Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vítahringur örvæntinga á leigumarkaði: „Fjórfalt líklegri en aðrir til að fremja sjálfsvíg“

Vítahringur örvæntinga á leigumarkaði: „Fjórfalt líklegri en aðrir til að fremja sjálfsvíg“
Reykja­vík – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint – Mynd / Envato Elements

Guð­mundur Arn­gríms­son skrif­aði pistil um skelfi­legt ástand á húsa­leigu­mark­aði.

Guð­mundur Arn­gríms­son, for­maður Leigj­enda­sam­stak­anna, skrif­aði fyrr í dag pistil þar sem hann ræðir um ástandið á húsa­mark­aðnum á Íslandi. Að hans mati er ástandið skelfi­legt og það þurfi að grípa inn í með ein­hverjum hætti. Hækkun á leigu, lítið fram­boð og óör­yggi er allt hlutir sem hann tekur fyrir í pistl­inum.

„Öruggt og stöðugt hús­næði skiptir öllu máli í þroska og heil­brigði ein­stak­linga og fjöl­skyldna. Öryggi og stöð­ug­leiki í hús­næð­is­málum er því eitt stærsta og mik­il­væg­asta lýð­heilsu­verk­efnið í okkar sam­tíma. Hvernig okkur tekst til ræður úrslitum um heil­brigði sam­fé­lags­ins til bæði styttri og lengri tíma. Á hinn bóg­inn veldur hús­næðisó­ör­yggi víð­tækum félags­legum og sál­rænum áhrifum hjá þeim sem það upp­lifa. Eftir því sem óör­yggið er meira því meiri líkur eru á að áhrifin verði lang­vinn og valdi víta­hring örvænt­ingar og kvíða sem leiðir af sér umfangs­mik­inn heilsu­brest og jað­ar­setn­ingu hjá mörgum.“ sagði Guð­mundur í pistl­inum sem birt­ist á Vísi fyrr í dag. 

„Hús­næð­is­ör­yggi er gríð­ar­lega þýð­inga­mikið því það hefur víð­tæk áhrif alla vel­ferð sem og sam­fé­lags­legan og efna­hags­legan stöð­ug­leika. Það hafa allar rann­sóknir sýnt und­an­farna ára­tugi. Þannig er hús­næð­is­ör­yggi grund­völlur fyrir félags­legar fram­farir og virkni lýð­ræð­is­ins. Að sama skapi hefur það afger­andi áhrif á getu og stöðu ein­stak­linga til að taka þátt í sam­fé­lag­inu og finna sköp­un­ar­krafti sínum og starfs­orku far­veg.“

„Alþjóð­legar rann­sóknir stað­festa jafn­framt að leigj­endur sem búa við óör­yggi í hús­næð­is­málum, yfir­vof­andi hús­næð­is­missi eða tíða flutn­inga eru mun lík­legri en aðrir til að eiga í and­legum erf­ið­leikum eða upp­lifa hrak­andi geð­heilsu. Þegar búið er að meta allar félags-, heilsu­fars- og fjár­hags­legar breytur stendur eftir að leigj­endur eru tvö­falt lík­legri til að upp­lifa hrak­andi and­lega heilsu en aðrir. Sænskar rann­sóknir hafa sýnt fram á að fólk sem býr við slíkt óör­yggi eru rúm­lega fjór­falt lík­legri en aðrir til að fremja sjálfs­víg,“ sagði Guð­mundur og að óör­yggið hafi sér­stak­lega mikil áhrif á börn og hafi mót­andi áhrif á þroska og vellíðan þeirra.

„Húsa­leiga hefur hækkað um rúm­lega 160% á und­an­förnum rúmum ára­tug. Það hefur ríkt lög­leysa um vísi­tölu­teng­ingu húsa­leigu­samn­inga í ald­ar­fjórð­ung en tíðni hennar er marg­falt hærri en í öðrum löndum og veldur búsifjum fyrir leigj­endur. Hús­næð­is­byrði leigj­enda hefur að jafn­aði verið 45% á und­an­förnum fimm árum og veldur hún hlut­falls­lega þrefalt meiri fátækt hjá leigj­endum en ann­ars­staðar í álf­unni skv. rann­sókn vel­ferða­vakt­ar­innar. Álag húsa­leigu á lág­marks­laun á Íslandi er tæp­lega 50% hærri hér en á hinum norð­ur­lönd­unum.“ sagði for­mað­ur­inn og að Íslandi sé það land sem er með hæsta hlut­fall af hús­næði á skamm­tíma­leigu­mark­aði af öllum löndum Evrópu.

„Til eru margar skil­grein­ingar á góðri geð­heilsu en flestar snúa þær að því að fólk sé sátt við sjálft sig og umhverfi sitt, upp­lifi jafn­vægi og öryggi þannig að það geti þróað með sér færni til að takast á við áskor­anir lífs­ins. Eigum við ekki að byrja þar? Eigum við ekki að gera fólki og ekki síst leig­ejndum kleift að öðl­ast öryggi og jafn­vægi, eða ætlum við bara halda áfram að dæla lyfjum í börn á leigu­mark­aði svo að þau geti afborið áföllin sem þau verða fyrir?“

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent er á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og net­spjall Rauða kross­ins 1717.is. Opið allan sól­ar­hring­inn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráð­gjöf í síma 552-2218, allan sól­ar­hring­inn. Net­spjall Heilsu­veru þar sem svarar hjúkr­un­ar­fræð­ingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi má fá stuðn­ing í sorg hjá Sorg­ar­mið­stöð og hjá Pieta sam­tök­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi