Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórarinn:„Myndi það draga úr hamingjunni ef þú fengir bara tvö læk á mynd af nýfædda barninu þínu?“

Þórarinn:„Myndi það draga úr hamingjunni ef þú fengir bara tvö læk á mynd af nýfædda barninu þínu?“

Þórarinn Hjart­ar­son hlað­varps­stjórn­andi segir ákveð­inn hóp í sam­fé­lag­inu lifa fyrir að dyggð­ar­skreyta sig á kostnað ann­arra. Þórarinn, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar segir okkur komin mjög djúpt inn í speg­il­mynd­ar­veru­leika inter­nets­ins:

„Það er ákveð­inn hópur af fólki sem virð­ist nær­ast á því að ráð­ast á aðra á net­inu, sem hlýtur að vera mjög sér­stök til­vera. Ef þú ert með lít­inn vinnu­stað og þú ert að fara að ráða mann­eskju í vinnu sem þú sérð að er stans­laust að drulla yfir fólk á net­inu efast ég um að það sé það sem þú vilt fyrir stemmn­ing­una á vinnu­staðnum. Þetta getur ekki verið sá mann­kostur sem við erum að leita að. Fólk sem gerir ekki annað en að ráð­ast á þá sem mis­stíga sig eða eru þeim ósam­mála. Við höfum farið í gegnum tíma­bil þar sem mjög reitt fólk á net­inu hefur náð að halda stórum hópi fólks í hræðslu við að tjá sig,“ segir Þórarinn og heldur áfram:

„Ég er bara nýbyrj­aður að leika mér á Twitter og það er ekki sér­stak­lega skemmti­legur vett­vangur. Ef Twitter væri partý væri það leið­in­legt. Samkvæmi þar sem er sam­an­komið fólk sem reynir að finna eitt­hvað til að móðg­ast yfir og reyna að finna högg­stað á fólk­inu í sam­kvæm­inu, þannig að allir þyrftu að vera á tánum allan tím­ann. Allt til þess að Twittermanneskjan geti á end­anum fundið eitt­hvað til þess að dyggð­ar­skreyta sjálfa sig yfir ein­hverju sem önnur mann­eskja sagði eða gerði.“

Þórarinn segir að umræðan á sam­fé­lags­miðlum hafi orðið mun meiri en áður í Covid-far­aldr­inum, ein­fald­lega af því að fólk hafi haft meiri tíma til að vera á net­inu. Mjög margir hafi aukið sam­fé­lags­miðla­notkun sína mikið og það hafi svo haldið áfram:

„Við erum mörg komin á þann stað að við gerum nán­ast ekk­ert án þess að setja það á sam­fé­lags­miðla. Ef við löbbum á Esjuna sýnum við myndir af því, við förum ekki út að borða með ein­hverjum án þess að birta mynd af því og svo fram­vegis. Við erum alltaf að reyna að spegla ein­hverja mynd af því hvernig við viljum vera gagn­vart öðrum og mótum okkur svo út frá því hvað við teljum að aðrir vilji að við séum. Þetta er í mínum huga ákveðið mein, sem veldur því að það er orðið erf­ið­ara að vera bara maður sjálfur. Ef að sú speg­il­mynd sem við fáum frá öðrum í gegnum athuga­semdir og „like“ er ekki góð, förum við að efast. Ég velti því til dæmis fyrir mér hvort það myndi draga úr ham­ingj­unni við að eign­ast barn ef að þú fengir bara tvö læk á mynd­ina af nýfædda barn­inu þínu. Ég er nokkuð viss um að það myndi hafa áhrif á flesta. Við erum komin mjög djúpt inn í þennan speg­il­mynd­ar­veru­leika af okkur sjálfum.“

Í þætt­inum ræða Þórarinn og Sölvi einnig um hat­urs­orð­ræðu, sem Þórarinn segir sér­stakt hug­tak sem ákveð­inn hópur hefur eignað sér:

„Allir hafa sína eigin skil­grein­ingu, og hug­myndir, um það hvað hat­urs­orð­ræða sé. Eðli máls­ins sam­kvæmt er því engin ein rétt skil­grein­ing til. Í raun er þetta hug­tak atlaga að tján­ing­ar­frelsi, þar sem ríkj­andi stjórn­völd hverju sinni geta bannað það sem þeim mis­líkar. Það eru ákveðnir hópar sem telja sig geta skil­greint hvað er hat­urs­orð­ræða og hvað ekki, án þess að íhuga fyrir alvöru hversu mikið inn­grip er um að ræða í tján­ingu fólks. Fólk verður að þola umræðu sem því mis­líkar og það er ekki hægt að heimta að þagga niður alla orð­ræðu sem er okkur ekki þókn­an­leg. Það er heldur engin leið til þess að láta umræð­una hverfa, hún fer bara á aðra staði og grass­erar þar. Það eru engin umræðu­efni þess eðlis að það þurfi að þagga þau niður til þess að laga sam­fé­lagið. Við eigum að ræða hlut­ina, alveg sama hversu erf­iðar umræð­urnar eru.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Þórarinn og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi