Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Borgarfulltrúinn sem vill kaupa falleg föt: „Ákveðnar verslanir ættu að taka sig á“

Borgarfulltrúinn sem vill kaupa falleg föt: „Ákveðnar verslanir ættu að taka sig á“
Kjartan Magn­ús­son.

Kjartan Magn­ús­son er 55 ára borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Kjartan býr í Vest­ur­bænum og starf­aði árum saman sem blaða­maður Morg­un­blaðs­ins. Kjartan er Neytandi Mannlífs.

Gerir þú verðsamanburð á vöru og þjónustu?

Já, ég ber gjarnan saman verð á vörum og þjón­ustu því ég veit að það getur verið mjög mis­mun­andi á milli versl­ana. Reyndar finnst mér tölu­vert vanta upp á verð­merk­ingar í sumum versl­unum, sem gerir slíkan sam­an­burð erf­iðan. Þá er of algengt að maður verði var við tölu­verðan mun á hillu­verði og kassa­verði og þá yfir­leitt oftar kaup­and­anum í óhag. Slík vinnu­brögð eru alger­lega óvið­un­andi og ákveðnar versl­anir ættu að taka sig á að þessu leyti. Þeir, sem vinna við verð­lags­eft­ir­lit, mættu gjarnan kanna þetta og birta nið­ur­stöð­urnar.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég held að besta sparn­að­ar­ráðið sé að fara aldrei svangur að kaupa í mat­inn. Sjálfur mætti ég nú fara oftar eftir þessu gamla hús­ráði. Ég kaupi mest inn í Bónus og tek fram að ég er sáttur við verð­merk­ingar þar. Ég reyni að kaupa ekki meira en þarf hverju sinni svo ekki þurfi að henda of miklum mat­ar­leifum.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Flokkun hefur auk­ist á mínu heim­ili eftir að fjór­flokkun sorps var tekin upp fyrir skömmu. Flokk­unin er ekki flókin í sjálfu sér og svo vonar maður bara að það gangi vel og sé ekki of kostn­að­ar­samt að end­ur­nýta sorpið.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Maður vill auð­vitað að mat­ur­inn sé góður og svo er auð­vitað best ef hann er hollur eða að minnsta kosti ekki of óhollur. Að sama skapi vil ég gjarnan kaupa fal­leg föt, en líka vönduð og end­ing­ar­góð. Þegar ég kaupi gjöf vil ég helst gefa eitt­hvað sem við­kom­andi vantar svo hún nýt­ist vel en sé ekki bara enn einn óþarfur hlutur inn á heim­ilið. Mér finnst æ vanda­sam­ara að velja góðar gjafir, því flestir eiga yfrið nóg af alls konar hlutum. Einu sinni var skot­helt að gefa nýja bók, en er það alls ekki lengur.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Ég man ekki eftir neinu sér­stöku, sem erfitt hefur verið að draga úr kaupum á. Fyrir nokkrum árum ákvað ég þó að draga úr bóka­kaupum, því ég á meira en nóg af þeim. Það reynd­ist ekki svo erfitt, en oft þarf ég þó að neita mér um að kaupa bók sem mig langar í.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já, tví­mæla­laust. Ég hef gert mikið af því að fara í göngu­ferðir og fjall­göngur hér á Íslandi og reyndar einnig erlendis. Þessar göngu­ferðir hafa gefið mér mikið og sann­fært mig um að við eigum ein­stakt land, sem við verðum að hlúa að, vernda en jafn­framt nýta með skyn­sam­legum hætti.

Annað sem þú vilt taka fram?

Ég tel að við neyt­endur eigum almennt að fá mun víð­tæk­ari upp­lýs­ingar um það sem við kaupum en nú er. Jafn­framt þurfum við að veita fram­leið­endum og versl­unum meira aðhald en nú er. Ég skal nefna tvö dæmi, sem mér koma í hug.

Gott lamba­kjöt er í miklu upp­á­haldi hjá mér og mörgum öðrum. Svokölluð upp­runa­merk­ing lamba­kjöts er frá­bært verk­efni, sem felur í sér mikla mögu­leika. Mér skilst að hægt sé að standa þannig að merk­ing­unni að neyt­and­inn sjái af hvaða land­svæði kjötið komi, úr hvaða sýslu, hreppi og jafn­vel frá hvaða sveitabæ, sem væri auð­vitað mjög skemmti­legt. Ég tel þó mik­il­væg­ast að við, íslenskir neyt­endur, fáum að vita hvort lamba­kjötið góða, sem við kaupum í versl­unum, sé af sjálf­bæru beit­ar­landi eða ekki. Það verður nefni­lega ekki fram hjá því litið að á ákveðnum svæðum er hnign­andi landi beitt langt umfram þol­mörk. Sem betur fer hefur víða náðst umtals­verður árangur í end­ur­heimt land­gæða og því má finna mörg ánægju­leg dæmi um sjálf­bæra sauð­fjár­rækt.

Ég vil að við neyt­endur séum upp­lýstir um þetta með skýrum hætti, t.d. með því að veita lamba­kjöti af sjálf­bærum svæðum ákveðna vottun. Ég hygg að flestir ábyrgir neyt­endur myndu velja kjöt af sjálf­bæru beit­ar­landi en sneiða hjá kjöti sem orðið hefði til með ofbeit. Þannig væri hægt að nýta okkur neyt­endur í þágu umhverf­is­verndar. Reynslan hefur kennt mér að líta alltaf á dag­setn­ing­ar­merk­ingar mat­vöru áður en ég set hana í körf­una. Þegar ég kaupi ferskan fisk eða kjöt, vil ég að sjálf­sögðu vita hvenær vör­unni var pakkað hjá við­kom­andi fram­leið­anda. Mér finnst ekki nóg að fram­leið­and­inn merki bara þá dag­setn­ingu, sem er að hans mati „Best fyrir“ eða „Síðasti neyslu­dagur“, þótt það sé auð­vitað mik­il­vægt líka. En sú dag­setn­ing segir mér ekki nóg. Metn­að­ar­fullur fram­leið­andi merkir ferska vöru bæði með pökk­un­ar­degi og síð­asta ráð­lagða neyslu­degi. Það gerir t.d. „Fisk­búðin okkar“, sem selur fisk í hand­hægum öskjum til stór­mark­aða og vil ég hrósa eig­endum hennar fyrir það. Ég sleppi yfir­leitt að kaupa þær ferskvörur, sem eru ekki merktar með fram­leiðslu- eða pökk­un­ar­degi og hvet aðra neyt­endur til að gera slíkt hið sama. En best væri auð­vitað ef fram­leið­endur tækju sig á og veittu okkur við­skipta­vinum þá sjálf­sögðu þjón­ustu að upp­lýsa okkur um hvenær varan fór frá þeim.

Viðtal þetta birt­ist fyrst í nýjasta tölu­blaði Mannlífs sem hægt er lesa hérna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi