Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Blaðamennska á Íslandi – Leyndarmálin sem ekki má segja frá

Blaðamennska á Íslandi – Leyndarmálin sem ekki má segja frá

Starf blaða­manns­ins er í senn skemmti­legt, strembið, spenn­andi, stressandi og að ein­hverju leyti lýj­andi.

Það sem gerir starfið skemmti­legt er sú stað­reynd að engir tveir dagar eru eins, alltaf nýjar fréttir og þú veist ekk­ert hvernig dag­ur­inn verður. Í starf­inu fær maður einnig tæki­færi til að tala við hresst og skemmti­legt fólk, læra um ýmsa fróð­lega hluti og næra þannig sál­ina.

Það sem gerir blaða­manna­starfið strembið eru þau krefj­andi verk­efni sem blaða­mað­ur­inn þarf að takast á við, til dæmis að hringja erfið sím­töl, hvort sem það eru sím­töl við vel pirraða vís­inda­menn, fórn­ar­lömb ofbeldis eða meinta ger­endur í ein­hverjum erf­iðum málum.

Starfið er spenn­andi því maður fær tæki­færi til að stinga á kýlum sam­fé­lags­ins, koma upp um spill­ingu og vera aðhaldið sem manni er ætlað að vera. Jú, jú, á litlum miðli á borð við Mannlíf er allt þetta erf­ið­ara, af þeirri ein­földu ástæðu að við erum voða­lega fá sem skrifum fréttir og því þarf oft að grípa til slúð­ur­mola og létt­metis af sam­fé­lags­miðl­unum, en á meðan það er lesið, þá eru það fréttir líka, ekki satt?

Stressandi hluti blaða­mennsku snýr meðal ann­ars að við­brögðum fólks við fréttum, þá aðal­lega þeirra sem fjallað er um. Það er ástæða fyrir því að sér­stakur tæknilás var settur á hurð­ina inn á rit­stjórn­ar­skrif­stofur Mannlífs, en það eru ekki allir sáttir við að fjallað sé um þá. Þá er frægt þegar með­limur Hells Angels rudd­ist inn á skrif­stofu DV og tók Reyni Trausta­son háls­taki, vegna umfjöll­unar um hans mál. Þannig að já, það er þörf á góðum lás og örygg­is­mynda­vélum hjá fjöl­miðlum.

Það sem er lýj­andi við starfið, fyrir utan álagið sem oft er á okkur blaða­mönnum þegar mikið gengur á, eru öll leynd­ar­málin sem við höfum í hausnum en getum ekki sagt frá. Áður er sam­sær­is­kenn­ing­arsmiðir súpa hveljur og fara að tala um leynd­ar­hjúp og yfir­varp með yfir­vald­inu eða hátt settu fólki, þá er það ekki ástæðan fyrir því að við getum ekki sagt frá öllu sem við vitum. Ástæðan er oft­ast sú að leynd­ar­málin eru oftar en ekki þess eðlis að þau eru of per­sónu­leg og færa má rök fyrir því að þau komi almenn­ingi ekki við. Fram­hjá­hald, ofbeld­is­mál sem þol­andi vill ekki að fjallað sé um, mynd­bönd sem allir vita að eru til en finn­ast ekki og fleira í þeim dúr er eitt­hvað sem blaða­menn þurfa að burð­ast með, án þess að geta sagt frá, þótt þeir gjarnan vildu. Ástæðan er líka oft smæð lands­ins, hér þekkja allir alla og því oftar en ekki erfitt að segja frá ein­hverju sem myndi auð­veld­lega rata í slúð­ur­dálka í stærri löndum. Annað sem er nokkuð lýj­andi, sér­stak­lega fyrir blaða­menn á litlum miðlum, eru öll málin sem ekki gefst tími til að vinna í, sökum mann­eklu og tíma­leysis, en við gerum auð­vitað okkar besta til að ná að vinna í þeim á end­anum en stundum rennum við út á tíma.

Starf blaða­manns á Íslandi er sem sagt bæði skemmti­legt og strembið, en auð­vitað ekk­ert á við starf þeirra sem vinna sem blaða­menn í þeim löndum þar sem brjál­æð­ingar og/eða óþokkar ráða ríkjum, eins og í Rúss­landi, Ísrael, Kína, Simbabve, Tyrk­landi og Erítreu, svo eitt­hvað sé nefnt. Í þeim sam­an­burði er þetta auð­vitað bara væl í mér, en ég stend við þetta væl mitt.

Þennan pistil og fleiri má lesa hér:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi