Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Linda Ben: „Það hefur virkilega áhrif á hvernig manni líður í hvaða umhverfi maður er“

Linda Ben: „Það hefur virkilega áhrif á hvernig manni líður í hvaða umhverfi maður er“
Linda Ben – Ljós­mynd­ari: Kazuma Takigawa

Linda Bene­dikts­dóttir, Linda Ben, upp­skrifta­höf­undur sem rekur upp­skrifta­síð­una linda­ben.is, er gift, tveggja barna móðir. Hún á gull­fal­legt heim­ili sem fylgj­endur hennar á sam­fé­lags­miðlum þekkja og þar galdrar hún reglu­lega fram dýr­ind­is­rétti og köku- og tertu­upp­skriftir og deilir hún galdr­inum á net­inu svo fleiri geti notið. Auðvitað lumar hún á flottum upp­skriftum fyrir jólin og ára­mótin.

Linda starf­aði sem fyr­ir­sæta þegar hún var ung­lingur og flutti meðal ann­ars til Indlands til að starfa þar sem fyr­ir­sæta. Þegar hún flutti aftur heim kláraði hún mennta­skóla og hóf síðan nám í líf­efna­fræði við Háskóla Íslands. „Námið tók svo­lítið á mig and­lega,“ segir hún og nefnir að námið hafi heillað hana, en hún hafi haft mik­inn próf­kvíða. Hún og Ragnar Ein­ars­son, eig­in­maður hennar, voru á þessum tíma búin að kynn­ast og eign­uð­ust þau son sinn um það leyti sem Linda útskrif­að­ist sem líf­efna­fræð­ingur. „Ég vissi, þegar ég kláraði námið, að ég myndi ekki vilja vinna við þetta fag. Mér fannst starf líf­efna­fræð­ings ekki heilla mig. Ég vildi gera eitt­hvað meira skap­andi. Ég fór að ein­beita mér að því sem mér þótti skemmti­legt á meðan ég var í fæð­ing­ar­or­lofi. Fór þá aftur að baka mikið; tók myndir af því sem ég var að gera í eld­hús­inu og fór að deila því á Instagram og Facebook. Það voru samt voða­lega fáir á Instagram á þeim tíma. Þá byrj­aði bolt­inn svo­lítið að rúlla. Þá fór fólk að biðja mig um að skrifa fyrir sig greinar og deila upp­skriftum á vef­síður sem voru þá vin­sælar og vinur okkar sem átti verslun bað mig um að gera upp­skriftir fyrir versl­un­ina. Ég fann fyrir rosa­legum áhuga fyrir upp­skrift­unum og stofn­aði því linda­ben.is árið 2016.“

Að ein­falda hvers­dags­leik­ann Já, fiktið vatt svo sann­ar­lega upp á sig. Unga parið keypti fok­helt hús 2013 þegar Linda var ófrísk að syni þeirra. Þegar það hús var til­búið seldu þau það og keyptu lóð beint fyrir aftan fyrsta húsið sitt og byggðu þar hús frá grunni. Mörg þús­und manns byrj­uðu að fylgja Lindu á sam­fé­lags­miðlum meðan á þeim fram­kvæmdum stóð – og hún deildi jafn­framt upp­skriftum. Heimilið, sem er í Mos­fellsbæ, er stíl­hreint og bjart og þar ríkir ein­fald­leik­inn, en jafn­framt hlý­leik­inn ríkjum. Þar býr Linda ásamt eig­in­manni sínum og tveimur börnum þeirra hjóna, 10 ára syni og fjög­urra ára dóttur.

„Við erum með mjög svip­aðan stíl, ég og mað­ur­inn minn. Við heill­umst mikið af ein­földum og hlý­legum stíl þar sem hver hlutur fær að njóta sín. Okkur finnst feg­urðin leyn­ast svo­lítið í ein­fald­leik­anum.“ Og fylgj­endur Lindu fá stundum að berja augum fal­legar myndir af heim­il­inu. „Ég gef hug­myndir að upp­röðun,“ segir Linda sem hefur aug­ljós­lega góðan smekk og mik­inn áhuga á hönnun. „Eins finnst mér gott að hafa hlý­legt við­ar­par­ket og lif­andi blóm sem gefur meiri hlýju og nátt­úru­lega og nota­lega stemm­ingu.“

Linda vinnur heima og hún segir að það skipti hana miklu máli að hafa fal­legt í kringum sig og skapa nota­legt umhverfi þar sem henni líði vel. „Það hefur virki­lega áhrif á hvernig manni líður í hvaða umhverfi maður er.“ Viðtalið við Lindu má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni