Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórarinn fær bót meina sinna á svörtum markaði: „Þetta slökkti á öllum hugmyndum um að stúta mér“

Þórarinn fær bót meina sinna á svörtum markaði: „Þetta slökkti á öllum hugmyndum um að stúta mér“
Þórarinn Ævarsson og Gunnar Dan Wiium Mynd: Trausti Hafsteinsson

„Ég var að taka mígreni­lyf á sirka þriggja tíma fresti, var far­inn að nota allt of mikið og hafði af því áhyggjur. Ég mátti mest nota tvær á dag en var kom­inn upp í sjö til átta töflur og það stefndi í að ég væri að fara nota enn meira. En á degi tvö af inn­töku RSO-olíu þá fór ég niður í þrjár á dag, á degi þrjú var það ein og á degi fjögur þurfti ég ekki að taka lyfin lengur. Svona var þetta og ég algjör­lega verkja­laus. Ég trúði þessu ekki. Þetta var í nóv­em­ber fyrir ári síðan og ég var verkja­laus um jólin og ég man ekki eftir verkja­lausum jólum und­an­farin tutt­ugu ár,“ segir Þórarinn Ævarsson í nýjasta þætti HAMPKASTSINS, umræðu­þætti Hamp­fé­lags­ins. Þórarinn lýsir þar hvernig kanna­bis­olía sem kall­ast RSO breytti lífi hans fyrir einu ári síðan og einnig hvernig hann sagði skilið við þung­lyndi og sjálfs­vígs­hugs­anir með aðstoð hug­víkk­andi nátt­úru­lyfja.

Þórarinn Ævarsson

Þórarinn sem er lands­þekktur athafna­maður og starf­aði meðal ann­ars sem fram­kvæmda­stjóri IKEA, Domino’s pizza og Spaðans hefur áður rætt opin­skátt um veik­indi sín sem hófust með heila­blóð­falli fyrir um tutt­ugu árum síðan. Í kjöl­farið fékk Þórarinn þrá­láta og afskap­lega sárs­auka­fulla höf­uð­verki sem hvorki fannst skýr­ing á né lækn­ing við. Fór það svo að með sterk­ari verkja­lyfjum sökk Þórarinn í fen fíknar og þung­lyndis þar til hann var kom­inn í nið­dimman dal. „Þarna var neyslan á oxý-inu komin í algjört stjórn­leysi og sobril-inu líka. Ég sá fyrir mér að ég myndi ekki eiga nema einn til tvo mán­uði eftir. Skömmin var svo óend­an­lega mikil, gagn­vart fjöl­skyld­unni minni. Ég var búinn að ímynda mér að ég væri að bregð­ast þeim algjör­lega með því að vera ég. Og bregð­ast með­eig­endum. Þetta var enda­laus skömm og hún var svo íþyngj­andi. Skömmin yfir því að vera orð­inn fík­ill. Það var allt algjör­lega svart. Ég var búinn að plana hvernig ég myndi enda allt saman.“

Það varð Þórarni til happs að þekkja til banda­rísks læknis sem ráð­lagði honum að fara óhefð­bundnar leiðir í átt að betra lífi. „Hann ýtti mér í átt­ina að ann­ars vegar psychedelics og hins vegar kanna­bis. Þetta voru hlutir sem ég hafði aldrei reynt. Fyrst var það að koma mér út úr sjálfs­vígs­hugs­unum og fíkn­inni og þung­lynd­inu og það var með psychedelics.“ Þórarinn byrj­aði á að taka sveppi sem inni­héldu psíló­sýbín og MDMA, sem er virka efnið í e-töflum, í smáum skömmtum en sú til­raun bar ekki árangur. Það var ekki fyrr en hann kynnt­ist DMT sem hlut­irnir fóru að hreyfast.

DMT er mjög áhrifa­mikið hug­víkk­andi nátt­úru­lyf og annað af tveimur inni­halds­efnum í Ayahuasca seyð­inu sem hefur notið nokk­urra vin­sælda hér á landi á und­an­förnum árum. Þórarinn lýsir því í við­tal­inu hvernig heim­ur­inn bráðn­aði fyrir framan augu hans og við tók gríð­ar­legur hávaði og átök. „Þarna fékk ég psychedelic breakthrough sem svo er kallað. Í einu vet­fangi er gert út um þung­lyndið mitt. Það var bara tekið. Þetta slökkti á öllum hug­myndum um að stúta mér og ég fékk allt sem ég þurfti á þessu ferða­lagi. Í lokin fékk ég svo full­vissu um að ég gæti hætt á öllum þessum efnum.“

Olía á svarta markaðnum

Þrátt fyrir að vera laus við þung­lyndið þá var bar­átta Þórarins ekki á enda. Höf­uð­verkirnir hrjáðu hann enn. „Ég var eftir þetta að nota mígreni­lyf sem virk­uðu ágæt­lega á mig en það var alltaf minni og minni virkni þannig að haustið 2022 var ég orð­inn dapur aftur. Ekki þung­lyndur en nokkuð dapur yfir því að vera alltaf verkj­aður,“ segir Þórarinn sem aftur leit­aði ásjár banda­ríska lækn­is­ins, félaga síns. Í þetta skiptið barst talið að kanna­bis­efnum, CBD-olíum og lækn­inga­mætti plönt­unnar. Þórarinn hóf til­rauna­starf­semi með mis­mun­andi CBD-olíur þar til honum var bent á RSO-olíu eða Rick Simpson oil. Slík olía er frá­brugðin CBD-olíu að því leyti að hún getur verið mjög há í THC-gildum en það er THC sem veldur vímu­á­hrifum sem CBD gerir ekki. Sökum þessa er RSO-olía með öllu ólög­leg á Íslandi.

Eins og áður segir þá virk­aði RSO-olían svo vel að höf­uð­verkirnir hurfu eins og dögg fyrir sólu og líf Þórarins tók stökk­breyt­ingum. „Þetta var full­komin verkja­still­ing og engin vímu­á­hrif því að ég er ekki að leita eftir vímu. Ég er hættur að drekka áfengi og nota engin önnur lyf en ég tek olí­una inn áður en ég fer að sofa á kvöldin þannig að ef það skyldu vera ein­hver áhrif af henni, sem ég ætla ekki að úti­loka, þá er ég sof­andi á meðan. Það er engin sljó­leiki og þetta er algjör snilld. Ég upp­lifi þetta alls ekki eins og ég sé að taka inn lyf. Ég er með eina sprautu af þessu í ísskápnum hjá mér og nota eins og eitt hrís­grjón á kvöldi.“

Þórarinn var samt ekki lengi í para­dís því á vor­mán­uðum 2023 varð olían ill­fá­an­leg. „Það kom upp skortur á kanna­bis­mark­aðnum, þessi olía fékkst ekki lengur og ég fór beint í sama hel­vítið aftur. Tveimur dögum eftir að ég tók síð­asta dropann af olí­unni þá komu verkirnir aftur á fullu og helm­ing­ur­inn af þessu ári hefur verið eins og afplánun hjá mér. Allt frá mars, apríl og fram á haustið þegar ég fékk olí­una aftur og hún kikk­aði sem betur fer strax aftur inn.“

Þar sem læknum hefur ekki tek­ist að finna út hvað veldur höf­uð­verkjum Þórarins er ekki auð­velt að henda reiður á það hvernig RSO-olían slær á verk­ina. „Þetta eru lík­lega ein­hverjir tauga­verkir og þá er það að róast hjá mér tauga­kerfið. Ég held að það hljóti að vera það, ein­hvers konar ró á kerf­inu. Þetta hefur þessi lygi­legu áhrif, það bara slokknar á verknum. Hann bara fer.“

Óánægður með Sigmund Davíð

Þrátt fyrir að RSO-olían sé aftur fáan­leg þá er ein­göngu hægt að kaupa á hana á svörtum mark­aði og verður að telj­ast nokkuð sér­stakt að lands­þekktur athafna­maður opin­beri lög­brot sín. Það gerði hann einnig í umsögn til vel­ferð­ar­nefndar Alþingis en þar er til með­ferðar þings­á­lykt­un­ar­til­laga um notkun kanna­bis­lyfja í lækn­inga­skyni. „Eins og ég segi í umsögn minni þá er eitt­hvað að í sam­fé­lag­inu þar sem maður eins og ég, sem hefur beisiklí­alltaf verið réttum megin við lögin, búinn að glíma í 20 ár við við­bjóðs­lega verki, finn sára­saklausa aðferð til að fá hug­arró og í raun lífið mitt aftur og það á að vera ólög­legt. Hver eru fórn­ar­lömbin? Hver er að verða fyrir skaða? Það er eng­inn að verða fyrir skaða. Í stað­inn fyrir að ég fari í örorku þá er ég kom­inn aftur í háskóla, ætla að læra meira og ætla að vera góður skatt­greið­andi næstu tíu árin eða hvað það nú er. Ef það eru engin fórn­ar­lömb þá er eng­inn glæpur og ég held að fólk sé að átta sig á þessu. Loksins er lokið farið af pott­inum og það verður ekk­ert sett á aftur.“

Þórarinn er bjart­sýnn á að þings­á­lykt­un­ar­til­lagan verði sam­þykkt enda þing­menn þvert á flokka sem styðja hana. Aftur á móti er einn þing­maður sem hann vill sjá breyta afstöðu sinni. „Ég er óánægður með Sigmund Davíð [Gunn­laugs­son þing­mann Mið­flokks­ins] sem er búinn að setja sig mikið upp á móti þessu. Ég held að hann sé drullu­klár og þetta er dæmi um að sagan mun ekki fara vel með hann að hengja sig á þessa skoðun. Því þetta er þjóð­þrifa­mál. Vonandi hlustar hann því þetta er að fara ger­ast!“

Þáttinn má sjá í heild sinni í spil­ar­anum hér að neðan, Gunnar Dan Wiium, stjórn­ar­maður í Hamp­fé­lag­inu, tók við­talið við Robert, Mickael Omar Lakhlifi sá um tækni­mál og Andri Karel sá um frétta­skrif.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi