Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nakin og blaut í Reynisfjöru – Saga af furðulegasta verkfalli Íslandssögunnar

Nakin og blaut í Reynisfjöru – Saga af furðulegasta verkfalli Íslandssögunnar
Reyn­is­fjall og Reyn­is­drangar.

Ég átti í eilitlum vand­ræðum með að útskýra fyrir þáver­andi kær­ustu minni, sem ég hafði verið með í eitt ár og hún nokkuð afbrýð­isöm enn, að ég væri að fara að leika í Vaseline-aug­lýs­ingu þar sem ég yrði umkringdur kviknöktu fólki og sjálfur hálf­nak­inn. En það var nú samt það sem ég þurfti að gera og þótt henni hafi ekk­ert lit­ist á blik­una, vissi hún að við þurftum pen­ing­inn, enda fátækir náms­menn á þessum árum.

Aug­lýs­ingin sem ég er að tala um var erlend aug­lýs­ing sem tekin var upp fyrir Vaseline-fyr­ir­tækið árið 2007. Þetta var fyrsta auka­hlut­verkið mitt, en síðan þá hef ég verið í alls konar kvik­myndum, aug­lýs­ingum og kynn­ing­ar­mynd­böndum. En þarna var ég ansi blautur á bak við eyrun, þar sem ég stóð fyrir framan Alexíu sem sá um að ráða leik­ara í aug­lýs­ing­una. Á umsókn­ar­eyðu­blað­inu þurfti ég meðal ann­ars að velja hvort ég vildi vera nak­inn í aug­lýs­ing­unni eða hálf­nak­inn. Fyrir alnekt­ina átti ég að fá 24.000 krónur en fyrir hálfnekt­ina 14.000 krónur. Ekki mikið myndu ein­hverjir segja en þarna var ég fátækur náms­maður. Nú er ég bara fátækur, en það er önnur saga.

Áður en lengra er haldið vil ég full­yrða að fram­kvæmd aug­lýs­ing­ar­innar hafi verið sú sögu­leg­asta hér á landi.

Alls vant­aði leik­stjór­ann, sem er þekktur í brans­anum og hafði leik­stýrt mynd­böndum með drottn­ingum á borð við Madonnu, 150 auka­leik­ara, nakta eða hálf­nakta. Hafði okkur verið sagt að mæta við Fífuna í Kópavogi og að tök­urnar tækju bróð­ur­part­inn af deg­inum. Ekki var okkur sagt hvar yrði tekið upp. Mig minnir að ég hafi mætt um hádeg­is­bil við Fífuna þar sem nokkrar rútur biðu leik­ar­anna. Fljót­lega fyllt­ust rút­urnar, en við lögðum ekki af stað fyrr en klukkan 14.00. Þegar búið var að keyra okkur í klukku­tíma var okkur loks­ins sagt hvert för­inni væri heitið. Vík í Mýrdal var töku­stað­ur­inn, nánar tekið Reyn­is­fjara. Þarna var klukkan orðin 15.00 og enn um tveggja tíma akstur eftir og því nokkuð ljóst að maður yrði ekki aðeins bróð­ur­part­inn af deg­inum við tökur, heldur einnig föður-, móður- og syst­ur­part­inn.

Þegar á áfanga­stað var komið var þegar haf­ist við handa. Við vorum með aðstöðu í risa­stóru tjaldi í Reyn­is­fjöru og fækk­uðum fötum og gerðum okkur til­búin í tökur. Ég komst svo að því að sú skinn­pjatla sem ég átti að hafa fyrir klof­inu á mér dugði varla til að hylja nokkurn skap­aðan hlut og hefði ég allt eins getað verið nak­inn. Til að halda á okkur hita var búið að sér­út­búa úlpur úr hvítum sængum. Nokkur okkar köll­uðum okkur gang­andi syk­ur­púða. Okkur var svo smalað á réttan stað á svarta sand­inum, í köldu myrkr­inu. Björg­un­ar­sveitin var svo til­búin að fjar­lægja úlp­urnar þegar tökur hófust. Þau sem eitt­hvað vit hafa á svona upp­tökum vita að þær eru ansi tíma­frekar enda þarf að taka upp sömu atriðin aftur og aftur og frá mis­mun­andi sjón­ar­hornum. Eftir hvert „Cut“ frá leik­stjór­anum hljóp björg­un­ar­sveit­ar­fólkið upp að okkur og klæddi okkur í úlp­urnar. Eftir það fórum við aftur í tjaldið. Rigning sem var með hléum setti svo heldur betur strik í reikn­ing­inn því ekki var hægt að taka upp í bleyt­unni. Þurftum við því hvað eftir annað að hætta tökum þegar himn­arnir opn­uð­ust yfir okkur. Þegar komið var rétt yfir mið­nætti dró til tíð­inda.

Ein­hverjir af þessum 150 manna hópi auka­leik­ara, voru með­limir mót­mæla­hóps­ins Saving Iceland, í leit að auka­pen­ing líkt og við öll. Þau sáu það sem allir aðrir sáu en voru þau einu sem þorðu að segja eitt­hvað við því. Þarna höfðu 150 manns verið plat­aðir alla leið til Víkur í Mýrdal, til að leika í erlendri aug­lýs­ingu risa­fyr­ir­tækis, hálf­nakin eða kvik-, í kulda og bleytu, í það langan tíma að ekki sá fyrir end­ann á því. Fyrir þetta áttum við að fá sára­lít­inn pen­ing. Og hvað gerðu Saving Iceland-með­lim­irnir þá? Nú, það sem þeir gerðu best, mót­mæltu. Flestir höfðu fært sig inn í rút­urnar þegar þarna var komið sögu, en Saving Iceland-fólkið gekk á milli auka­leik­ara og sann­færði þá um að nú skyldi gerð upp­reisn. Og það tókst þeim. Hundrað og fimm­tíu auka­leik­arar lögðu niður störf sín um miðja nótt og neit­uðu að byrja aftur fyrr en launin yrðu hækkuð. Ekki veit ég til þess að þetta hafi gerst áður í sögu Íslands.

Eftir tveggja klukku­tíma samn­inga­við­ræður við auka­leik­ar­ana var loks­ins sam­þykkt að borga okkur 10.000 krónum meira en samið hafði verið um. Og áfram héldu tök­urnar með reglu­legum hléum vegna skúra. Þegar ég kom heim klukkan níu morg­un­inn eftir, tók á móti mér pirruð kærasta, enda hafði ég verið innan um nakið fólk alla nótt­ina.

Ég veit að innan töku­brans­ans á Íslandi er fram­kvæmd þess­arar aug­lýs­ingar mjög fræg og ég veit líka að af þessu hafa íslensk fyr­ir­tæki, sem halda utan um svona verk­efni, lært heil­mikið á þeim mis­tökum sem gerð voru við þessar tökur og eru nú aðstæður og fram­koma gagn­vart auka­leik­urum mun betri en var haustið 2007, þó alltaf megi betur gera.

Hér má sjá aug­lýs­ing­una:

Þennan pistil og fleira má lesa í glæ­nýju tölu­blaði Mannlífs en blaðið má lesa hér:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi