Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Virtur framkvæmdarstjóri skaut konu sína og sjálfan sig til bana – Beið vistunar á geðsjúkrahúsi

Virtur framkvæmdarstjóri skaut konu sína og sjálfan sig til bana – Beið vistunar á geðsjúkrahúsi
Guð­mundur var fram­kvæmd­ar­stjóri rík­is­spít­al­anna Mynd: Lubbi

Guð­mundur Gestsson hafði komið árum sínum ágæt­lega fyrir borð árið 1952 en hann var fram­kvæmd­ar­stjóri rík­is­spít­al­anna og átti Ingi­björgu Helga­dóttur sem konu. Saman áttu þau þriggja ára dóttur og 17 ára dreng er þau lét­ust.

Guð­mundur hafði glímt við mikil and­leg veik­indi og dvalið á stofnun í Danmörku en var nú kom­inn heim til Íslands og beið vist­unar á geð­sjúkra­húsi. En sú bið virð­ist hafa verið of löng því að morgni 18. júní árið 1952 fund­ust hjónin látin eftir skotsár. Hafðu þá Guð­mundur skotið Ingi­björgu til bana og síðan beint byssu sinni að sjálfum sér og framið sjálfs­víg. Börn þeirra hjóna voru til allra lukku ekki heima er hinn skelfi­legi atburður átti sér stað.

Alþýðu­blaðið fjall­aði um málið á eft­ir­far­andi hátt:

Voveif­legur atburður suður í Kópavogi: Þekkt hjón fund­ust látin í íbúð sinni á mið­viku­dags­morgun, – bæði af skotsárum.



HJÓN suður í Kópavogi fund­ust á mið­viku­dag nýlátin. af skotsárum á heim­ili sínu. Höfðu þau verið tvö ein í hús­inu um morg­un­inn. Er ljóst, að skot hefur orðið kon­unni að bana fyrst, en mað­ur­inn skotið sig á eftir. Bæj­ar­fó­geta­emb­ættið í Hafn­ar­firði gaf út svohljóð­andi til­kynn­ingu í gær um atburð þennan: „Hjónin Guð­mundur Gestsson fram­kvæmda­stjóri og Ingi­björg Helga­dóttir, Kópa­vogs­braut 19, Kópa­vogs­hreppi, lét­ust á heim­ili sínu að morgni 18. þ. m. af skotsárum. Ljóst er að konan hefur lát­ist fyrst, en mað­ur­inn á eftir. Atburður þessi hefur gerzt á tíma­bil­inu frá kl. 10—10,25, en þá voru hjónin ein í hús­inu. Guð­mundur heit­inn hafði átt við mikla van­heilsu að stríða síð­ast liðið ár“. Börn þeirra hjóna, ung dóttir og sonur innan við tví­tugt, voru bæði fjar­ver­andi, er þessi hörmu­legi atburður gerð­ist, og er eng­inn til frá­sagnar um hann. Guð­mundur var þekktur maður, fram­kvæmda­stjóri rík­is­spít­al­anna. Hann hefur verið bil­aður á geðs­munum und­an­farið, dvaldi all­lengi á hæli úti í Danmörku, en kom heim í vor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi