Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Alvotech tapar 10 milljónum á hverri klukkustund – Sviptingar í kringum skuldsett fyrirtæki

Alvotech tapar 10 milljónum á hverri klukkustund – Sviptingar í kringum skuldsett fyrirtæki
Róbert Wessman, stofn­andi og stjórn­ar­for­maður Alvotech.

Lyfja­fyr­ir­tækið Alvotech birti upp­gjör í gær­kvöld fyrir fyrstu níu mán­uði árs­ins. Tekjur fyr­ir­tæk­is­ins voru 29,8 millj­ónir banda­ríkja­dala eða um 4,1 millj­arður króna á tíma­bil­inu. Gríð­ar­legt tap er áfram á rekstri Alvotech sem nam 342 millj­ónum banda­ríkja­dala, fyrir skatta, eða um 47 millj­örðum króna. Það jafn­gildir um 251 millj­óna króna tapi á hvern vinnu­dag, 10 millj­ónum á hverri klukku­stund sól­ar­hrings­ins og 5,2 millj­arða tapi á mán­uði.
Alvotech hefur sótt tugi millj­arða króna til íslenskra fjár­festa og þá sér­stak­lega líf­eyr­is­sjóða það sem af er ári. Útlit er fyrir að ekki líði á löngu þar til for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins þurfi að sækja meira fé til að standa straum af rekstr­ar­tap­inu. Í til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins má sjá að laust fé fyr­ir­tæk­is­ins til að mæta frek­ari tap­rekstri er nán­ast uppurið. Jafn­framt segir að fyr­ir­tækið búist við að lyfja­eft­ir­lit Banda­ríkj­anna komi og taki út fram­leiðslu­að­stöðu í jan­úar.

Endurtekin bjartsýni

Róbert Wessman og aðrir for­svars­menn Alvotech hafa áður verið bjart­sýnir um leyfi eft­ir­lits­ins og þriðja úttektin vekur vonir um að leyfi fáist á end­anum og hægt sé að setja á markað fyrsta lyf fyr­ir­tæk­is­ins vestra Miklar svift­ingar hafa verið í kringum Alvotech og Marel, tvö stærstu fyr­ir­tæki Kaup­hall­ar­innar, á þessu ári. Þau eiga það sam­eig­in­legt að hluta­bréf þeirra hafa lækkað mikið og fyr­ir­tækin skuldum hlaðin. Árni Oddur Þórð­ar­son, for­stjóri Marels, þurfti nýlega að hætta störfum vegna veð­kalls Arion banka sem Mannlíf hefur fjallað um. Kom mikil skuld­setn­ing for­stjór­ans mörgum á óvart og óskaði hann eftir greiðslu­stöðvun í fram­hald­inu. Þetta hefur vakið spurn­ingar fjár­festa um skuld­setn­ingu stærstu hlut­hafa skráðra fyr­ir­tækja á Íslandi og per­sónu­legar skuldir for­stjóra þeirra. Skammt er síðan Halldór Benjamín Þor­bergs­son, for­stjóri Regins, minnk­aði veru­lega skuld­setta eign sína í fast­eigna­fé­lag­inu og inn­leysti tugi millj­óna króna tap.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi