Einar Steingrímsson segir að sagan sé að endurtaka sig á Íslandi en í stað þess að gyðungum sé synjað um landvist hér á landi á sínum tíma, eru það nú Palestínumenn sem er synjað.
Stærðfræðingurinn og samfélagsrýnirinn Einar Steingrímsson skrifaði Facebook-færslu í gærkvöldi þar sem hann hlekkjaði frétt RÚV af Palestínumanni sem fær ekki að flytja móður sína frá Gaza hingað til lands. Bendir hann á að fólk í Vinstri grænum viti vel og „og hefur alla tíð gagnrýnt, hvernig gyðingum var synjað um landvist á Íslandi á fjórða áratugnum.“ Og Einar hélt áfram: „Hvernig getur þetta fólk horft aðgerðalaust á sömu söguna endurtaka sig“
Færsluna má sjá í heild sinni hér fyrir neðan en þar vitnar hann í frétt RÚV:
„Fullorðið fólk í VG veit vel, og hefur alla tíð gagnrýnt, hvernig gyðingum var synjað um landvist á Íslandi á fjórða áratugnum. Hvernig getur þetta fólk horft aðgerðalaust á sömu söguna endurtaka sig? Hefur þetta fólk enga sómakennd, svo ekki sé höfðað til dýpri hvata?:
„Maður sem hefur fengið neitun um leyfi fyrir móður sína til að flytja hingað til lands frá Gaza segir það ekki aðeins spurningu um lagabókstaf heldur siðferði að bjarga mannslífum fólks á átakasvæðum“.“





















Athugasemdir