Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Deila mögnuðum sögum af frægum Íslendingum: „Bubbi Morthens kemur allt í einu inn í eldhúsið“

Deila mögnuðum sögum af frægum Íslendingum: „Bubbi Morthens kemur allt í einu inn í eldhúsið“
Fræga fólkið getur verið hug­ljúft – myndin er sam­sett

Á spjall­síð­unni Reddit var fyrir nokkrum dögum búinn til spjall­þráður þar sem Íslend­ingar voru hvattir til að deila áhuga­verðum sögum um sam­skipti sín við fræga Íslend­inga. Ótrúlega margar sögur hafa borist og greina þær ýmist frá jákvæðum eða nei­kvæðum sam­skiptum. Meðal þess fólks sem koma fyrir í sög­unum má nefna Steinda Jr, Björn Jörund, Jakob Frímann, Björk, Agnesi biskup og Sögu Garð­ars­dóttur ásamt mörgum öðrum.

Hér fyrir neðan er hægt að lesa nokkrar góðar sögur.

Sú saga sem hefur fengið mesta athygli er frá pol­ar­bear_daddy og fjallar hún um KK.

„Mig hefur lengi langað til að segja þessa sögu um Kristján Krist­jáns­son (KK), tón­list­ar­mann.

Ég var að kenna karate og litli bróðir minn var að fara í gráðun sem 14 ára gam­all úng­lingur. Hann hafði sagt við mig rétt fyrir að honum líði ekki vel, eins og magi hans væri að umturn­ast, en ég hlust­aði ekki á hann og sagði honum bara að þrauka þetta af sér. Svo í miðri gráðun þá sé ég að það er eð að, munn­ur­inn fyllist, og hann bendir á próf dóm­ar­ann og gefur til kynna að það sé eð að og hann verði að kom­ast út. Hann hleypur að dyr­unum, snýr sér við og hneygir sig skv hefðum, og fer út. Á leið­inni inní bún­ings­klef­anum byrjar hann að æla grænt karrí, og það er heil græn á sem liggur alla leið­ina inn. Ég stend yfir honum inn á kló­set, hann klárar, þurrka æluna af and­lit­inu á honum og hann heimtar að hlaupa til­baka inn í sal, sem gerir. Ég fer fram með rúllu af kló­sett­pappír til að fara þurrka. En þegar ég kem fram, er rauð­hærður maður á hnjánum, í sínum karate galla, með fullt af eld­hús papp­írum að þurrka upp æluna frá litla bróðir mínum. Ég fer niður á hnén og byrja þurrka líka og þakka honum fyrir og segji þetta sé algjör óþarfi en hann tók það ekki I mál að hætta.

Sá maður, KK. Legend.“

Not­and­inn Surt­ey­ingur deilir fal­legri sögu af Hugleiki

„Vinur minn var með heila­æxli og leið miklar kvalir á spít­al­anum og þar sem ég var á sjó lang­aði mig að gleðja hann og ákvað að kaupa svona grófa org­inal ein­línu­mynd sem Hug­leikur Dagsson er þekktur fyrir og var að selja. Ég geri til­boð á ein­hverri síðu í mynd­ina og fæ hana. Síðan sendi Hug­leikur mér að ég hafi fengið mynd­ina og hvert ég ætti að sækja hana. Þegar ég sagði honum að ég væri á sjó og kæm­ist ekki en hafi keypt hana handa vini mínum sem væri á Lands­spít­al­anum þá bjóst hann til að fara með hana sjálfur. (Hug­leikur vissi ekk­ert hvort vinur minn væri hand­leggs­bot­inn eða í kirtla­töku). Það sem vinur minn var ekk­ert smá ánægður þegar Hug­leikur kíkti til hans með mynd­ina og spjall­aði við hann í dágóðan tíma. Því miður lést vinur minn áður en ég komst aftur í land en Hug­leikur hefur alltaf átt stað í hjarta mínu fyrir það að búa til þessa skemmti­legu stund fyrir vin minn síð­ustu dag­ana sem hann átti upp­lif­aða.“

Kokk­ur­inn Rad­is­hImmedi­ate1798 segir sögu af Bubba Morthens og ham­borg­urum

„Ég var að loka eld­húsi á veit­inga­stað er Bubbi Morthens kemur allt í einu inn í eld­húsið og biður mig fal­lega hvort eg gæti græjað fjóra ham­borga, fyrir hann og fjöl­skyld­una. Hann sagð­ist vera að flytja og gæti þvi ekki komið eins oft og hann lang­aði hingað að borða. Ég redd­aði þessu minnsta mál. Bubbi eyddi svo dágóðri stund með mer í eld­hús­inu er eg eld­aði ham­borg­ar­ana og spurði mig um allt a milli him­ins og jarðar. Sýndi mér tattooin sín og ég hans mín. Góð og skemmti­leg stund.“

„Björk er alveg æði, þarft ekki einu sinni að þekkja and­litið á henni til að vita að þetta er hún, það er bara orkan sem stafar af henni. Var alveg svona 70% viss um að þetta væri hún þangað til ég þurfti að biðja um nafn til að taka frá vöru og hún hik­aði ekki við að gefa mér fullt nafn bara svona til öryggis. Engir stælar eða neitt og hún tók ógeðs­lega vel í allar til­lögur og þegar ég sagði henni að við ættum ekki vör­una sem hún vildi. 10/10 stóðst allar vænt­ingar,“ sagði freysg.

Hann sagði einnig:

„Sam­starfs­menn elska Pálma úr Spaug­stof­unni og Jón Gnarr líka einn skemmti­leg­asti við­skipta­vinur sem ég hef afgreitt. Mjög slakur og maður fékk svona á til­finn­ing­una að hann ber virð­ingu fyrir fólk­inu sem afgreiðir hann, sem er ekki sjálf­sagt jafn­vel þegar fólkið er ekki frægt.“

Þá eru þónokkuð margar sögur af Steinda Jr. en hann virð­ist heilt yfir vera mest dáður af því fræga fólki sem nefnt er til sög­unnar.

Hægt er að lesa allar sög­urnar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi