Þorsteinn Einarsson, kynjafræðingur og hlaðvarpsstjórnandi, skilur ekki að fólk sé að horfa á íslenska landsliðið.
Kynjafræðingurinn Þorsteinn Einarsson, sem heldur út hlaðvarpinu Karlmennskan, skilur ekki að íslenska þjóðin hafi áhuga á að horfa á Gylfa Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson spila knattspyrnu. Þorsteinn tvítaði um málið í tilefni þess að Íslands var að keppa á móti Liechtenstein í gær. Þorsteinn vill meina að það sé óskiljanlegt að fólk sé að horfa á landsliðið vegna þess að Gylfi var kærður fyrir brot gegn barni og Aron fyrir hópnauðgun en hvorug kæran leiddi til þess að knattspyrnumennirnir væru ákærðir.
Reglur KSÍ segja að leikmenn megi ekki leika fyrir hönd Íslands meðan rannsókn sé í gangi og er Albert Guðmundsson þess vegna ekki í íslenska landsliðinu. Landsliðsþjálfara Íslands er hins vegar frjálst að velja Gylfa og Aron í hópinn þar sem búið er að fella niður þeirra mál. Ljóst er að ekki eru allir Íslendingar sammála um að það sé rétt velja þá í hópinn en flestir íslenskir knattspyrnuaðdáendur virðast hafa tekið Gylfa og Aroni með opnum örmum.





















Athugasemdir