Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Í hringiðu ofsans

Í hringiðu ofsans
Mynd/Envato Elements

Maður getur ekki annað en velt fyrir sér á hvaða veg­ferð íslensk stjórn­völd eru í máli íslenskrar móður sem nú stendur frammi fyrir fram­sali til Noregs. Þar bíður hennar mikil óvissa um fram­gang máls sem höfðað hefur verið á hendur henni vegna for­sjár­deilu sem hún stendur í. Deilan sú var til lykta leidd í Noregi og var föð­urnum dæmt for­ræði.
Óþarfi er að fjöl­yrða um það mál, enda búið að fjalla mikið um það í fjöl­miðlum. Ekki er ætl­unin hér að taka afstöðu til sektar eða sak­leysis hlut­að­eig­andi, en þess í stað horfa aðeins til aðgerða yfir­valda hér, sem og lög­regl­unnar.

Í fyrsta lagi má velta fyrir sér þeim gjörn­ingi að lýsa eftir umræddri móður og birta af henni mynd, líkt og um stór­glæpa­mann sé að ræða. Á sama tíma fjarg­viðr­ast lög­reglan yfir mynd­birt­ingu almennra borg­ara sem ein­ungis vilja fá eigur sínar til baka úr höndum óprútt­inna ein­stak­linga sem óáreittir láta greipar sópa um ann­arra manna eigur.

Í annan stað mun víst vera búið að fall­ast á fram­sal móð­ur­innar til Noregs og það má setja spurn­ing­ar­merki við hve íslensk stjórn­völd eru fljót að girða niður um sig þegar aðrar þjóðir leggja fram kröfu um hitt og þetta.
Gera má því skóna að móð­irin muni dúsa í fang­elsi hér á landi þar til við tekur fang­els­is­vist í Noregi að fram­sali loknu.
Meðan á þessu stendur er ekki enn vitað hvenær réttað verður í umræddu máli, þannig að móð­ur­innar bíður senni­lega norsk prís­und í óskil­greindan tíma.

Mér er til efs að yfir­völd frænd­þjóða okkar gengju jafn rösk­lega til verks og lög­regla hér ef þessu dæmi yrði snúið við. Vissu­lega er til staðar fram­sals­samn­ingur milli Norð­ur­landa­þjóð­anna, en þá þarf að vera um sér­stak­lega alvar­leg mál að ræða. Til dæmis heim­ila norsk lög ekki fram­sal eigin þegna und­an­tekn­ing­ar­laust. Þess í stað heim­ila þau að réttað sé yfir þeim ein­stak­lingi sem um ræðir, vegna brota sem framin eru utan Noregs. Eitthvað svipað er uppi á ten­ingnum hvað Danmörku áhrærir. Ljóst er að hjá þeim tveimur frænd­þjóðum okkar er kraf­ist afar gildra raka þegar um er að ræða fram­sal eigin þegna. Glæp­ur­inn þarf þess utan að vera mjög alver­legur.

Mitt í hring­iðu þessa ofsa íslenskra yfir­valda eru börn sem vita ekki í hvorn fót­inn þau eiga að stíga. Tilveru þeirra hefur verið snúið á hvolf í þessum ofsa­fengnu við­brögðum yfir­valda.
Ekki er úr vegi að varpa þeirri spurn­ingu fram hvort hags­munir barn­anna séu hafðir að leið­ar­ljósi í þessu máli. Vissu­lega er það nú þannig að lög og rétt­læti eiga sjaldn­ast sam­leið, en að fara í þennan bófa­leik undir þeim meintu for­merkjum að hags­munir barn­anna séu hafðir í fyr­ir­rúmi er til hábor­innar skammar. Hryðju­verka­sam­tök eru þekkt fyrir að nota börn sem mann­lega skildi í átökum, en að yfir­völd hér grípi til þess úrræðis er með öllu óskilj­an­legt. Má nán­ast leiða líkur að því að yfir­völdum hér sé almennt nokk sama um almenna, íslenska þegna.

Til að bíta höf­uðið af skömminni þá er þeim sem reyna að vera þessum börnum skjól í þessum stormi hótað öllu illu af yfir­völdum.
Er nema von að maður spyrji: Er mennskan með öllu horfin úr íslensku sam­fé­lagi?

Þess er vert að geta, að þegar þessi orð eru skrifuð situr umrædd móðir í fang­elsi á Hólms­heiði, þar sem hún bíður þess að verða fram­seld til Noregs.

Þennan leið­ara og fleira áhuga­vert efni má lesa lesa í nýjasta tölu­blaði Mannlífs hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi