Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Umdeildur skattsvikari verktaki hjá Úrvali Útsýn: „Þjófur sem ég vil ekki eiga samskipti við“

Umdeildur skattsvikari verktaki hjá Úrvali Útsýn: „Þjófur sem ég vil ekki eiga samskipti við“

Viktor Heiðdal Sveins­son, sem sak­felldur var fyrir skatta­laga­brot árið 2021 í gegnum Ferða­skrif­stofan Óríental ehf. og Farvel ehf., vinnur nú fyrir Úrval Útsýn.

Hér­aðs­sak­sókn­ari ákærði Viktor Heiðdal Sveins­son fyrir „meiri­háttar brot á skatta­lögum“ og pen­inga­þvætti með því að hafa staðið skil á efn­is­lega röngum skatt­fram­tölum frá 2014 til árs­ins 2018. Var hann sak­aður um að hafa ekki talið fram tug millj­óna greiðslur frá félög­unum Ferða­skrif­stofan Óríental ehf. og Farvel ehf. Árið 2021 var hann sak­felldur í Hér­aðs­dómi Suð­ur­lands.

Tekj­urnar sem Viktor taldi ekki fram nema ríf­lega 81 milljón króna en skatt­arnir sem hann hefði átt að greiða af upp­hæð­inni eru um 34 millj­ónir.

Kona, sem er í Facebook-hópnum Kröfu­hafar Farvel, sem telur 70 ein­stak­linga, skrif­aði færslu á dög­unum og upp­lýsti að Viktor Heiðdal vinni nú sem verk­taki fyrir ferða­skrif­stof­una Úrval Útsýn. Í færsl­unni seg­ist hún hafa talað við „hroka­fullan“ for­stjóra Úrval Útsýnar sem sagði hana vera full­tryggða hjá ferða­skrif­stof­unni og þyrfti ekki að hafa áhyggju af því að fólk lendi í gjald­þroti. Sagði hún að for­stjór­inn hafi ekki fund­ist neitt athuga­vert við að Viktor ynni hjá þeim „og fuss­aði þegar ég sagði að í mínum augum væri þessi maður þjófur sem ég vildi ekki eiga sam­skipti við.“ Þá sagð­ist hún ekki ætla að skipta aftur við Úrval Útsýn en hún tók fram að hún hefði verið mjög kurt­eist í sím­anum.

Þórunn Reyn­is­dóttir for­stjóri Úrvals Útsýnar stað­festi í sam­tali við Mannlíf að Viktor sé verk­taki hjá ferða­skrif­stof­unni. „Viktor er ekki fastur starfs­maður hjá okkur, hann vinnur að ákveðnum verk­efnum en hann kemur ekk­ert nálægt fjár­málum eða ábyrgðum. Þannig að það er eng­inn við­skipta­vinur að fara var­hluta af við­skiptum við okkur. Okkar stjórn­sýsla hefur ekk­ert breyst og ég ber 100 pró­sent ábyrgð á fyr­ir­tæk­inu.“ Þórunn seg­ist ekki hafa neinar áhyggjur af því að orð­spor fyr­ir­tæk­is­ins bíði hnekki við að hafa dæmdan skattsvik­ara inn­an­borðs. „Nei, og ég skal segja þér af hverju. Það er ég sjálf og mínir sam­starfs­menn hérna, það er fjöldi fólks sem er á bak­við þetta, við erum að veita þá þjón­ustu sem við veitum alltaf.“ Bætti hún svo við að lokum: „Það er nú bara þannig í líf­inu, öllum getur orðið á. En eins og ég segi, allir okkar far­þegar, við tryggjum að það sé haldið vel utan um þá og engin brota­löm þar ár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi