænt hjá Ísra­els­mönnum að sprengja ell­efu hæða íbúða­bygg­ingu á Gasa-strönd­inni á fyrsta degi stríðs­ins en húsið er kallað Palest­ínu­turn­inn. „Þeir sögðu að Hamas-menn hefðu verið þar en þetta er íbúð­ar­bygg­ing sem að lög­fræð­ingar og fjöl­miðlar hafa líka verið með skrif­stofur í.“ Lækn­ir­inn segir að vinir hans í Palest­ínu séu að flytja á milli húsa og nefnir lækni sem hann þekki sem búinn er að koma sér fyrir hjá dóttur sinni sem búi mögu­lega á örugg­ara svæði. „Svo heyrði ég í öðrum lækni, það er ekkja sem missti mann­inn sinn í stríð­inu 2014 en þá voru nú 551 barn myrt af Ísra­els­her. 551 barn! Yfir 2300 manns voru drepin á þeim 50 dögum. Þetta verður marg­falt verra, það sem vofir yfir núna.“

En eru palest­ínskir vinir Sveins Rúnars ekki dauð­skelk­aðir?

„Jú auð­vitað, þetta er ógvekj­andi og fólk er líka harmi slegið yfir þessu mann­falli, því þettaer miklu nær, það upp­lifir þetta ekki sem tölur heldu sem fólk og fjöl­skyldur og aðstand­endur sem eru að missa sína.“ Sveinn Rúnar segir að mann­fallið Ísraels meg­inn sé ótrú­lega mikið og að þeir hafi ekki séð annað eins.

Rétturinn til að verja sig

Nefnir hann að her­námið hafi nú staðið yfir í 75 ár og að her­nám allrar Palest­ínu hafi nú verið við lýði í 56 ár. „Og það eru 17 ár sem Gasa-svæðið hefur verið algjör­lega lokað inni á svona grimmi­lega hátt. Og þegar við horfum á afleið­ingar þess­arar sóknar bar­áttu­sveit­anna sem fóru yfir landa­mærin, þá er þetta fólk sem á sér enga fram­tíð. Ekki nema á himnum, þeir trúa því. Þeir trúa því að ef þeir falli fari þeir beint til himna. Það er engin vinna, engin von um fram­tíð. Það er ekki matur, það er ekki vatn, það er ekki vinna, það er ekki raf­magn. Ekki nema því sem Ísra­els­mönnum dettur í hug að skammta hverju sinni. Þess vegna verður að skilja við­brögð Palest­ínu­manna á Vest­ur­bakk­anum og almennt. Þessari árásir sína að Ísrael er ekki eins öruggt og þeir héldu. Það er ekki svona ósigr­andi. Hverjum hefði dottið í hug framan af í Víetnam-stríð­inu að Víetna­mar gætu unnið Banda­ríkin, mesta heims­veldi sög­unnar? En þeir gerðu það bara líka hern­að­ar­lega, ekki bara sið­ferði­lega. Ég er ekki að segja að þetta sé sam­bæri­legt en engu að síður gaf sigur Víetnama mörgum þjóðum von. Og þó að mörg grimmi­legt verk hafi verið framin af Palest­ínu­mönnum þá verður líka að minn­ast þess að þetta er þjóð sem er búið að búa við svo skefja­lausa og grimmi­lega kúgun í ára­tugi og við skulum líka minn­ast þess, það er talað um að Ísra­els­menn hafi rétt á að verja sig, að Ísrael eigi rétt á öryggi. Þjóð sem kemur svona fram við sína nágranna eins og Ísrael hefur gert, hún getur ekki búist við öryggi og friði. Það hefur sér­hver þjóð rétt á að verja sig, það þarf ekki að deila um það. Palest­ínu­menn hafa það líka. Þeir hafa búið við þetta her­nám og sam­kvæmt alþjóða­lögum hafa þeir, rétt eins og Úkra­ínu­menn, rétt til þess að berj­ast gegn her­nám­inu með öllum þeim ráðum sem þeir hafa yfir að ráða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi