Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Karl Ágúst minnist Lilju Guðrúnar: „Ég á endalaust eftir að minnast þín af hlýju og gleði“

Karl Ágúst minnist Lilju Guðrúnar: „Ég á endalaust eftir að minnast þín af hlýju og gleði“
Blessuð sé minn­ing Lilju Guðrúnar

Karl Ágúst Úlfsson minnt­ist Lilju Guðrúnar Þor­valds­dóttur á Facebook en hún lést á dög­unum.

Leik­ar­inn góð­kunni, Karl Ágúst Úlfsson skrif­aði fal­leg minn­ing­ar­orð á Facebook í gær en þar minnt­ist hann leikkon­unnar ást­sælu, Lilju Guðrúnar Þor­valds­dóttur sem í fyrri hluta nóv­em­ber.

Í byrjun segir hann frá því að þau hafi verið á sama tíma í Leik­list­ar­skóla Íslands en hann hafi þá verið að byrja en hún að ljúka nám­inu. „Ég man hvað mörgum af eldri nem­end­unum fannst við byrj­end­urnir vit­lausir og van­þroska, en Lilja Guðrún tal­aði við okkur sem jafn­ingja og það voru góð sam­töl og ekki síður skemmti­leg, því hún átti svo sannan og glað­væran hlátur og hlus­aði af svo jákvæðri athygli. Þannig man ég hana.“

Þau Karl Ágúst og Lilja unnu svo saman af og til að sögn Karls en hann rifjar upp þegar hann fékk sitt fyrsta stóra leik­stjórn­ar­starfið en það var í Útvarps­leik­hús­inu en þar réði hann Lilju Guðrúnu í hlut­verk kær­ustu vonda karls­ins í verk­inu. „Hún skil­aði því af svo mik­illi snilld að ég gat þóst vera sæmi­legur leik­stjóri. Hún lék líka í sýn­ingu okkar Spaug­stofu­manna Örfá sæti laus og þar var óneit­an­lega ein­stök gam­an­leik­kona á ferð.“

Því næst rifjar Karl Ágúst upp leik­rit hans Í hvítu myrkri en Lilja lék eitt aðal­hlut­verkið. „Lilja lék kon­una sem neydd­ist til þess í vondu veðri að gista eina nótt í sjáv­ar­þorp­inu og hleypti öllu óvart í bál og brand. Þetta leik­rit var mér til­finn­inga­lega erfitt og í því voru faldar teng­ingar við sára atburði í lífi mínu, en ég lét hvorki leik­stjór­ann né aðra sem unnu að sýn­ing­unni vita af þessu. Einn dag­inn þegar ég gekk út af æfingu kall­aði Lilja á eftir mér og bað mig að eiga við sig orð. Úti á bíla­stæði Þjóð­leik­húss­ins spurði hún mig síðan tveggja eða þriggja ein­faldra spurn­inga. Þegar ég svar­aði af heið­ar­leika brosti hún út að eyrum, breiddi út fangið og sagði „Ég vissi að þetta leik­rit fjall­aði um þig“.“

Síðustu orð Karls Ágústar í minn­ing­ar­færsl­unni eru fal­leg: „Vertu sæl, elsku Lilja mín, þakka þér fyrir allt það góða og ánægju­lega sem við höfum gert saman, sagt saman, hlegið að saman. Ég á enda­laust eftir að minn­ast þín af hlýju og gleði, oft bæði með bros á vör og tár í augum.

Sam­úð­ar­keðjur til ykkar, elsku

Karen María

og Ingunn Inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi