Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Endurkoma Gylfa og fall Bjarna

Endurkoma Gylfa og fall Bjarna

Í góðum málum

Gylfi Þór Sig­urðs­son er í stór­góðum málum þessi dægrin, því verður ekki neitað. Gylfi Þór er heldur betur kom­inn aftur með hvelli, eftir að hafa horfið af sjón­ar­svið­inu síð­ustu tvö árin vegna rann­sóknar lög­regl­unnar í Manchester, á meintu kyn­ferð­is­broti gegn barni. Málinu var að lokum vísað frá eins og þekkt er og hóf Gylfi fljót­lega að vinna að end­ur­komu. Það gerði hann meðal ann­ars með því að æfa með Val en svo fór að Gylfi var keyptur til Lyngby Boldklub í Danmörku. Á dög­unum lék Gylfi Þór fyrsta lands­leik sinn fyrir Íslands hönd í tvö ár, er Ísland gerði jafn­tefli við Lúx­em­borg í und­ankeppni EM 2024. Ísland sigr­aði svo Liechtenstein á afar sann­fær­andi hátt, 4-0, en þar kom Gylfi Þór, sá og sigr­aði en hann skor­aði tvö mörk í leiknum og varð þannig marka­hæsti leik­maður lands­liðs­ins frá upp­hafi, með 27 mörk. Gylfi Þór er sem sagt kom­inn aftur með látum.

Í slæmum málum

Bjarni Bene­dikts­son hefur átt betri daga, svo mikið er víst. Bjarni, sem gár­ungar hafa stundum kallað Teflon-Bjarna því ekk­ert fest­ist við hann, náði ekki að hrista af sér áfell­is­dóm umboðs­manns Alþingis, sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að Bjarni hefði verið óhæfur til að sam­þykkja sölu á hlut rík­iss­ins í Íslands­banka. Sá fjár­mála­ráð­herr­ann sæng sína upp reidda í ráðu­neyt­inu og til­kynnti afsögn sína á dramat­ískum blaða­manna­fundi. Þrátt fyrir að Bjarni hafi ekki fært sig mjög langt frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu, með því að skipta um sæti við Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, er ljóst að hann hefur beðið póli­tískan skaða. Og ekki mátti hann við því, þar sem fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem hann gegnir for­mennsku í, hefur mælst í sögu­legu lág­marki mánuð eftir mánuð þetta árið. Segja mætti að Bjarni hafi náð að lenda á fót­unum en að hann hafi tognað á ökkla. Þarna missti hann næst­hæsta stól­inn við rík­is­stjórn­ar­borðið, sem fjár­mála­ráð­herra, og fór niður í þann þriðja stærsta. Nú er bara að bíða og sjá hvort þessi hróker­ing hjálpi flokknum eða gangi af honum dauðum, eins mikið og það er hægt.

Pistill þessi er úr nýjasta tölu­blaði Mannlífs sem lesa má hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi