Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Paul Adalsteinsson reyndi að fjárkúga meðlimi konungsfjölskyldunnar- Ráðabrugg lukkuriddara

Paul Adalsteinsson reyndi að fjárkúga meðlimi konungsfjölskyldunnar- Ráðabrugg lukkuriddara
Kampa­víns-Kalli

Maður er nefndur Paul Adal­steins­son. Paul var af íslenskum ættum, en afi hans hét Páll Aðal­steins­son. Páll flutt­ist búferlum frá Íslandi til Grimsby á Englandi á fyrri hluta 20. aldar og var þar meðal ann­ars skip­stjóri. Paul fædd­ist árið 1976 í Aberdeen í Skotlandi. For­eldrar hans skildu árið 1985, þegar Paul var níu ára, en hann ákvað þá að taka upp ætt­ar­nafn breskrar móður sinnar, Elizabeth Strachan, og gekk þaðan í frá undir nafn­inu Ian Strachan. En allt um það.

Barst mikið á

Af ævi Ians segir fátt fyrr en hann komst í fréttir árið 2005. Um þær mundir gekk hann undir nafn­inu Charles Gold­stein og gaf sig út fyrir að vera umsvifa­mik­ill fast­eigna­sali og skreytti sig að auki með lög­mannstitli. Þetta gerði honum kleift að dand­al­ast eitt­hvað með elít­unni þar og þá. Allt í fari hans bar þess merki að honum vegn­aði vel; fötin voru klæð­skera­saumuð og hann virt­ist lifa lífi þar sem kampa­vín og kav­íar komu mikið við sögu. Vinum sínum sagði hann að hann hefði erft fúlgur fjár eftir ömmu sína og ekki voru bestu vinir hans neitt slor. Þeirra á meðal voru, að hans sögn, prins­arnir og bræð­urnir William og Harry.

Bjó heima hjá mömmu

Ian var háður lyf­seð­ils­skyldum lyfjum og var sagður bryðja þau eins og sæl­gæti. Til að verða sér úti um þau not­aði hann ýmis nöfn; Ian Strachan, Paul Adal­steins­son, Charlie Gold­stein og Paul Stein. Sögur af vel­gengni Ians voru veru­lega ýktar, svo ekki sé tekið dýpra í árinni, og reyndin allt önnur. Ian hafði fátt til að guma sig af; hann hafði gef­ist upp á háskóla­námi og bjó heima hjá mömmu sinni. Í Daily Record sagði að fjöl­skylda Ians, sem hann hafði þá fjar­lægst, hefði gert gys að full­yrð­ingum um elítu­lífs­stíl Ians; hann væri svo sann­ar­lega eng­inn „Kampa­víns-Kalli (e. cham-pagne Charlie)“, eins og lög­fræð­ingur hans síðar meir kall­aði hann. Frændi Ians, hót­el­eig­andi í Aberdeen, sagði: „Mér er til efs að hann eigi skyrt­una sem hann klæð­ist.“

Þannig var nú það.

Svæsið mynd­band

Árið 2005 fékk Ian frá­bæra hug­mynd til að hagn­ast veru­lega, eða svo hélt hann. Ian og maður að nafni Sean Mc-Guigan hugð­ust verða sér úti um 50.000 sterl­ingspund með fjár­kúgun. Þeir réð­ust ekki á garð­inn þar sem hann var lægstur, því fórn­ar­lambið til­heyrði bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unni. Félag­arnir sögð­ust hafa í fórum sínum mynd­skeið sem sýndi helsta aðstoð­ar­mann, „right hand man“, þess kon­ung­borna sniffa kókaín af miklum móð og nota við athöfn­ina kredit­kort frá Harrods. Harrods-kort ku víst vera afar fáséð og ekki á hvers manns færi að kom­ast yfir slíkt. Það var þó ekki allt, því einnig átti mynd­bandið að sýna aðstoð­ar­mann­inn og þann kon­ung­borna stunda kyn­líf saman á meðan nekt­ar­dans­mey frá Stringfellow-klúbbnum horfði á, sú hét Cindy. Einhver annar kon­ung­bor­inn er einnig nefndur til sög­unnar, en sá dingl­aði kyn­færum sínum að Ian; „waved his willy“, eins og segir á vef­síðu Daily Mail.

Enginn vildi kaupa

Þegar þarna var komið sögu höfðu þeir kump­ánar leitað hóf­anna hjá Max nokkrum Clifford. Max þessi ku ekki hafa verið vand­aður pappír um þær mundir og hrærð­ist í vafasömum kreðsum. Hann var einkum þekktur fyrir að reyna að selja slúð­ur­blöð­unum frá­sagnir af ást­ar­æv­in­týrum fólks sem eitt­hvað átti undir sér. Þegar félag­arnir Ian og Sean viðr­uðu mögu­leg við­skipti við Max Clifford, kom á dag­inn að ekki einu sinni hann vildi snerta á því sem þeir höfðu að bjóða. Þeir reyndu að selja öðrum dag­blöðum mynd­bands­upp­tök­una, en sneru bón­leiðir til búða. Því var fátt annað í stöð­unni en að ganga beint til verks og kúga fé út úr þeim kon­ung­borna, sem var hvorki meira né minna en syst­ur­sonur Elísa­betar Eng­lands­drottn­ingar.

Gripnir glóð­volgir

Frá því er skemmst að segja að þetta ráða­brugg lukku­riddar­anna fór ekki sem skyldi og þeir voru hand­teknir 11. sept­em­ber, 2007. Lög­reglan fékk 50.000 sterl­ingspund sem nota átti sem beitu til að hafa hendur í hári fjár­kúgar­anna og Ian og Sean voru hand­teknir á hót­eli í London af óein­kenn­is­klæddum lög­reglu­mönnum úr hryðju­verka­deild bresku lög­regl­unnar. Þeir félagar, Ian og Sean, áttu senni­lega von á hinum kon­ung­borna, eða full­trúa hans, með 50.000 pund í fartesk­inu og eflaust kom hand­takan þeim í opna skjöldu. Ian og Sean voru úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald í Belmarsh-fang­elsi og skyndi­lega staddir í hring­iðu fjöl­miðl­anna, en ljóst var að þeir myndu aldrei kom­ast í álnir með þeim hætti sem þeir hugð­ust. Þeir sóttu um lausn gegn trygg­ingu 2. nóv­em­ber og aftur 8. des­em­ber, en höfðu ekki erindi sem erf­iði. Báðir lýstu yfir sak­leysi sínu við for­rétt­ar­höldin 20. des­em­ber, 2007. Ian og Sean þurftu nú að að huga að vörnum í mál­inu, en rétt­ar­höldin hófust 14. apríl, 2008.

Vafa­samur verj­andi

Í far­ar­broddi í vörn Ians var Giovanni Di Stefano, alræmdur og marg­dæmdur svika­hrappur. Hann mun vera rétt­inda­laus með öllu í þeim efnum. Á meðal við­skipta­vina hans, að eigin sögn, má nefna Saddam Hussein, for­seta Íraks, Slobodan Milosevic, for­seta Serbíu, og glyspopp­ar­ann, kyn­ferð­is­brota­mann­inn og barn­a­níð­ing­inn Gary Glitter. Di Stefano hefur verið bannað að koma nálægt slíkum málum í Bret­landi og hefur ekki rétt­indi til að starfa sem lög­maður á Ítalíu. Sagan segir að hann hafi verið útlægur ger frá Banda­ríkj­unum og eng­inn aufúsu­gestur á Nýja-Sjálandi, en þar­lend yfir­völd hafa bannað honum að flytj­ast til lands­ins. Giovanni Di Stefano hefur verið sak­felldur fjórum sinnum á Írlandi og Bret­landi, alla jafna fyrir svik og pretti. Dómari einn sagði um Di Stefano að hann væri: „einn mesti svika­hrappur í heimi.“ Árið 2013 fékk Giovanni Di Stefano 14 ára dóm eftir að hafa verið fund­inn sekur um 27 ákæru­at­riði, meðal ann­ars að villa á sér heim­ildir. En allt þetta er önnur saga.

Velvild, ekki hagn­að­ar­von

Við rétt­ar­höldin vís­uðu Ian og Sean báðir sak­ar­giftum á hendur sér á bug. Þeir full­yrtu hins vegar að þeir hefðu haft að leið­ar­ljósi hags­muni syst­ur­sonar Elísa­betar drottn­ingar og vel­ferð. Þeim hefði verið umhugað um að forða honum frá fári miklu. Ekki var lagður trún­aður á þá útskýr­ingu; til­gang­ur­inn hefði ein­göngu verið að kom­ast yfir fé. Í maí, 2008, voru Ian Strachan og Sean McGuigan sak­felldir fyrir til­raun til fjár­kúg­unar. Hvor um sig fékk fimm ára dóm, en kostn­aður vegna rann­sókn­ar­innar og rétt­ar­hald­anna mun hafa farið yfir eina milljón sterl­ingspunda. Ekki hafði þá verið gerð til­raun til fjár­kúg­unar á hendur kon­ungs­fjöl­skyld­unni í meira en eina öld og var það mat margra að hin kostn­að­ar­sömu rétt­ar­höld hefðu verið helst til „yfir­drifin við­brögð“. Ian Strachan afplán­aði tæp­lega helm­ing dóms­ins.

Ian flýr land

Það bar til tíð­inda árið 2010 að Ian Strachan, sem þá hafði leitað á bernsku­slóðir í Skotlandi, hefði flúið land og þannig senni­lega rofið skil­orð sem fylgdi stytt­ingu afplán­unar hans á bak við lás og slá. Ekki var vitað hvert Ian hafði farið, en talið nokkuð víst að áfanga­staður hans hefði verið ríki sem ekki hafði fram­sals­samn­ing við Bretland. Í Daily Record er haft eftir Ian: „Ég var búinn að fá nóg af þessu. Þeir hót­uðu að henda mér aftur í grjótið ef ég setti mig upp á móti dómnum sem ég fékk.“ Ian full­yrti að hann hefði geng­ist undir lýta­að­gerðir og breytt útliti sínu svo hann yrði óþekkj­an­legur. Að hans sögn kost­uðu aðgerð­irnar 34.000 sterl­ingspund. „Ég verð á flótta, þar til sak­leysi mitt verður sannað,“ sagði Ian. Stjórn­völd í Skotlandi gáfu út hand­töku­skipun á hendur Ian, en talið var að hann nýtti sér tvö­faldan rík­is­borg­ara­rétt, íslenskan og breskan, á flótt­anum.

Aflimun og far­bann

Segir ekki meira af ævin­týrum Ians fyrr en árið 2013. Þá lenti hann í því óhappi að falla niður af svölum. Fallið var 10 metrar og það segir sig kannski sjálft að slíkt er engum manni hollt. Taka þurfti af Ian vinstri fót­legg auk þess sem mjaðma­grindin hlaut veru­legan skaða af. Í kjöl­farið neytti Ian kóka­íns reglu­lega og drakk stíft, að sögn til að þola óbæri­legan sárs­auka vegna aflimun­ar­innar. Ætla má að sjaldan hafi verið logn­molla þar sem Ian Strachan var á ferð. Í des­em­ber, 2015, varð hann enn og aftur frétta­efni breskra fjöl­miðla. Þá var hann staddur í Dúbaí undir nafn­inu Charles Gold­stein. Þar hafði hann, að eigin sögn, þjáðst í átta mán­uði og vega­bréfið hafði verið tekið af honum. Honum var meinað að yfir­gefa landið fyrr en hann hefði greitt 100.000 sterl­ingspund sem hann var kraf­inn um af lúx­us­bíla­leigu þar í landi, vegna skemmda á bíl sem hann hafði leigt. Sjálfur sagð­ist Ian vera fórn­ar­lamb svika, að hann skuld­aði minna en 1.000 pund og skemmd­irnar á bílnum, Audi R8, hefðu verið til staðar þegar hann tók hann á leigu. „Mér líður eins og ég sé í hrylli­legri, nið­dimmri holu. Allt sem ég átti, hefur Dúbaí haft af mér. Ég hef tapað gjör­sam­lega öllu,“ sagði Ian.

Síðustu skila­boðin

Eftir tíu mán­aða dvöl í Dúbaí komst Ian heim til Englands. Segir sagan að hann hafi flúið frá Dúbaí og kom­ist til Íran og þaðan með ein­hverjum leiðum heim á gamlar slóðir. Þangað kom­inn tók hann upp fyrri siði í West End. Árið 2016 fékk Ian Strachan hjarta­á­fall í tvígang, í bæði skiptin vegna kóka­ínn­eyslu, var sagt. Einnig varð hann þekktur að ofbeld­is­fullri hegðun í garð móður sinnar. Á aðfanga­dags­kvöld, árið 2016, fannst Ian lát­inn heima hjá sér. Hann hafði þá inn­byrt feiknin öll af lyf­seð­ils­skyldum lyfjum; codein, maxicodone, xopicone og fleira. Lyfjunum hafði hann blandað saman við mjólk. Um þetta leyti hafði Ian orðið sífellt árás­ar­gjarn­ari í garð móður sinnar. Hann hafði þó snætt hádeg­is­verð með henni 23. des­em­ber. Síðar sama dag hafði móðir hans heim­sótt hann og farið um klukkan 21.30 um kvöldið. Um sól­ar­hring áður en hann fannst lát­inn hafði hann sent móður sinni texta­skila­boð: „Þú vilt fá lík, nú hefur þú fengið það. Það verður öðru­vísi dagur á morgun, ég mun ekki verða hér.“

Heim­ildir: Daily Record, The ScottishSun, Daily Mail, Scotsman, Wikipedia,mbl.is, visir.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni