Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigmundur og Elín rekin þegar dóttir þeirra var á dánarbeði: „Lítilmannlegur níðingsskapur“

Sigmundur og Elín rekin þegar dóttir þeirra var á dánarbeði: „Lítilmannlegur níðingsskapur“
Sig­mundur Ernir Mynd: YouTube-skjáskot

Sig­mundur Ernir greinir frá ömur­legum brott­rekstri í nýrri bók

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Sig­mundur Ernir Rún­ars­son gaf nýlega út bók­ina „Í stríði og friði frétta­mennsk­unnar – eða upp­gjörið við alla mína fjöl­miðla­tíð“ og hefur bókin vakið mikla athygli fyrir þá inn­sýn sem Sig­mundur veitir les­endum í fjöl­miðla á Íslandi. Í tíunda kafla er fjallað um árið 2009 en það var gíf­ur­lega erf­iður tími í lífi Sig­mundar. Eydís Edda, elsta dóttir Sig­mundar, var á dán­ar­beði með sjald­gæfan sjúk­dóm. Sigmundi og Elínu, eig­in­konu hans, var til­kynnt á fyrstu vikum 2009 að dóttir þeirra ætti ekki langt eftir.

„En við Ella mættum nú samt til vinnu, svo til alla daga, þrátt fyrir að svona væri komið fyrir fjöl­skyld­unni. Og við vissum auð­vitað ekki að svo stuttu seinna væri lengur gert ráð fyrir starfs­kröftum okkar á staðnum. Enn einu sinni voru nýir stjórn­endur í brúnni á Stöð 2 – og stóð núna við stýrið maður að nafni Ari Edwald ásamt svoköll­uðum mannauð­stjóra fyr­ir­tæks­ins, Ólafíu B. Rafns­dóttur, sem vís­ast vildu láta að sér kveða í stefnu­mótum fjöl­mið­ils­ins sem hafði farið í gegnum marga brim­sjói á röskum tutt­ugu árum. 

Við fáum spurnir af því að morgni 22. jan­úar að þau vopna­systk­ini vilji hafa tal af okkur báðum. Ekki grun­aði okkur þá hvað verða vildi. Enda alvön því sem stjórn­endur að vera kölluð á fund með for­stjóra,“ segir Sig­mundur í bók­inni.

„Í for­dyri for­stjóra­kontórsins er mér vísað inn til Ara, en Ellu til Ólafíu. Og skemmst er frá því að segja að þar eru okkur sagt upp á sömu sek­únd­unni, báðum fyr­ir­vinn­unum á margra barna heim­ili sem var í sárum vegna þess sem vofði yfir. Og til að taka af öll tví­mæli var okkur sparkað út á götu, en búið var að loka á inn­gangskortin okkar þegar við ætl­uðum að kveðja starfs­fé­laga okkar og vini til margra ára og jafn­vel ára­tuga yfir á frétta­stof­unni. Við höfðum ekki tök á því að ná í per­sónu­lega hluti okkar fyrr en síðar meir – og þá í fylgd örygg­is­varða“ og þótti Sigmundi eins og þau hafi verið kvödd líkt og þau væru glæpa­menn. Lít­is­virt og smánuð.

„Þetta var högg. 

Ég snöggreidd­ist á bíla­stæð­inu milli hús­anna í Skafta­hlíð. Við lá að ég spark­aði af fullu afli í einn af frétta­bíl­unum sem þar hafði verið lagt. En lét það vera. Og það var ekki mín vegna sem ég var kom­inn í þennan heift­ar­hug. Það var alsiða að reka alla frétta­stjóra Stöðvar 2, og ég vissi upp á hár að fyrr eða síðar kæmi að mér. Það gat aldrei farið öðru­vísi. En að taka harð­dug­lega og hæfi­leik­a­ríka kon­una mína með í fall­inu í miðju efna­hags­hrun­inu var lít­il­mann­legur níð­ings­skapur sem engar nema smá­sálir taka ákvörðun um. 

Eydís Edda var dáin tveimur mán­uðum seinna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi