Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

KFUM og KFUK safna ofbeldisupplýsingum um séra Friðrik: „Fjöldahreyfing fólks sem upplifir nú sorg“

KFUM og KFUK safna ofbeldisupplýsingum um séra Friðrik: „Fjöldahreyfing fólks sem upplifir nú sorg“
Séra Friðrik braut á börnum sam­kvæmt KFUM og KFUK – mynd: Wikipedia

KFUM og KFUK hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu um séra Friðrik.

Sagn­fræð­ing­ur­inn Guð­mundur Magn­ús­son hefur sent frá sér nýja ævi­sögu um Friðrik Frið­riks­son, en hann var oft­ast kall­aður séra Friðrik, og í henni greinir sagn­fræð­ing­ur­inn frá því að séra Friðrik hafi káfað á 11 ára dreng í sunnu­daga­skóla. Í bók­inni er haft eftir manni á átt­ræð­is­aldri að aðrir piltir hefðu upp­lifað slíkt hið sama.

Áfallið er mikið fyrir marga en séra Friðik hefur verið dásamaður af þjóð­inni ára­tugum saman og eru tvær styttur af honum í Reykja­vík og sýnir önnur þeirra séra Friðrik með ungum dreng. Nú hafa KFUM og KFUK sent frá sér frá yfir­lýs­ingu um málið.

„KFUM og KFUK vilja opna leið fyrir þá eða þau sem hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni eða ofbeldi af hálfu sr. Friðriks (eða hafa beinar heim­ildir um slíkt t.d. frá nánum ætt­ingja) til að koma fram með þá reynslu sína.

Þekking sam­tím­ans segir okkur hve mik­il­vægt það er fyrir vel­ferð þeirra ein­stak­linga sem í hlut eiga að bera ekki slíkar byrðar í hjarta sér.

Forysta KFUM og KFUK hefur leitað til þeirra Sigrúnar Júl­í­us­dóttur félags­ráð­gjafa og Bjarna Karls­sonar prests um að taka á móti sögum þolenda.

Þau hafa langa reynslu af sál­gæslu og af vinnu með þolendum að úrlausn sinna mála. Bjarni þekkir jafn­framt til starfs félaganna án þess að hafa gegnt neinni trún­að­ar­stöðu innan þeirra. Fyllsta trún­aðar verður gætt við þau sem til þeirra leita.

Þolendum býðst jafn­framt áfram að hafa sam­band við sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­starfs sé það þeim auð­veld­ara.

KFUM og KFUK, Valur og þau félög önnur sem kennt hafa sig við sr. Friðrik eru fjölda­hreyf­ing fólks sem upp­lifir nú sorg. Eins og fram hefur komið vilja fyrr­greind félög horfast í augu við sögu sína, hversu sár sem hún kann að reyn­ast. Hluti af því er að stuðla að því sann­leik­ur­inn komi upp á yfir­borðið, meðal ann­ars svo hægt sé að biðja brota­þola afsök­unar.


Hægt er að hafa sam­band við Sigrúnu í gegnum net­fangið [email protected] eða í síma 891 7638 og við Bjarna í gegnum net­fangið [email protected] eða í síma 820 8865.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi