Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sara Odds: „Þessi þjóð er enn að vinna úr sameiginlegri áfallastreitu“

Sara Odds: „Þessi þjóð er enn að vinna úr sameiginlegri áfallastreitu“
Sara Odds Mynd: Trausti Hafsteinsson

Sara Odds­dóttir mark­þjálf­ari og lög­fræð­ingur segir að fólk upp til hópa hafi týnt sinni eigin rödd og þar með ástríð­unni og lífs­gleð­inni. Sara, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar  talar í þætt­inum um hvernig skil­yrð­ingar valdi því að fólk missir sjónar á draumum sínum:

„Það eru skil­yrð­ingar úti um allt sem hafa mikil áhrif á okkur. Auðvitað þarf að hafa reglur í sam­fé­lagi manna, en mjög mikið af fólki hefur týnt ástríð­unni af því að það er orðið alveg fast í skil­yrð­ing­unum. Ég sé þetta mjög mikið í störfum mínum. Fólk er búið að týna sinni eigin rödd af því að það hefur í áraraðir gert það sem er ætl­ast til af því í stað þess að fara sínar eigin leiðir. Þegar ég vinn með fólki og við förum inn í þetta kemur yfir­leitt fyrst við­nám, þar sem fólk finnur allar ástæður sem til eru til þess að taka ekki stökkið. En svo hægt og rólega fer fólk að átta sig á því að það er fast í skil­yrð­ingum um að eitt­hvað slæmt sé að fara að ger­ast. Þá fer að opn­ast fyrir rödd­ina sem segir fólki hvað það raun­veru­lega vill. Þegar sú teng­ing er komin og byrjar að styrkj­ast verður auð­veld­ara að sleppa tak­inu, taka hug­rakkar ákvarð­anir og gera það sem maður raun­veru­lega vill gera í líf­inu. Ef maður hefur aldrei tekið U-Beygju verður sú fyrsta alltaf erfið. Ef þú fórst bara í skóla, hélst svo áfram í meira nám og beint í vinn­una sem var eðli­legt fram­hald er eðli­lega erfitt að taka fyrsta stökkið og mót­stöð­urnar eru miklar. En yfir­leitt kemst fólk svo að því að ef við leyfum okkur að gera það sem við elskum falla hlut­irnir oftar en ekki með okkur.“

Sara hefur sjálf tekið fleiri en eina U-beygju í líf­inu eftir að hafa fundið að ástríð­una vant­aði í það sem hún var að gera:

„Ég rak tísku­versl­anir eftir að hafa alist upp í tísku­geir­anum og var algjör­lega sann­færð um að það væri það sem ég vildi gera í líf­inu. En á ein­hverjum punkti átt­aði ég mig á því að þessi draumur var bara byggður á hug­myndum úr æsk­unni og ákveð­inni minni­mátt­ar­kennd. En eftir að ég hafði menntað mig í lög­fræði tók ég svo í raun aðra U-beygju og átt­aði mig á því að ég vildi vinna með fólki. Það er auð­vitað meira en að segja það að ákveða að hætta ein­hverju sem maður hefur lagt mik­inn pen­ing, tíma og metnað í að gera, en á end­anum verður maður að elta ástríð­una og gera það sem raun­veru­lega nærir mann og fyllir mann eld­móði,“ segir Sara, sem seg­ist alltaf hafa verið þannig af guði gerð að hún hafi þorað að fara eigin leiðir. Í þætt­inum segir hún  til að mynda sögu af sjálfri sér þegar hún var við ferm­ing­ar­aldur og ákvað að kaupa sér hest án mik­ils fyr­ir­vara:

„Ég var búin að vera alveg hel­tekin af hestum í langan tíma þó að það væri eng­inn í kringum mig í hesta­mennsku. Einu skiptin sem ég var nálægt hestum þegar for­eldrar mínir sendu mig í sveit á sumrin. Svo er það árið sem ég er að ferm­ast að ég seldi mér þá hug­mynd að ég gæti fengið hest og til þess að fá hann yrði ég bara að fara upp í sveit og kaupa hann. Ég var búin að reikna mig þangað að ferm­ingin myndi skila mér nægum pen­ing til að kaupa hest­inn og fór bara í málið. En svo var það sím­talið við pabba þar sem ég þurfti að segja honum frá þessu og finna út úr því hvernig ætti að koma hest­inum í bæinn og hvernig ætti að borga fyrir hann!“

Í þætt­inum ræða Sölvi og Sara líka um sögu Íslands og hvernig hún verði að spila inn í umræð­una um til­finn­ingar og and­lega líðan hér á landi:

„Aðstæð­urnar sem fólk bjó við fyrir ekki svo löngu voru mjög harð­neskju­legar og það var lík­lega ekki mikið rými fyrir úrvinnslu til­finn­inga og áfalla. Við komum úr gríð­ar­lega hörðum aðstæðum þar sem hér var bar­átta upp á líf og dauða alla daga fyrir ekki svo löngu síðan. Við þurfum ekki að fara nema  3-4 kyn­slóðir aftur í tím­ann til að sjá þær aðstæður að fólkið hér var að berj­ast fyrir lífi sínu alla daga, konur á mínum aldri höfðu kannski átt 10 börn og aðeins 5 voru á lífi og voru búnar að missa 2 menn. Menn fóru út á sjó í ein­verjum ára­bátum í óveðrum upp á von og óvon og svo þurfti bara að halda áfram með lífið. Það er stað­ur­inn sem við erum að koma frá og í raun er þessi þjóð enn að vinna úr sam­eig­in­legri áfallastreitu fyrri kyn­slóða,“ segir Sara og heldur áfram:

„Núna búum við í allt ann­ars konar aðstæðum, þar sem allt hefur batnað og efna­hagur þjóð­ar­innar gjör­breytt­ist. En engu að síður hefur okkur á ein­hvern hátt aldrei liðið verr og nán­ast allar tölur um geð­heil­brigði eru á leið­inni í ranga átt. Við verðum öll að taka sam­tal um það hvað við ætlum að gera í því. Þó að lyf eigi fullan rétt á sér getur það ekki verið eina lausnin að stærri og stærri hluti bæði barna og full­orð­inna sé settur á lyf við geð­sjúk­dómum.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Söru og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi